Eldur í Kópavogi

Fjöl­mennt lið lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og sjúkra­flutn­inga­manna, var kallað að Hlíð­ar­hjalla í Kópavogi í kvöld. Þar reynd­ist eldur laus í íbúð.

Eldur í Kópavogi
Fjöl­mennt lið við­brags­að­ila á staðnum Íbúi sem hafði sam­band við Stundina tók þessa mynd.

Fjöl­mennt lið lög­reglu, slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna er nú við störf í Hlíð­ar­hjalla í Kópavogi. Þar virð­ist umfangs­mikil lög­reglu­að­gerð í gangi en íbúi í hverf­inu seg­ist ekki skilja við­bún­að­inn þar sem að ekki hafi verið lokað götum í hverf­inu. Við­bragðs­að­ilar hafi verið á staðnum núna í tutt­ugu mín­útur og engin hreyf­ing virð­ist á fjöl­mennu liði lög­reglu-, slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna.

„Lög­reglan kom fyrst en þeir voru að minnsta kosti á þremur lög­reglu­bif­reiðum. Á eftir það koma slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en þeir eru hér á að minnsta kosti fjórum stórum slökkvi­bílum. Síðan eru, og núna er ég að horfa út um glugg­ann hjá mér, að minnsta kosti fjórir sjúkra­bílar. Ég veit ekk­ert hvað þeir eru að gera. Það hefur engin hreyf­ing verið á þeim frá því þeir mættu. Til að byrja með hlupu lög­reglu­menn­irnir hérna um hverfið eins og þeir væru að skanna svæðið en síðan þá hefur lítið gerst, segir íbúi í hverf­inu sem hafði sam­band við Stundina og sendi með­fylgj­andi mynd.“

Fréttin verður upp­færð.

10:21 - Stundin hafði sam­band við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem varð­ist alla fregna af mál­inu. Fjar­skipta­mið­stöð lög­regl­unnar var ekki heim­ilt að gefa neinar upp­lýs­ingar um málið.

10:27 - Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Stundin fékk með öðrum leiðum var til­kynnt um eld í íbúð við Hlíð­ar­hjalla í Kópavogi. Þegar slökkvi­lið kom á vett­vang voru íbúar komnir út en reykka­f­arar voru sendir inn í hús­næðið. Greið­lega gekk að slökkva eld­inn en mikið tjón varð á íbúð­inni. Nú hefur við­brags­að­ilum fækkað á svæð­inu og hafa aðrir íbúar í hús­inu fengið að snúa aftur til síns heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár