Vill dreifa valdinu og hætta sem formaður

„Látum emb­ættin innan flokks­ins, for­mennsku, stjórn­ar­for­mennsku og þing­flokks­for­mennsku rótera á milli fólks. Tökum jafn­ari ábyrgð. Setjum fók­us­inn á mál­efnin, gildin, stefn­una,“ skrifar Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, á Facebook.

Vill dreifa valdinu og hætta sem formaður

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, ætlar að tala fyrir því á næsta árs­fundi að emb­ætti innan flokks­ins verði látin „rótera á milli fólks“. Í þessu fælist að hann yrði sjálfur ekki áfram for­maður, nema af og til, þegar röðin kæmi að honum.

Frá þessu greinir Guð­mundur á Facebook-síðu sinni. „Staða Bjartrar fram­tíðar hefur verið mér og fleirum til­efni til mik­illa og djúpra heila­brota um nokk­urt skeið. Ég hef þá trú að í hverjum erf­iðum kring­um­stæðum, hvort sem það er innan flokks, í þjóð­fé­lags­mál­unum eða hvar ann­ars staðar, sé hægt finna leið sem ein­kenn­ist af kær­leika,“ skrifar hann og bætir því við að þessi kraftur sé alltaf til staðar en erfitt geti verið að finna hann. Þá skrifar Guð­mundur:

„Kærleikur er kraftur“

„Ég veit þetta kann að hljóma full hug­ljúft í eyrum ein­hverra, en ég meina þetta. Kær­leikur er kraftur sem gerir aðstæður betri. Ég hef engan áhuga á að taka þátt í for­manns­slag. Átök um emb­ætti og völd innan stjórn­mála­flokka eru tölu­verð mein­semd, að mínu viti. Heilu stjórn­mála­hreyf­ing­arnar, gæddar fögrum hug­sjónum, standa lamaðar í kjöl­far slíkra átaka. Fókusinn á brýn úrlausn­ar­efni í þjóð­fé­lag­inu, á verk­efnin sem ráð­ast þarf í, hverfur í skugg­ann.“

„Allt of mik­ill fókus á mik­il­vægi for­manna og á per­sónu­lega eig­in­leika þeirra finnst mér vera önnur mein­semd“

Hann segir að Björt fram­tíð sé „ekki svona stjórn­mála­flokkur“ og verði það von­andi aldrei. „Í Bjartri fram­tíð starfar stór hópur fólks sem vill af ein­lægni vinna að því að bæta sam­fé­lagið. Allt of mik­ill fókus á mik­il­vægi for­manna og á per­sónu­lega eig­in­leika þeirra finnst mér vera önnur mein­semd, til þess fallin að draga athygli frá því hversu mikið af fólki, góðu fólki, kemur í raun veru að því að gera flokk góðan og mik­il­vægan. Það gildir um Bjarta fram­tíð.“

Þjónandi forysta

Þá bendir Guð­mundur á að í lögum Bjartrar fram­tíðar er öll áhersla lögð á öfugan píramída og þátt­töku í stjórn­málum á grunni hug­sjóna um þjón­andi for­ystu. „Að taka þátt í stjórn­málum á vett­vangi Bjartrar fram­tíðar er verk­efni sem við förum í saman. Átökin skulum við eiga við and­stæð­inga okkar í póli­tík. Hags­munaklík­urnar, ein­angr­un­ar­sinn­ana, for­dóma­öflin og freka karl­inn,“ skrifar Guð­mundur og kynnir svo hug­mynd sína:

„Sú til­laga, sprottin úr góðri umræðu innan flokks­ins, sem ég vil tala fyrir og afla braut­ar­gengis á Ársfundi BF, af hug og hjarta – vegna þess að ég hef trú á því að þetta sé rétta leiðin og í bestu sam­ræmi við gildi Bjartrar fram­tíðar -- er þessi: Látum emb­ættin innan flokks­ins, for­mennsku, stjórn­ar­for­mennsku og þing­flokks­for­mennsku rótera á milli fólks. Tökum jafn­ari ábyrgð. Setjum fók­us­inn á mál­efnin, gildin, stefn­una. Hug­sjón­irnar. Berjumst fyrir þeim, en minna við hvort annað. Í þessu felst að ég sjálfur yrði ekki lengur for­maður, nema þegar röðin kæmi að mér að axla þá ábyrgð til jafns við aðra.“

Heiða Kristín Helgadóttir
Heiða Kristín Helga­dóttir er einn af stofn­endum Bjartrar fram­tíðar og hefur starfað sem fram­kvæmd­ar­stjóri og vara­for­maður í Besta flokknum og stjórn­ar­for­maður í Bjartri fram­tíð

Gagnrýndi formanninn

Heiða Kristín Helga­dóttir, einn af stofn­endum Bjartrar fram­tíðar, lýsti efa­semdum um það í sam­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að Björt fram­tíð væri á réttri leið. Ítrekaði hún þetta í við­tali við Viku­lokin á Rás 1 um helg­ina og sagð­ist telja að vandi Bjartrar fram­tíðar lægi að hluta til hjá for­mann­inum. Hún er reiðu­búin til að taka við for­mennsk­unni sjálf ef þess er óskað.

Guð­mundur segir í stöðu­upp­færslu sinni að það sé hugur í sér og hann vilji gangi í öll þau störf sem flokks­menn kunna að fela honum. „Það á eng­inn að starfa í Bjartri fram­tíð með því skil­yrði að hann sé for­maður, eins og það sé aðal­at­riðið. Það gildir um mig, og aðra. BF er ekki hefð­bund­inn stjórn­mála­flokkur. Við föllum ekki í hefð­bundnar gryfjur. Við erum lausn­a­miðað afl sem gengur til brýnna verka í þessu sam­fé­lagi með kær­leika og gleði að vopni. Þannig vil ég stunda póli­tík. Og þannig flokkur er Björt fram­tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár