„Ótrúlegt hugarfar mjög fárra“

Yfir­gefin svæði, sem áður til­heyrðu banda­ríska hernum á Suð­ur­nesjum, eru nú mörg orðin rusla­kista þeirra sem losa sig við rusl í skjóli nætur. Þró­un­ar­fé­lagið Kadeco, sem tók við þessum svæðum árið 2006, hefur hent mörgum tonnum af rusli með það að mark­miði að hreinsa þau en alltaf fyll­ast þau aftur. Menn eru ráð­þrota og íhuga nú að girða svæðin af með gadda­vír.

„Ótrúlegt hugarfar mjög fárra“
Barna­kerru hent á víða­vangi Hér er litið inn í eitt þeirra skýla sem finna má á Patt­er­son flug­velli. Sjá má til dæmis umbúðir utan af sjón­varpi og barna­kerru.

Ófremd­ar­á­stand hefur skap­ast á mörgum af þeim svæðum sem banda­ríski her­inn skildi eftir í eigu Íslend­inga þegar hann yfir­gaf landið fyrir fullt og allt árið 2006. Ástandið má rekja til umhverf­is­sóða á Suð­ur­nesjum sem margir losa rusl á þessum svæðum í skjóli nætur. Þetta rusl er allt frá hinu venju­lega heim­il­issorpi yfir í stór heim­il­is­tæki og barna­kerrur.

Málið hefur vakið athygli Suð­ur­nesja­manna reglu­lega og hefur umsjón­ar­að­ili svæð­anna, í þessum til­fellum Þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar sem fékk þau afhent árið 2006, margoft hreinsað til með til­heyr­andi kostn­aði.

​„Ég trúi því ekki að við þurfum  girða þetta af eins og her­inn sé mættur aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár