Villandi ummæli í tilkynningu Sigríðar Bjarkar

Lög­reglu­stjóri þrætir fyrir að hafa brotið lög. Nið­ur­staða Per­sónu­verndar skýr.

Villandi ummæli í tilkynningu Sigríðar Bjarkar
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum skráði ekki í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum að hún hefði miðlað skýrslu­drögum um mál­efni Tony Omos til Gísla Freys Val­dórs­sonar, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns inn­an­rík­is­ráð­herra. Þá lét hún undir höfuð leggj­ast að upp­fylla aðrar örygg­is­kröfur sam kveðið er á um í lögum um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga.
 
Í yfir­lýs­ingu sem Sigríður sendi frá sér rétt í þessu, fyrir hönd emb­ættis lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir hún: „Í nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar kemur ekki fram að ég hafi gerst brot­leg við lög þegar ég varð við ósk aðstoð­ar­manns Inn­an­rík­is­ráð­herra um að senda honum skýrslu­drög um mál­efni hæl­is­leit­anda þann 20. nóv­em­ber 2013.”

Þetta er vill­andi full­yrð­ing, því sam­kvæmt nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar braut lög­reglan á Suð­ur­nesjum 11. og 12. grein per­sónu­vernd­ar­laga. „Fram­an­greindan skort á skrán­ingu hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu telur Per­sónu­vernd hafa farið í bága við 1. og 2. mgr. 11. gr. og 12. gr. laga nr. 77/2000,“ segir orð­rétt í úrskurð­inum. Er þetta ítrekað tví­vegis auk þess sem fram kemur að aðrar örygg­is­kröf­urnar sem kveðið er á um í laga­á­kvæð­unum hafi ekki verið upp­fylltar.
 
Sigríður Björk segir einnig í yfir­lýs­ingu sinni að Per­sónu­vernd hafi kom­ist að þeirri „nið­ur­stöðu að miðlun skýrslu­drag­anna hafi ekki stuðst við við­hlít­andi heim­ild þar sem hún var ekki á meðal gagna í því máli hæl­is­leit­and­ans sem til með­ferðar var í ráðu­neyt­inu. Það gat ég sem send­andi hvorki vitað né tryggt.” Samkvæmt þessu telur Sigríður Björk það ekki hafa verið á sinni ábyrgð sem lög­reglu­stjóri að meta hvort við­hlít­andi laga­heim­ild væru fyrir hendi áður en per­sónu­upp­lýs­ingar voru sendar frá lög­reglu­emb­ætt­inu. Í úrskurð­inum kemur þó fram að Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hafi verið ábyrgð­ar­að­ili og átt að sjá til þess að skil­yrði per­sónu­vernd­ar­laga væru upp­fyllt.
 
Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar upp­lýsti Sigríður Björk aldrei lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um sam­skipti sín við Gísla þá mán­uði sem rann­sókn leka­máls­ins stóð yfir. Sigríður gegnir nú stöðu lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en hún var skipuð í starfið án aug­lýs­ingar eftir að Stefán Eiríks­son hætti sem lög­reglu­stjóri í kjöl­far ítrek­aðra afskipta fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra af rann­sókn leka­máls­ins. Athugun Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar og Gísla Freys má rekja til fréttar sem DV birti þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þremur dögum eftir að sú frétt birt­ist sagði Hanna Birna af sér ráð­herra­emb­ætti.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár