Yfirtakan á ABC barnahjálp í Kenía: Íslenskt barnastarf í gíslingu

Hund­ruðir kenískra barna eru föst í hring­iðu harðrar valda­bar­áttu Íslend­inga yfir einum þekkt­ustu hjálp­ar­sam­tökum Íslands, ABC barna­hjálp. Hótanir, lygar, vopna­burður og valda­rán ein­kenna bar­átt­una. Öðrum megin stendur Guðrún Margrét Páls­dóttir, stofn­andi og stjórnar­for­maður ABC barna­hjálpar á Íslandi, en hinum megin Þórunn Helga­dóttir, sem hefur búið lengi í Kenía og stýrt ABC barna­hjálp þar í landi. Stundin kann­aði sann­an­irnar á bak­við full­yrð­ingar máls­að­ila og ræddi við nem­endur og starfs­fólk ABC barna­hjálpar í Kenía.

Yfirtakan á ABC barnahjálp í Kenía: Íslenskt barnastarf í gíslingu
Telur sig vera í fullum rétti Þórunn Helga­dóttir er talin hafa ­yfir­tekið félag ABC í Kenía og sölsað undir sig eignir þess. Hún seg­ist hins vegar vera í fullum rétti.

Er það satt að á miðju Íslandi sé stórt stöðu­vatn þar sem Íslend­ingar fórna ungum börnum fyrir guði sína?“ spyr ungi Ken­ía­mað­ur­inn Elvis Mogunde, nem­andi í skóla ABC í Kenía.Blaða­menn Stund­ar­innar líta for­viða af tölvu­skjánum og hvor á annan. „Hvað sagði hann?“
Elvis er einn þeirra sem hafa lent í miðri hring­iðu harðra deilna innan ABC sam­tak­anna þar sem ásak­anir um mútur, hót­anir og róg­burð hafa gengið manna á milli frá því í vor. Þegar hefur einn verið kærður vegna alvar­legra hót­ana í garð for­manns ABC á Íslandi. Upphaf þess­ara deilna má rekja til stjórn­ar­fundar ABC Kenía sem hald­inn var í apríl. Á fund­inum voru þrír íslenskir stjórn­ar­menn reknir úr stjórn­inni og heima­menn settir í þeirra stað. Meðal þeirra reknu var Guðrún Margrét Páls­dóttir, stofn­andi og for­maður ABC barna­hjálpar. Í til­kynn­ingu frá ABC segir að með þessu hafi Þórunn Helga­dóttir, for­maður ABC Kenía, brugð­ist trausti ABC og hrein­lega reynt að sölsa undir sig félagið og eignir þess. Þórunn telur hins vegar að ABC á Íslandi geti ekki rekið sig úr for­manns­stöð­unni í Kenía þar sem um tvö sjálf­stæð félög sé að ræða. Hún situr því sem fast­ast og hefur stofnað ný sam­tök á Íslandi, Íslensku Barna­hjálp­ina, sem sér um að safna styrkjum og fram­lögum hér á landi. Ástandið í Kenía er alvar­legt. Glæpa­gengi eru sögð hafa komið að skól­anum, starfs­menn hafa þurft að flýja borg­ina vegna hót­ana og nem­endur verið hvattir til óeirða. 

Fann samtökin í bæklingi á bensínstöð

Hún er fyrir löngu orðin þekkt sagan af kon­unni sem árið 2004 gekk inn á bens­ín­stöð í Graf­ar­vogi og tók með sér bæk­ling. Bæk­ling­ur­inn, sem var gef­inn út af ABC barna­hjálp, hreyfði við kon­unni sem í kjöl­farið hafði sam­band við sam­tökin og bauð fram krafta sína. Þessi kona var Þórunn Helga­dóttir. Hún var í kvik­mynda­gerð á þeim tíma og bauðst meðal ann­ars til þess að gera mynd­band fyrir sam­tökin. Þeirri hug­mynd var tekið fagn­andi. Þórunn starf­aði sem sjálf­boða­liði hjá ABC sam­tök­unum fyrstu tvö árin og fór meðal ann­ars með í ferð til Indlands. Sú ferð hafði mikil áhrif á hana en þá kynnt­ist hún í fyrsta skiptið starfi ABC frá fyrstu hendi.  

Hörkudugleg hugsjónakona

Saga Þórunnar var meðal ann­ars sögð í sjón­varps­þætt­inum Kompási á Stöð 2 árið 2009. Sjón­varps­mað­ur­inn Logi Bergmann Eiðsson fór til Kenía, fylgd­ist með starf­inu og ræddi við Þórunni. Umfjöllun Kompáss vakti mikla athygli á sínum tíma en fátæktin og neyðin í Kari­obangi hverf­inu í Naíróbí var nán­ast áþreif­an­leg. Í þætt­inum er meðal ann­ars full­yrt að hjálp­ar­starfið í Kenía sé alís­lenskt.
 Þórunn seg­ist í sam­tali við Stundina hafa fundið að henni var ætlað að setj­ast að í Kenía. Í fyrstu vik­unni þar ytra kynnt­ist hún síðan eig­in­manni sínum, Samuel Lusiru Gona. Hann er nú einnig stjórn­ar­maður í ABC Kenía. Þau eiga saman ætt­leiddan dreng, hinn sjö ára Daníel Heiðar. 
Þórunni er lýst sem 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár