Vandræðalegustu mál stjórnarandstöðunnar

Stundin tók saman nokkur mál sem hafa dregið úr trú­verð­ug­leika stjórn­ar­and­stöðu­flokka.

Vandræðalegustu mál stjórnarandstöðunnar

Í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar er fjallað um yfir­stand­andi kjör­tíma­bil, meðal ann­ars arf­leifð rík­is­stjórn­ar­innar og hneyksl­is­mál sem komið hafa upp á und­an­förnum árum. Þá eru tekin saman þrjú vand­ræða­leg­ustu mál stjórn­ar­and­stöð­unnar. Sá kafli birt­ist hér að neðan.

Hjáseta við afgreiðslu búvörufrumvarps

Hjáseta Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata og Vinstri grænna í atkvæða­greiðslu um búvöru­samn­inga rík­is­stjórn­ar­innar við bændur þann 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn vakti mikla hneykslan og reiði á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum. Í frum­varp­inu eru bændum gefin fyr­ir­heit um rík­is­stuðn­ing upp á 12 til 13 millj­arða á ári næstu 10 árin. Alls eru þetta sam­tals meira en 130 millj­arðar króna en ofan á þetta bæt­ist óbeinn stuðn­ingur í formi toll­verndar upp á um það bil 9 millj­arða.

 

Haft var eftir þing­mönnum Pírata að þeir hefðu ekki kynnt sér málið nægi­lega vel til að treysta sér til að taka afstöðu. Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar, sem sjálfir höfðu lýst yfir áhyggjum af því að end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði frum­varps­ins væri veik­burða og hefði lítið vægi, rétt­lætu hjá­setu sína eftir atkvæða­greiðsl­una með því að vísa til sama end­ur­skoð­un­ar­á­kvæðis og fagna til­komu þess. Málið reynd­ist þing­mönnum Vinstri grænna ekki jafn óþægi­legt, enda hefur flokk­ur­inn aldrei gefið sig sér­stak­lega út fyrir að vilja koma á rót­tækum kerf­is­breyt­ingum í land­bún­aði öðrum en þeim er lúta að umhverf­is­málum og dýra­vel­ferð. Björt fram­tíð stóð uppi sem eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem greiddi atkvæði gegn frum­varp­inu og hefur í kjöl­farið aukið við fylgi sitt í skoð­ana­könn­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár