Lögreglan með starfsmann grunaðan í lekamálinu

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rök­studdan grun um að starfs­maður inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafi lekið minn­is­blaði um nafn­greinda hæl­is­leit­endur í nóv­em­ber í fyrra. Frétta­stjóri mbl.is þarf hins vegar ekki að skýra frá því hver það var sem lak umræddu minn­is­blaði til mið­ils­ins. Þetta kemur fram í dómi Hæsta­réttar sem felldur var síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Málið sem rekið var fyrir Hæsta­rétti snérist um að lög­reglan vildi að Sunna Ósk Loga­dóttir, frétta­stjóri mbl.is, myndi upp­lýsa um hver það var sem kom umræddu minn­is­blaði til mið­ils­ins, en hann er annar tveggja fjöl­miðla sem birti fréttir úr því. Hinn var Frétta­blaðið. Sunna Ósk neit­aði að upp­lýsa um heim­ild­ar­mann­inn og því fór málið fyrir dóm­stóla.

Réttur fjölmiðla til verndun heimildarmanna varinn


Í dómnum segir að lög­reglan hafi rök­studdan grun um að starfs­maður inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafi látið tveimur fjöl­miðlum í té óform­legt minn­is­blað með per­sónu­upp­lýs­ingum um þrjá nafn­greinda ein­stak­linga og því brotið gegn almennum hegn­ing­ar­lögum. Síðan segir orð­rétt:

„ Annar þess­ara fjöl­miðla er net­mið­ill­inn mbl.is þar sem varn­ar­að­ili starfar sem frétta­stjóri. Krefst lög­regla þess að hún skýri frá því fyrir dómi hver hafi ritað frétt, sem birt var á mbl.is og byggði á minn­is­blaði inn­an­rík­is­ráðu­neytis, um mál eins þeirra sem þar var nefndur og sótt hafði um hæli sem flótta­maður hér á landi, en mál hans var þá til með­ferðar hjá ráðu­neyt­inu. Enn­fremur með hvaða hætti net­mið­ill­inn hafi kom­ist yfir minn­is­blaðið og frá hverjum það hafi borist. Varn­ar­að­ili hefur neitað að svara þessum spurn­ingum og borið fyrir sig a. lið 2. mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008, þar sem kveðið er á um að vitni sé óheim­ilt án leyfis þess sem í hlut á að svara spurn­ingum um hver sé höf­undur eða heim­ild­ar­maður að grein eða frá­sögn sem hefur birst án þess að hann væri nafn­greindur, ef vitnið ber ábyrgð að lögum á efni sem birt­ist opin­ber­lega eða það hefur öðl­ast vit­neskju um höf­und eða heim­ild­ar­mann í starfi hjá ábyrgð­ar­manni“.

Í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar segir að for­senda þess að fjöl­miðlar geti rækt hlut­verk sitt er að þeir geti aflað upp­lýs­inga um mál sem hafa þýð­ingu fyrir almenn­ing og miðlað þeim án afskipta ann­ara. „Einn þáttur í þessu sjálf­stæði fjöl­miðla er að þeir geti tekið við slíkum upp­lýs­ingum í trún­aði án þess að þurfa að gera grein fyrir hvaðan eða frá hverjum þær stafi. Frá þeirri meg­in­reglu verður því aðeins vikið að í húfi séu mjög veiga­miklir almanna­hags­munir sem vega aug­ljós­lega þyngra en hags­munir fjöl­miðla af því að halda trún­aði við heim­ild­ar­menn sína.“ Hæsti­réttur telur þá almanna­hags­muni ekki vera undir í þessu máli.

Dóm­stól­inn telur málið samt sem áður mjög alvar­legt. „Það að koma slíkum upp­lýs­ingum [minni­blað­inu] á fram­færi við fjöl­miðla gerir ætlað brot á þagn­ar­skyldu enn alvar­legra. Ef brotið hefur verið framið í ávinn­ings­skyni getur það varðað allt að þriggja ára fang­elsi, sbr. síð­ari máls­lið 1. mgr. 136. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, en í athuga­semdum með ákvæð­inu kemur fram að hinn órétt­mæti ávinn­ingur þurfi ekki að vera fjár­hags­legs eðlis“.

Rannsökuðu tölvur og farsíma hinna grunuðu


Með dómi Hæsta­réttar fylgir einnig úrskurður hér­aðs­dóms í sama máli. Þar kemur skýrt fram af hverju lög­reglan telur sig hafa rök­studdan grun um að ákveð­inn starfs­maður inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafi lekið minn­is­blað­inu. Alls höfðu átta ein­stak­lingar vit­neskju um til­urð minn­is­blaðs­ins: skrif­stofu­stjóri, þrír lög­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins, ráðu­neyt­is­stjóri, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra og tveir póli­tískir aðstoð­ar­menn hennar. Í hér­aðs­dómnum segir að lög­reglan hafi falað upp­lýs­inga um far­síma­notkun starfs­mann­anna og rann­sakað tvær far­tölvur auk allra inn- og úthring­inga úr borðsímum ráðu­neyt­is­ins eftir klukkan 17 þann 13. nóv­em­ber, dag­inn sem minn­is­blaðið lak. Nöfn þeirra starfs­manna sem eiga í hlut hafa verið tekin út úr dómnum en þar segir að „ Samkvæmt grein­ar­gerð sókn­ar­að­ila voru helstu nið­ur­stöður þess­ara aðgerða lög­reglu þær að B hafi átti rúm­lega tveggja mín­útna sím­tal við [...] Vísis, [...], 19. nóv­em­ber 2013 kl. 18:40, og þrjú styttri sím­töl við hann síðar sama kvöld. Þá hafi B einnig átt rúm­lega tveggja mín­útna sím­tal 20. nóv­em­ber kl. 9:46 við [...] Morg­un­blaðs­ins, [...], en eins og áður segi hafi mbl.is birt kl. 10:55 frétt á vef sínum þar sem fram komi að vef­mið­il­inn hafi undir höndum óform­legt minn­is­blað inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Í kjöl­far þess­ara upp­lýs­inga hafi lög­regla tekið skýrslu af [...] Vísis og [...] Morg­un­blaðs­ins sem báðir hafi borið m.a. fyrir sig a-lið 2. mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008.

Í grein­ar­gerð sókn­ar­að­ila er enn fremur gerð grein fyrir nið­ur­stöðu rann­sóknar á per­sónu­legri tölvu B. Þar hafi komið í ljós að [...] hafi vistað umrætt minn­is­blað í tölvu sinni og opnað það tví­vegis 19. nóv­em­ber kl. 18:46 og 22:20. Þá hafi mátt sjá að þegar skjal­inu hafi verið lokað hafi tölvan spurt „Do you want to save changes youmade to [A]“. Hafi B verið [...] að nýju 10. maí sl., en sókn­ar­að­ili kveður [...] hafa í fyrri yfir­heyrslu sagt mjög ákveðið að [...] hafi bara opnað umræddan tölvu­póst og ekk­ert átt neitt frekar við skjalið og eytt því. Fram kemur í grein­ar­gerð sókn­ar­að­ila að B hafi gefið litlar skýr­ingar á þessu mis­ræmi. Þá hafi B ekki getað útskýrt hvers vegna þær tíma­setn­ingar, sem [...] hafi verið að vinna með skjalið, væru mjög í námunda við tíma­setn­ingar á síma­sam­skiptum hans við [...] Vísis (18:40 og 22:43). Í sömu yfir­heyrslu hafi lög­regla fengið heim­ild til þess að skoða tölvu­pósta B á umræddu tíma­bili en ekk­ert mark­tækt hafi verið að sjá þar sem tengd­ist mál­inu. Hins vegar hafi mátt sjá í tölvu B ummerki um að B hafi gert leit að umræddu skjali í tölv­unni. Aðspurður hvers vegna B hafi þurft að leita sér­stak­lega að skjal­inu, þar sem það hafi verið vistað á skjá­borði tölv­unnar (desktop), hafi [...]svarað að B hafi verið jafn [...] og allir aðrir yfir þessu máli og viljað sjá hvort eitt­hvað væri inni í tölvu sinni sem ekki ætti að vera þar. Þá getur sókn­ar­að­ili þess að skjalið hafi ekki verið í tölvu B, enda hafi [...] skýrt frá því að hann hefði eytt því.

Í grein­ar­gerð sókn­ar­að­ila kemur fram að í ljósi alls þessa hafi hún rök­studdan grun um að starfs­maður inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafi látið fjöl­miðla hafa hið óform­lega minn­is­blað og þar með brotið gegn þagn­ar­skyldu­á­kvæði 18. gr. laga um rétt­indi og skyldur rík­is­starfs­manna nr. 70/1996 og 136. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940. Það sé enn fremur mat lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að lög­regla hafi í rann­sókn sinni leitað allra þeirra leiða sem færar séu til þess að upp­lýsa mál þetta."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár