Yfirlýsing: Eigandi Laugarásvídeó ósáttur við umfjöllun um kynferðisbrot

Gunnar Jós­efs­son sendir út yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar Stund­ar­innar.

Yfirlýsing: Eigandi Laugarásvídeó ósáttur við umfjöllun um kynferðisbrot

Gunnar Jós­efs­son, eig­andi Laug­ar­ásvídeó, harmar umfjöllun Stund­ar­innar um víd­eó­leigu sína og kyn­ferð­is­glæpi sem framin voru af fyrr­ver­andi starfs­mönnum leig­unnar. Hann vísar ásök­unum sonar síns á bug og segir að sonur sinn sé „aug­ljós­lega veikur“. Auk þess hótar hann að sækja rétt sinn á hendur útgef­anda, rit­stjórn, blaða­manni og við­mæl­endum fyrir dóm­stólum. 

Stundin greindi frá því í nýjasta tölu­blaði að hópur kyn­ferð­is­brota­manna hefði verið við­loð­andi Laug­ar­ásvídeó. Sonur Gunnars Jós­efs­sonar til­kynnti meint kyn­ferð­is­of­beldi föður síns til lög­reglu og barna­vernd­ar­yf­ir­völd fjar­lægðu dóttur Gunnars af heim­ili sínu. Ung kona lýsir hræði­legri reynslu sem hún seg­ist hafa orðið fyrir í bak­her­bergi leig­unnar þegar hún var sex ára gömul og í pössun hjá Gunnari.

Á leig­unni störf­uðu tveir dæmdir kyn­ferð­is­glæpa­menn. Í yfir­lýs­ingu sinni seg­ist Gunnar hafa vikið þeim báðum úr starfi. „Öðrum þeirra, Herði, vildi ég rétta hjálp­ar­hönd enda voru flest sund honum lokuð eftir að dómur gékk í máli hans. Var hann sak­felldur fyrir áreitni og blygð­un­ar­sem­is­brot í garð ungra stúlkna. Eftir heift­úð­uga umræðu á vefnum www.bland.is sá ég mér ekki annað fært að draga þá hjálp­ar­hönd til baka,“ skrifar eig­and­inn. 

Hér að neðan má sjá yfirlýsingu Gunnars í heild:

Yfir­lýs­ing Gunnars Jós­efs­sonar - vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar Stund­ar­innar

Sú ákvörðun rit­stjórnar Stund­ar­innar og blaða­manns­ins Jóhanns Páls Jóhanns­sonar að fjalla um per­sónu mína og fyr­ir­tæki eins og gert var í blaða­grein í 8. tölu­blaði, 1. árgangs Stund­ar­innar sem gefið var út í ágúst 2015 er hörmuð.

Ég hef rekið Laug­ar­ásvídeó í þrjá ára­tugi og hjá mér hefur starfað fjöldi starfs­manna, fleiri en ég hef tölu á. Fram­setn­ing greinar blaða­manns er á þá leið að víd­eó­leigan hafi verið skálka­skjól kyn­ferð­is­af­brota­manna; og verður ekki annað ráðið en allt slíkt hafi verið með vit­und og vilja eig­anda. Ég tek ekki ábyrgð á gjörðum ann­arra og þau brot sem lýst eru í grein­inni við­koma mér ekki, né njóta þau sam­þykkis míns. Tveir menn eru nafn­greindir í grein­inni sem starfs­menn víd­eó­leig­unnar og hafa hlotið dóma fyrir kyn­ferð­is­brot. Ég vék þeim báðum úr starfi.

Öðrum þeirra, Herði, vildi ég rétta hjálp­ar­hönd enda voru flest sund honum lokuð eftir að dómur gékk í máli hans. Var hann sak­felldur fyrir áreitni og blygð­un­ar­sem­is­brot í garð ungra stúlkna. Eftir heift­úð­uga umræðu á vefnum www.bland.is sá ég mér ekki annað fært að draga þá hjálp­ar­hönd til baka. Að því sögðu þá teldi ég verð­ugt verk­efni fyrir blaða­mann Stund­ar­innar að finna atvinnu­rek­endur allra dæmdra kyn­ferð­is­brota­manna og fjalla um þá með sömu for­merkjum og gert var um fyr­ir­tæki mitt. Þá getur blaða­maður svarað þeirri áleitnu spurn­ing hvernig fara skuli með fólk sem afplánað hefur dóm og tekið út refs­ingu; og hvort þeim sé yfir­höfuð stætt að snúa aftur út í sam­fé­lag okkar hinna. Sér­stak­lega, ef haft er í huga, að hann telur þau örlög að standa vaktir í sölu­turni of góð fyrir dæmda menn.

Grein blaða­manns­ins Jóhanns miðar öll að því að gera fyr­ir­tæki mitt tor­tryggi­legt; þannig er meira að segja tínt til og stað­hæft að mér hafi tek­ist að stýra umfjöllun fjöl­miðla, og tryggt vel­vild yfir­valda, með kerf­is­bund­inni dreif­ingu á frí­spólum til ráð­andi afla í sam­fé­lag­inu. Mikill þykir mér máttur sjoppu­eig­and­ans.

Umfjöllun blaða­manns um mína per­sónu og fjöl­skyldu­líf mitt er ekki ein­ungis ósmekk­leg heldur röng. Hann leyfir sér að hafa eftir ummæli sonar míns sem er aug­ljós­lega veikur og frá­bið ég mér allar ásak­anir hans í grein­inni. Hafi blaða­maður undir höndum opin­ber, trún­að­ar­skjöl verður hann sjálfur að svara því til hvers vegna hann kýs að gera þau opin­ber. Heimili manna er frið­helgt og þó eitt­hvað gangi á inni á einu heim­ili þá gefur það ekki til­efni þess að viðra vanda­málin frammi fyrir alþjóð. Tel ég rétt að dóttur mín sé beðin afsök­unar á því að hafa verið dregin inn í umræð­una án þess að hafa sér neitt til sakar unnið. Með þess­ari yfir­lýs­ingu læt ég fylgja afrit af sak­ar­vott­orði mínu sem er hreint og tekur af öll tví­mæli.

Það er for­kast­an­legt að gera mig að kyn­ferð­is­brota­manni í þeim eina til­gangi að selja fleiri blöð og aug­lýs­ingar. Ég krefst þess að vera beð­inn afsök­unar og áskil mér að sækja rétt minn á hendur útgef­anda, rit­stjórn, blaða­manni og við­mæl­endum fyrir dóm­stólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár