Urðu skattakóngar eftir bónusgreiðslur: „Meira að fara í gang núna“

Bón­us­þegar ALMC, áður Straums, skipa annað, þriðja, sjötta og tíunda sætið á lista yfir mestu skatt­greið­endur Íslands. Jakob Már Ásmunds­son fékk hund­ruði millj­óna króna í bónusa og boð­aði að von væri á meiri bón­usum í íslensku sam­fé­lagi.

Urðu skattakóngar eftir bónusgreiðslur: „Meira að fara í gang núna“
Jakob Ásmunds­son Fyrr­ver­andi for­stjóri Straums fær hund­ruði millj­óna króna í bónusa. Mynd:

Stjórn­ar­maður og fyrr­ver­andi for­stjóri ALMC - sem sá um eignir Straums-Burða­r­áss eftir að félagið fór í greiðslu­stöðvun - skipa annað og þriðja sætið yfir mestu skatt­greið­endur Íslands árið 2015, eftir að hafa þegið him­in­háar bón­us­greiðslur fyrir umsýslu með eignir félags­ins í kjöl­far fjár­hags­erf­ið­leik­anna. 

Christopher M. Perrin, stjórn­ar­for­maður ALMC, greiddi 200 millj­ónir króna í skatta og Jakob Már Ásmunds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Straums, greiddi 193 millj­ónir króna í skatta.  Annar fyrr­ver­andi for­stjóri Straums, Óttar Pálsson, er í sjötta sæti skatta­list­ans og borgar 143 millj­ónir króna í skatta. Hann hafði áður beðist afsök­unar fyrir hönd Straums fyrir áform um háar bón­us­greiðslur. Tíundi á skatta­list­anum, Andrew Sylvain Bern­hardt, er stjórn­ar­maður ALMC og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri, en hann greiðir 143 millj­ónir króna. 

Jakob varð for­stjóri árið 2013, eftir að hafa starfað hjá Straumi í átta ár, þar sem þáver­andi for­stjóra, Pétri Ein­ars­syni, var meinað að sitja í stjórnum breskra fyr­ir­tækja í fimm ár vegna skattaund­an­skota í land­inu.

Jakob útskýrði eftir að hafa þegið bón­us­inn að hann byggði á árangri og að þetta lyti erlendum lög­málum: „Þetta lút­ir þeim lög­mál­um sem svona ger­ir er­lend­is.“

Um er að ræða hæstu bón­us­greiðslur frá efna­hags­hrun­inu, en talið er að 20 til 30 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn og stjórn­ar­menn hafi fengið greidda bónusa, sam­tals að upp­hæð 3,3 millj­arða króna, um miðjan des­em­ber. 

Hámark á bónusgreiðslur

Íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki mega ekki greiða meira en jafn­virði 25% af árs­launum starfs­manna í bónusa, en eigna­um­sýslu­fé­lag eins og ALMC þarf ekki að lúta sömu lögum.

Straumur-Burðarás fór í greiðslu­stöðvun árið 2009 og var tek­inn yfir af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Eigna­um­sýslu­fé­lagið ALMC stofnað af kröfu­höfum í kjöl­farið. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir áttu stóran hlut í félag­inu en seldu sinn hlut og eru erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir helstu eig­endur í dag.

Helsti eig­andi ALMC er félagið Thing­vellir B.V. sem stýrt af Deutsche Bank í Amster­dam. Ekki er ljóst hver á það félag en banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Davidson Kempner hefur verið nefndur til sög­unnar sem einn af stærri hlut­höf­unum. 

Fram kom í umfjöllun DV í vetur að ALMC hefði ekki greitt bónusa ef félagið hefði greitt stöð­ug­leika­skatt. Í stað hans greiddi félagið svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag upp á 5 millj­arða króna með reiðufé í krónum og fram­sali inn­lendra krafna, eftir að hafa hótað mál­sókn vegna yfir­vof­andi skatts, sem hefði numið um 50 millj­örðum króna.

Báðust afsökunar á áformum um bónusa

Sumarið 2009 kom fram í fjöl­miðlum að Straumur ætl­aði að greiða lyk­il­stjórn­endum sínum millj­arða króna í bónusa fyrir umsýslu með eignir bank­ans. Þá var talað um að bónus­arnir gætu orðið allt að tíu millj­arðar króna. Mikil umræða skap­að­ist um það mál í fjöl­miðlum, meðal ann­ars vegna þess að sumir þeirra sem áttu að fá bónusa höfðu stýrt félag­inu í það þrot sem það stóð frammi fyrir.

Forstjórinn
For­stjór­inn Óttar Pálsson baðst afsök­unum á áformum um bónusa, sagð­ist ekki vera einn þeirra sem hlyti bónus, en hefur nú fengið bónus.

Eftir að málið komst í hámæli í fjöl­miðlum árið 2009 skrif­aði þáver­andi for­stjóri Straums, Óttar Pálsson, grein í Morg­un­blaðið og baðst afsök­unar á hug­mynd­inni: „Í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað und­an­farna daga er ég ekki í nokkrum vafa um að ég og aðrir sem að end­ur­skipu­lagn­ing­unni koma hefðum átt að gefa aðstæðum hér á landi betri gaum. Ég tel einnig mik­il­vægt að fram komi að aldrei hefur staðið til að ég verði þátt­tak­andi í eigna­um­sýslu Straums að end­ur­skipu­lagn­ingu lok­inni og hef ég því engra per­sónu­legra hags­muna að gæta í tengslum við launa­fyr­ir­komu­lag þeirrar starf­semi. Sem starf­andi for­stjóri félags­ins ber ég hins vegar ríka ábyrgð á því sem frá félag­inu kemur og biðst afsök­unar, fyrir eigin hönd og félags­ins, á að þær for­sendur sem áætl­anir mínar og ann­arra stjórn­enda voru reistar á hafi ein­blínt um of á erlendar aðstæður og ekki verið í nægj­an­legum tengslum við þann veru­leika sem við Íslend­ingar búum nú við sem þjóð. Framhald máls­ins verður í höndum nýrrar stjórnar og nýrra eig­enda bank­ans. Það er þeirra að meta hvernig hags­munir þeirra verða best tryggðir.“

Óttar er einn þeirra sem fengu á end­anum bónus.

„Langtíma hvatakerfi“

Hug­myndin um bón­us­greiðsl­urnar komst hins vegar aftur á kortið tveimur árum síðar þrátt fyrir umrædda afsök­un­ar­beiðni fyrir hönd Straums. Nú er hins vegar sama félag, það er að segja sama kennitalan, búið að ákveða slíkar bón­us­greiðslur sem byggja á nokkurn veg­inn sömu for­sendum og hvata­kerfið sem greint var frá árið 2009.

Í árs­reikn­ingi ALMC fyrir árið 2014 voru tæpar 23 millj­ónir evra bók­færðar undir skýr­ing­unni „lang­tíma hvata­kerfi“. Í texta sem fylgir skýr­ing­unni segir hvernig hvata­kerfið var ákveðið á hlut­hafa­fundi ALMC árið 2011: „Fyr­ir­tækið ákvað hvata­kerfi til langs tíma árið 2011, eftir að aðal­fundur hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins heim­il­aði það. Markmið hvata­kerf­is­ins end­ur­heimtur skipt­an­legra skulda­bréfa með því að hvetja og halda í lyk­il­stjórn­endur og starfs­menn.“

„Þetta lút­ir þeim lög­mál­um sem svona ger­ir er­lend­is“

Jakob Már, fyrr­ver­andi for­stjóri, hætti árið 2015. Í sam­tali við Morg­un­blaðið í vetur útskýrði hann að bónus­arnir byggðu á erlendri þróun og væru að hefja inn­reið sína hér á landi. „Þetta er kannski meira að fara í gang núna,“ sagði hann. „Þarna eru er­lend­ir aðilar sem eru að vinna fyr­ir er­lenda aðila þrátt fyr­ir að hluti af þeim séu inn­lend­ir aðilar. Þetta lút­ir þeim lög­mál­um sem svona ger­ir er­lend­is. Þetta er klár­lega ekki eins­dæmi á alþjóð­leg­um vett­vangi.“

Hann sagði greiðsl­urnar vera í takti við þann árangur sem félagið hefði náð, en að kerfið sem byggt væri á til útreikn­inga væri flókið.

Jakob Ásmundsson
Jakob Ásmunds­son Útskýrði í sam­tali við Morg­un­blaðið að bónus­arnir byggðu á erlendri þróun.

Fleiri sem fengu bónusana

Fjöldi ann­arra sem tengj­ast Straumi og ALMC fékk bónusa. Samkvæmt umfjöllun DV eru eft­ir­far­andi starfs­menn Straums á meðal þeirra sem voru í kaupauka­kerfi ALMC:

Birna Hlín Kára­dóttir, yfir­lög­fræð­ingur Fossa mark­aða, áður yfir­lög­fræð­ingur Straums og ALMC og stjórn­ar­maður fyrir hönd félag­anna.

Magnús Ingi Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs Kviku fjár­fest­inga­banka, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Straums.

Anna Rut Ágústs­dóttir, for­stöðu­maður við­skipta­tengsla hjá Kviku fjár­fest­inga­banka.

Sigurjón H. Ing­ólfs­son, sér­fræð­ingur á fjár­mála- og rekstr­ar­sviði hjá Kviku.

Skattalistinn 2015

  1.     050866-5569 Árni Harð­ar­son Túngötu 34 Reykja­vík 265.319.825 
  2.     180456-2369 Christopher M Perrin Aust­ur­ríki Reykja­vík 200.033.697 
  3.     200275-3499 Jakob Már Ásmunds­son Ham­ars­braut 8 Hafn­ar­firði 193.218.736 
  4.     310560-7319 Þórir Garð­ars­son Stóra­krika 31 Mos­fellsbæ 163.175.914 
  5.     031160-3599 Sigurdór Sig­urðs­son Lamba­seli 26 Reykja­vík 160.403.826 
  6.     100672-3169 Óttar Pálsson Kaldakri 5 Garðabæ 142.730.845
  7.     130164-4049 Valur Ragn­ars­son Ásvalla­götu 18 Reykja­vík 133.059.910 
  8.     161273-3339 Sigurður Reynir Harð­ar­son Skafta­hlíð 28 Reykja­vík 131.512.950 
  9.     130854-3039 Kristján V Vil­helms­son Kolgerði 3 Akureyri 129.060.207 
  10.     180860-2669 Andrew Sylvain Bern­hardt Bretland Reykja­vík 112.810.485 
  11.     280364-2589 Jakob Óskar Sig­urðs­son Kaldakri 7 Garðabæ 101.488.387 
  12.     201066-3609 Þórlaug Guð­munds­dóttir Glæsi­völlum 12 Grinda­vík­urbæ 100.992.418 
  13.     081060-4609 Þor­valdur Ingv­ars­son Skild­inga­nesi 32 Reykja­vík 93.116.177 
  14.     130557-5119 Egill Jónsson Hraun­tungu 28 Hafn­ar­firði 86.244.009 
  15.     060449-3849 Kári Stef­áns­son Reykja­vík Reykja­vík 84.516.529 
  16.     130151-7959 Guðbjörg Edda Egg­erts­dóttir Næf­ur­holti 2 Hafn­ar­firði 83.537.457 
  17.     010557-4889 Þuríður Ottesen Óðins­götu 1 Reykja­vík 81.246.007 
  18.     310738-3879 Benedikt Sveins­son Lind­ar­flöt 51 Garðabæ 80.440.300 
  19.     150176-5069 Ingi­björg Lind Karls­dóttir Mávanesi 17 Garðabæ 80.290.404 
  20.     040255-3979 Grímur Karl Sæmund­sen Hlunna­vogi 7 Reykja­vík 80.089.692

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár