Spyr hvort Bjarni hafi brotið siðareglur

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, hefur sent umboðs­manni Alþingis erindi og óskað eftir athugun á því hvort Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi farið á svig við siða­reglur ráð­herra með því að sitja á skýrsl­unni um aflandseignir Íslend­inga.

Spyr hvort Bjarni hafi brotið siðareglur

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, vill að kannað verði hvort Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi farið á svig við siða­reglur ráð­herra með því að fresta birt­ingu skýrslu um umfang aflandseigna Íslend­inga fram yfir kosn­ingar. 

Í c-ið 6. gr. siða­regln­anna segir: Ráðherra leynir ekki upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frum­kvæði að birt­ingu slíkra upp­lýs­inga sé hún í almanna­þágu.

Hefur Svandís sent umboðs­manni Alþingis erindi um málið, en emb­ættið hefur meðal ann­ars eft­ir­lit með því hvort stjórn­sýslan fari fram í sam­ræmi við siða­reglur settar á grund­velli laga um Stjórn­ar­ráð Íslands.

Svandís birtir erindi sitt á Facebook, en það hljóðar svo:

Í inn­gangi að gild­andi siða­reglum ráð­herra kemur fram að ábend­ingum megi koma á fram­færi við umboðs­mann Alþingis kunni að vakna spurn­ingar um hvort um brot á siða­reglum hafi verið að ræða. Með erindi þessu er þess óskað að umboðs­maður Alþingis fjalli um hvort svo kunni að vera í því til­viki að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son ákveður að birta ekki skýrslu um aflands­fé­lög fyrr enn all­nokkrum vikum eftir að hún lá fyrir. Þar með var skýrsl­unni haldið frá almenn­ings­sjónum í aðdrag­anda kosn­inga sem eins og kunn­ugt er sner­ust að veru­legu leyti um skatta­mál og skattaund­an­skot. Spurn­ingar hafa vaknað um að sú ákvörðun ráð­herr­ans kunni að varða 6. grein c. umræddra siða­reglna en þar segir: „Ráðherra leynir ekki upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti. Ráðherra ber að hafa frum­kvæði að birt­ingu slíkra upp­lýs­inga sé hún í almanna­þágu.“

Virð­ing­ar­fyllst,
Svandís Svav­ars­dóttir
for­maður þing­flokks
Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs

Þingmenn Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata hafa gagn­rýnt Bjarna Bene­dikts­son harð­lega fyrir að sitja á umræddri skýrslu í margar vikur eftir að henni var skilað.

Stundin hefur sent þing­mönnum Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fyr­ir­spurn um afstöðu þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár