Umboðsmaður vísar kvörtunum Einars vegna rektorskjörs frá

Telur rektor ekki van­hæfan til að fjalla um rekt­ors­kjör í háskóla­ráði og segir ráð­inu ekki skylt að greiða ferða­kostnað vegna kynn­ingar á fram­boði Einars sem býr erlendis.

Umboðsmaður vísar kvörtunum Einars vegna rektorskjörs frá

Umboðs­maður Alþingis sendi Einari Stein­gríms­syni og háskóla­ráði bréf á föstu­dag þar sem kvört­unum Einars vegna rekt­ors­kjör í Háskóla Íslands var vísað frá. Einar er einn þriggja aðila í fram­boði til rekt­ors, ásamt Jóni Atla Bene­dikts­syni, aðstoð­ar­manni rekt­ors og Guðrúnu Nordal.

Kvörtun Einars til Umboðs­manns Alþingis var þrí­þætt. Í fyrsta lagi taldi hann að Kristín Ing­ólfs­dóttir rektor væri van­hæf til að fjalla um mál tengd rekt­ors­kjöri í háskóla­ráði, auk þess sem hann taldi þá ákvörðun háskóla­ráðs að kynna ekki rekt­ors­fram­bjóð­endur ekki stand­ast góða stjórn­sýslu­hætti. Í þriðja lagi kvart­aði hann undan því að til­teknir tölvu­póstar frá honum til rekt­ors og háskóla­ráðs hefðu ekki verið áframsendir á alla í ráð­inu.

Kristín Ingólfsdóttir
Kristín Ing­ólfs­dóttir Einar kvart­aði til Umboðs­manns Alþingis, meðal ann­ars vegna þess að hann taldi rektor van­hæfan á þeim for­sendum að han nværi yfir­maður Jóns Atla, hefði skipað hann aðstoð­ar­rektor og hefði hags­muna að gæta, vegna ímyndar sinnar og orð­spors. Umboðs­maður komst að annarri nið­ur­stöðu.

Rektor ekki vanhæfur

Hvað varðar meint van­hæfi rekt­ors sagð­ist Einar, í bréfi til Umboðs­manns Alþingis, ekki líta svo að um venju­legt sam­band yfir­manns og und­ir­manns væri að ræða, heldur sé aðstoð­ar­rektor einn nán­asti sam­starfs­maður rekt­ors til sex ára, val­inn af henni sjálfri. Til að verja ímynd sína og orð­spor sé senni­legt að hún álíti þann mann æski­leg­astan sem arf­taka sinn sem hefur um langt ára­bil starfað undir hennar hand­leiðslu. Haldi hún pró­fess­or­starfi sínu við skól­ann verði hún und­ir­maður nýs rekt­ors og þar af leið­andi geti það snert hennar hags­muni að nýr rektor sé henni sam­mála um áherslur í starfi Háskól­ans.

Í svari sínu bendir Umboðs­maður á að fjallað er um hæfi starfs­manna í stjórn­sýslu­lögum. Í athuga­semdum við lögin segir að starfs­maður verði ekki van­hæfur í málum er fjalla um sam­starfs­menn hans, eða und­ir­menn. Hins vegar geti hann orðið van­hæfur hafi hann veru­lega hags­muni af úrlausn máls­ins, svo sem ágóða, tap eða óhag­ræði. Eins verði að meta hvort vensl, mjög náin vin­átta eða fjand­skapur sé þess eðlis að það geti haft áhrif á úrlausn máls­ins. „Það eitt að rektor og aðstoð­ar­rektor séu nánir sam­starfs­menn og að sá fyrr­nefndi hafi ráðið hinn síð­ar­nefnda í það starf leiðir ekki til þess að rektor sé van­hæfur,“ segir í úrskurði Umboðs­manns Alþingis.

Áður hafði Umboðs­maður óskað eftir svari háskóla­ráðs, sem taldi rektor ekki van­hæfan í mál­inu. Umboðs­maður Alþingis komst að sömu nið­ur­stöðu og háskóla­ráð. „Eftir að hafa kynnt mér gögn máls­ins og að virtum þeim laga­grund­velli sem gildir um hæfi starfs­manna eða nefnd­ar­manna til með­ferðar máls sem reif­aðar eru hér að framan tel ég mig ekki hafa for­sendur til að gera athuga­semdir við það mat háskóla­ráðs að rektor hafi ekki verið van­hæf til með­ferðar afgreiðslu háskóla­ráðs á erindum yðar í til­efni fram­boðs yðar til rekt­ors Háskóla Íslands eða ann­arra þátta máls­ins vegna und­ir­bún­ings ráðs­ins fyrir vænt­an­legt rekt­ors­kjör,“ segir í bréf­inu.

Guðrún Nordal
Guðrún Nordal For­stöðu­maður Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræðum og pró­fessor við Íslensku- og menn­ing­ar­deild HÍ.
Jón Atli
Jón Atli Aðstoð­ar­rektor vís­inda og kennslu og pró­fessor í raf­magns- og tölvu­verk­fræði við Háskóla Íslands.

Háskólaráði ber ekki að greiða ferðakostnað

Einar starfar sem pró­fessor við Strathclyde-háskóla í Glasgow í Skotland og býr þar. Í bréfi Umboðsm­ans kemur fram að Einar hafi spurt háskóla­ráð hvort það hygð­ist beita sér fyrir kynn­ingu á umsækj­endum, hvort það myndi beita sér fyrir því að reynt yrði að tíma­setja vissa atburði þannig að flestir gætu kom­ist á þá án þess að þurfa að koma oft til lands­ins og hvort háskóla­ráð hygð­ist greiða kostnað af ferðum yðar til lands­ins í þessum til­gangi.

Svar háskóla­ráðs hafi verið skýrt: „Hver og einn sem lýst hefur yfir fram­boði til rekt­ors ber ábyrgð á því, þ.m.t. kynn­ingu á fram­boði sínu og stefnu­málum, ferðum því sam­fara og kostn­aði sem af fram­boð­inu hlýst.“

Eins og fyrr segir taldi Einar það ekki sam­ræm­ast góðum stjórn­sýslu­háttum að háskóla­ráð stæði ekki að kynn­ingu fram­bjóð­enda fyrir kjós­endum. Þá vildi hann álit Umboðs­manns Alþingis á því hvort háskóla­ráði bæri að greiða ferða­kostnað umsækj­enda.

Í svari Umboðs­manns Alþingis segir að hann fái ekki séð í lögum eða reglum að fjallað sé um rétt umsækj­enda eða skyldu háskóla­ráðs til að standa að kynn­ingu umsækj­enda með ákveðnum hætti, eða greiða ferða­kostnað vegna umsækj­enda sem eru búsettir erlendis. „Ég tel mig ekki hafa for­sendur til að full­yrða að af jafn­ræð­is­reglum leiði að þér eigið rétt á því að fá ferða­kostnað greiddan til að koma til lands­ins og taka þátt í kosn­ing­unum.“

Háskólaráð hafði fjallað um málið

Að lokum segir í bréfi Umboðs­manns að hann fái ekki betur séð en að háskóla­ráð hafi fjallað um erindi Einars. Vísar ann­ars vegar í fund­ar­gerð ráðs­ins og hins vegar til bréfs háskól­ans til Einars, með afriti af bókun háskóla­ráðs og svörum ráðs­ins. „Með hlið­sjón af fram­an­greindu tel ég ekki nægi­legt til­efni til að fjalla frekar um þennan þátt kvört­unar yðar.“

Með vísan til þessa telur Umboðs­maður ekki til­efni til að aðhaf­ast frekar í mál­inu. Telst mál­inu því lokið að hans hálfu. 

Kosið á morgun
Kosið á morgun Titr­ingur hefur verið innan Háskóla Íslands vegna máls­ins en rekt­ors­kjörið fer fram á innra neti skól­ans á morgun.

Kosið á morgun 

Hér er kynn­ing Háskóla Íslands á fram­bjóð­endum til rekt­ors, en rekt­ors­kjörið fer fram á morgun. Á kjör­skrá eru alls 14.110, þar af 1.485 starfs­menn og 12.625 stúd­entar. Hljóti eng­inn fram­bjóð­enda meiri­hluta greiddra atkvæða verður kosið að nýju 20. apríl um þá tvo fram­bjóð­endur sem flest atkvæði hljóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár