Thorsil og United Silicon deila um hver mengi meira: Miklu stærri verksmiðja í pípunum

Hvergi er minnst á „lykt“ eða „lykt­ar­mengun“ í mats­skýrslu verk­smiðju Thorsil en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem þar koma fram verður hún tölu­vert stærri og hærri en verk­smiðja United Silicon. Fjöl­margir eig­endur Thorsil tengj­ast Sjálf­stæð­is­flokknum beint eða óbeint.

Thorsil og United Silicon deila um hver mengi meira: Miklu stærri verksmiðja í pípunum
Stór og mikil verk­smiðja Þessa mynd má sjá í mats­skýrslu Thorsil og gefur hún hug­mynd um stærð og umfang verk­smiðj­unnar en þess ber að geta að inn á mynd­ina vantar verk­smiðja United Silicon.

Hvergi er minnst á „lykt“ eða „lykt­ar­mengun“ í mats­skýrslu Thorsil sem nú liggur inni hjá Umhverf­is­stofnun en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem þar koma fram verður verk­smiðjan tölu­vert stærri og hærri en verk­smiðja United Silicon, sem fjöl­margir íbúar Reykja­nes­bæjar hafa kvartað undan eftir gang­setn­ingu hennar á dög­unum. Margir eig­endur Thorsil tengj­ast Sjálf­stæð­is­flokknum beint eða óbeint.

Einkenni sjón­rænna áhrifa frá nýrri kís­il­verk­smiðju Thorsil sem áætlað er að reisa í Helguvík eru allt frá „nokkuð nei­kvæðum“ yfir í „veru­lega nei­kvæð“ sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem fram koma í mats­skýrslu sem nú liggur inni hjá Umhverf­is­stofnun. Hvergi er minnst á „lykt“ eða „lykt­ar­mengun“ en líkt og Stundin hefur greint frá var sama uppi á ten­ingnum í mats­skýrslu United Silicon.

„Stofn­unin telur mik­il­vægt að draga úr losun slíkra efna.“

Mikinn reyk og stæka bruna­lykt hefur lagt frá verk­smiðju United Silicon og hefur það meðal ann­ars valdið óþæg­indum í önd­un­ar­færum ein­hverra íbúa sem hafa kvartað undan því á sam­fé­lags­miðlum þar sem mál kís­il­verk­smiðj­unnar hafa verið rædd und­an­farna daga. Bruna­lyktin er eitt­hvað sem eft­ir­lits­að­ilar gerðu ekki ráð fyrir en efni og efna­sam­bönd sem hafa mynd­ast í verk­smiðj­unni und­an­farna daga og hafa borist út og yfir byggð í Reykja­nesbæ gætu inni­haldið PAH efni og B(a)P, sem mynd­ast við ófull­kom­inn bruna á líf­rænum efnum. Nánari lýs­ingu á umræddum efnum má finna hér neðar.

Gagnrýni Umhverfisstofnunar
Gagnrýni Umhverf­is­stofn­unar Svo virð­ist sem að for­svars­menn Thorsil viti ekki nákvæm­lega hversu mikið af hættu­legum og krabba­meins­vald­andi efnum verk­smiðjan kemur til með að losa líkt og sést hér í gagn­rýni Umhverf­is­stofn­unar og svari Thorsil. Til vinstri er gagn­rýni Umhverf­is­stofn­unar og til hægri er svar Thorsil við gagn­rýn­inni.

Engar upplýsingar um losun krabbameinsvaldandi efna

Ekki er gert ráð fyrir þessu í mats­skýrslu Thorsil sem nú reynir að fá starfs­leyfi fyrir verk­smiðj­una í Helguvík. Í skýrsl­unni er þó talað um PAH-efni og B(a)P en þar gagn­rýnir Umhverf­is­stofnun Thorsil fyrir að taka ekki saman hversu mikið magn af þessum efnum sé áætlað að verk­smiðjan losi og spyr einnig hvort gerðar verði ein­hverjar ráð­staf­anir til þess að varna því að PAH ber­ist út í umhverfið en PAH-efni geta „valdið krabba­meini og ýmsum öðrum nei­kvæðum áhrifum ber­ist þau í líf­verur,“ eins og

Umhverf­is­stofnun segir í mati sínu og ítrekar: „Stofn­unin telur mik­il­vægt að draga úr losun slíkra efna.“ Það vekur athygli að for­svars­menn Thorsil við­ur­kenna að þeir hafi ekki upp­lýs­ingar um magn eða hlut­fall B(a)P af PAH sem mun koma frá verk­smiðj­unni. Svo virð­ist sem að stuðst sé við ágisk­anir því í mats­skýrsl­unni er aðeins talað um að losun efn­anna „...gæti verið“ svona eða hinsegin mikil.

„Þá kemur verk­smiðja Thorsil til með að vera í heild­ina mun stærri en verk­smiðja United Silicon“

Þá vekur stærð verk­smiðju Thorsil einnig athygli en sumir íbúar í Reykja­nesbæ hafa kvartað undan því að verk­smiðja United Silicon hafi eyði­lagt ásýnd Bergsins í Reykja­nesbæ. Bergið hefur hingað til leikið stórt hlut­verk í stærstu fjöl­skyldu­há­tíð bæj­ar­fé­lags­ins, Ljósa­nótt, en á hápunkti hátíð­ar­innar eru ljós tendruð sem stað­sett eru eftir öllu Berginu. Kísilver United Silicon er hins­vegar lítið ef það er borið saman við kís­il­ver Thorsil. Þannig er kís­il­ver United Silicon 38 metra hátt en sam­kvæmt teikn­ingum Thorsil verður sjálf kís­il­verið 45 metrar á meðan skor­steinar verk­smiðj­unnar koma til með að vera í 53 metra hæð. Þá kemur verk­smiðja Thorsil til með að vera í heild­ina mun stærri en verk­smiðja United Silicon, eins og sjá má á með­fylgj­andi ljós­myndum. Mynd­irnar eru hluti af mats­skýrslu Thorsil og eiga að sýna stærð þess frá nokkrum sjón­ar­hornum, meðal ann­ars frá Garðs­skaga­vegi. Þar sést í Kölku, end­ur­vinnslu­stöð­ina í Helguvík, sem virð­ist lítil þar sem hún stendur fyrir framan verk­smiðj­una.

Samanburðarmynd
Sam­an­burð­ar­mynd Þessa sam­an­burð­ar­mynd má finna í mats­skýrslu Thorsil.

Samanburðarmyndir hafa ekki staðist

Þegar litið er á þessar myndir er þó tvennt sem hafa ber í huga. Í fyrsta lagi vantar verk­smiðju United Silicon inn á þessar sam­an­burð­ar­myndir og í öðru lagi birt­ust svip­aðar sam­an­burð­ar­myndir í mats­skýrslu United Silicon, en líkt og Stundin hefur bent á þá var mikið ósam­ræmi í þeim upp­lýs­ingum sem birt­ust í mats­skýrsl­unni ann­ars vegar og raun­veru­leik­ans hins vegar. Stærð verk­smiðj­unnar var eitt af því sem ekki stóðst. Hún reynd­ist miklu stærri en gert var ráð fyrir.

Annað athygl­is­vert sem fram kemur í mats­skýrsl­unni er gagn­rýni frá United Silicon sem skil­aði inn umsögn um umhverf­is­mats­skýrslu Thorsil og sagði meðal ann­ars að útblástur Thorsil myndi dreifast víðar en þeir vildu við­ur­kenna. Í umsögn United Silicon segir að nið­ur­stöður loft­dreifi­út­reikn­inga í frum­mats­skýrslu Thorsil fyrir áætl­aðan útblástur meng­un­ar­efn­anna brenni­steins­oxíðs og köfn­un­ar­efn­is­oxíðs frá skor­steinum fyr­ir­ug­aðrar verk­smiðju geti „tæp­lega stað­ist.“ Þá seg­ist United Silicon hafa látið kanna nið­ur­stöð­urnar, bæði frá hefð­bund­inni loft­fræði og borið saman við þeirra eigið loft­líkan, sem eng­inn kann­ast reyndar við að hafa búið til.

„Hluti eig­enda kís­il­verk­smiðj­unnar er nátengdur Sjálf­stæð­is­flokknum.“

Nálægt íbúðarbyggð
Nálægt íbúð­ar­byggð Áhyggjur íbúa snúa meðal ann­ars að því hversu nálægt verk­smiðj­urnar eru íbúa­byggð.

„Nið­ur­staða þessa sam­an­burðar sýnir aug­ljós­lega að loft­dreif­ing­ar­út­reikn­ingar í frum­mats­skýrslu Thorsils eru ekki fram­kvæmdir á við­ur­kenndan hátt og nið­ur­stöður þeirra því rangar. Rann­sak­anir þessar sýna beint, að meng­un­ar­efni frá fyr­ir­hug­uðum útblæstri Thorsils mun dreifast víðar en skil­greint er í frum­mats­skýrslu Thorsil, ef not­aðir eru jafn háir skor­steinar og fyr­ir­hugað er að gera sam­kvæmt frum­mats­skýrslu Thorsils. Nið­ur­stöður dreif­ing­ar­út­reikn­inga á fyr­ir­hug­uðum útblæstri Thorsil bera vitni um að meng­un­ar­efni dreifast um 1.800 metrum lengra en sýnt er í frum­mats­skýrslu Thorsil og munu hafa bein áhrif á íbúða­hverfi í norð­ur­hluta Reykja­nes­bæjar, verði af bygg­ingu hennar,“ segir í umsögn United Silicon um vænt­an­lega verk­smiðju Thorsil.

Thorsil gagnrýnir loftdreifilíkan United Silicon

Þessu hafna tals­menn Thorsil og segja í raun hið and­stæða; loft­dreifi­líkan sem United Silicon studd­ist við væri ein­falt og í raun of ein­falt miðað við flókið og óstöðugt veð­ur­far á þessu svæði. Thorsil sé að nota við­bót­ar­líkön og fyr­ir­tækið hafi fengið „reynd­ustu aðila á Íslandi, Verk­fræði­stof­una Vatna­skil, til þess að vinna loft­dreifi­reikn­inga fyrir verk­efnið í Helguvík.“

En á meðan tals­menn þess­ara tveggja verk­smiðja deila um það hvor mengi meira og frá hvorri verk­smiðj­unni meng­unin dreif­ist lengra og yfir íbúa­byggð þá bíða íbúar Reykja­nes­bæjar áhyggju­fullir eftir ein­hvers konar stað­fest­ingu á því að heilsa þeirra hljóti ekki skaða af stór­iðj­unni í Helguvík.

„Alls er um að ræða 770 millj­óna króna íviln­anir á sköttum og opin­berum gjöldum á þrettán ára tilma­bili.“

Blaða­maður Stund­ar­innar hafði sam­band við upp­lýs­inga­full­trúa bæj­ar­fé­lags­ins til þess að fá stað­fest hvort athuga­semdir eða spurn­ingar hefðu borist frá bæj­ar­fé­lag­inu og þá hverjar þær voru vegna gerðar mats­skýrsl­unnar. Svör við því höfðu ekki borist áður en fréttin var birt. Íbúar hafa að und­an­förnu verið hvattir til þess að senda inn athuga­semdir vegna þess leyfis inni á vef Umhverf­is­stofn­unar. Inni í hóp íbúa Reykja­nes­bæjar á Facebook eru þeir hvattir til þess að skila inn athuga­semdum en sú sem setti inn færsl­una hvetur fólk sér­stak­lega „...vegna þess hvernig þetta er orðið í dag en það er ógeðs­leg lykt hér dag­lega vegna United Silicon.“

Í fyrra skrif­uðu rúm­lega 25 pró­sent íbúa undir und­ir­skrifta­söfnun þar sem kraf­ist var íbúa­kosn­inga vegna breyt­inga á deiliskipu­lagi í Helguvík. Hópur íbúa sem barð­ist gegn frek­ari stór­iðju efndi til söfn­un­ar­innar en fjöldi und­ir­skrifta náði 25 pró­senta lág­marki sem Reykja­nes­bær gerir kröfu um vegna íbúa­kosn­inga. Ráðamenn í Reykja­nesbæ, meðal ann­ars Gunnar Þór­ar­ins­son sem nú situr í meiri­hluta fyrir hönd Frjáls afls en var áður m.a. for­seti bæj­ar­stjórnar fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gaf það út að nið­ur­staða íbúa­kosn­ing­anna yrði ekki bind­andi og myndi því ekki hafa nein áhrif. Þær yfir­lýs­ingar eru taldar hafa haft úrslita­á­hrif hvað áhuga íbúa á þátt­töku í kosn­ing­unni varð­aði. Aðeins fleiri en 900 íbúar tóku þátt en af þeim var tæp­lega helm­ingur á móti frek­ari stór­iðju í Helguvík. En eins og áður segir hafði íbúa­kosn­ingin engin áhrif.

Mengunin mikil
Mengunin mikil Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon hefur átt í erf­ið­leikum með að hita upp fyrsta ofn­inn af fjórum sem ráð­gert er að gang­setja. Afleið­ing­arnar hafa valdið íbúum áhyggjum en mik­inn reyk og stæka bruna­lykt hefur lagt frá verk­smiðj­unni frá því hún var opnuð.

Stórfelldar ólöglegar skattaívilnanir

Stundin hefur áður fjallað um mál­efni Thorsil og þá sér­stak­lega hverjir standa að baki félag­inu og þeim fram­kvæmdum sem nú valda íbúum í Reykja­nesbæ miklum áhyggjum. 

Stundin hefur áður fjallað um mál­efni Thorsil og þá sér­stak­lega hverjir standa að baki félag­inu og þeim fram­kvæmdum sem nú valda íbúum í Reykja­nesbæ miklum áhyggjum. Hluti eig­enda kís­il­verk­smiðj­unnar er nátengdur Sjálf­stæð­is­flokknum. Fyr­ir­tækið fékk stór­felldar skattaí­viln­anir vegna verk­efn­is­ins, líkt og fjallað hefur verið um. ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, stefndi íslenska rík­inu síð­asta haust vegna þess sem stofn­unin taldi ólög­mæta rík­is­að­stoð. Um var að ræða íviln­un­ar­samn­inga sem íslenska ríkið gerði við fjögur fyr­ir­tæki fyrir utan Thorsil en þau voru Becromal, Verne, Íslenska kís­il­fé­lagið og GMR end­ur­vinnsl­una. Rík­is­að­stoðin var sögð fela í sér ólög­mæta rík­is­að­stoð sem gangi gegn EES-samn­ingnum. Íslenska rík­inu var gert að end­ur­heimta umrædda ólög­mætu rík­is­að­stoð en það hefur ríkið enn ekki gert og því hefur ESA stefnt íslenska rík­inu. Málið hefur ekki verið til lykta leitt.

Alls er um að ræða 770 millj­óna króna íviln­anir á sköttum og opin­berum gjöldum á þrettán ára tilma­bili. Heild­ar­fjár­fest­ingin í kís­il­verk­smiðj­unni nemur um 28 millj­örðum króna. Í fjöl­miðlum hefur komið fram að Thorsil hafi gert samn­inga um sölu á kís­il­málmi til tíu ára fyrir sam­tals um 150 millj­arða króna. Eins og áður hefur komið fram í umfjöllun Stund­ar­inner er því um að ræða verk­smiðju þar sem veru­legir fjár­hags­legir hags­munir eru undir.

Úr umfjöllun Stund­ar­innar um eig­endur Thorsil frá 11. júní 2015:

Sterk tengsl Thorsil við Sjálfstæðisflokkinn

Meðal eig­enda verk­smiðju Thorsil sem tengj­ast Sjálf­stæð­is­flokknum beint eða óbeint eru: Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi Bjarna Bene­dikts­sonar, Eyþór Arnalds, fjár­festir og fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg, Hákon Björns­son, fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ og Guð­mundur Ásgeirs­son, við­skipta­fé­lagi Einars og Bjarna í gegnum olíu­fé­lagið N1 og tengd félög. 

Þá má nefna einnig Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, og félag í eigu Ágústs Valfells og fjöl­skyldu.

Klárað fyrir þinglok
Klárað fyrir þing­lok Frumvarp Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur um fjár­fest­ing­ar­samn­ing við Thorsil, fyr­ir­tæki sem að hluta til er í eigu Eyþórs Arnalds, var sam­þykkt á Alþingi. Þau sjást hér saman á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins ásamt Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, fyrr­ver­andi vara­for­manni flokks­ins og núver­andi þing­manni Við­reisnar.

Tengslin við N1

Mest hefur verið rætt um eign­ar­hald félags­ins P 126 ehf. í Thorsil. en það á Einar Sveins­son í gegnum eign­ar­halds­fé­lag í Lúx­em­borg. Guð­mundur Ásgeirs­son, sem yfir­leitt er kenndur við skipa­fé­lagið Nesskip, á félagið Hlér ehf. sem á hlut í verk­smiðju Thorsil í gegnum annað félag.

Guð­mundur kom meðal ann­ars að við­skiptaflétt­unni sem gerði Einari Sveins­syni og fjöl­skyldu kleift að kaupa rútu­fyr­ir­tækin Kynn­is­ferðir og Reykja­vík Excursions út úr olíu­fé­lag­inu N1 áður en kröfu­hafar félags­ins tóku það félag yfir. Einar og Benedikt Sveins­synir voru ráð­andi hlut­hafar í N1. Guð­mundur Ásgeirs­son og Jón Gunn­steinn Hjálm­ars­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri N1, komu að þeirri fléttu en Jón Gunn­steinn er vara­maður í stjórn Hlér og einn helsti stjórn­andi Kynn­is­ferða og Reykja­vík Excursions.

Meðal hlut­hafa Kynn­is­ferða og Reykja­vík Excursions eru Einar Sveins­son, þrjú börn hans, og eins Jón Bene­dikts­son, bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar. Ef Bjarni væri ekki for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þing­maður og ráð­herra væri hann lík­lega sjálfur hlut­hafi í félag­inu líkt og bróðir hans og frændur. Með þessu er átt við að önnur börn þeirra Einars og Bene­dikts eru hlut­hafar í rútu­fyr­ir­tækj­unum í ljósi upp­runa síns og væri Bjarni það lík­lega einnig ef hann væri ekki þing­maður og ráð­herra. 

Eignarhald hluta verksmiðjunnar á huldu

Hlut­hafar kís­il­verk­smiðj­unnar eru eign­ar­halds­fé­lögin Northsil ehf. með 68.4 pró­senta hlut og eign­ar­halds­fé­lagið Strokkur Silicon ehf. sem er í eigu Strokks Energy sem á 31,6 pró­senta hlut. 

Eigendur Northsil ehf. liggja fyrir en þar er John Fenger langstærstur með tæp­lega 74 pró­senta hlut sam­kvæmt árs­reikn­ingi árs­ins 2013. Hákon Björns­son fram­kvæmda­stjóri er næst stærsti hlut­haf­inn í Northsil en þar á eftir koma eign­ar­halds­fé­lög Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Einars Sveins­sonar. 

Eigendur 33 pró­senta hluta­fjár í Strokki Silicon eru hins vegar ókunnir. Þetta þýðir að ekki liggur fyrir hver á meira en 10 pró­sent af hluta­fénu í Thorsil. Stærsti eig­andi Strokks Energy er fyr­ir­tæki sem heitir Masada ehf. en það á 58 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu. Eigandi þess er Hörður Jónsson. Þá á fyrir tækið PMG Venture Holdings LP sem skráð er á lág­skatta­svæð­inu Delaware í Banda­ríkj­unum. Ekki er hægt að sjá hver á þetta fyr­ir­tæki.

Eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs Arnalds á svo 9 pró­senta hlut í Strokk Energy en hann er jafn­fram­kvæmt fram­kvæmda­stjóri félags­ins.  Eyþór sinnti fjár­fest­ing­ar­verk­efnum í gegnum ýmis félög, meðal ann­ars Strokk Energy, á meðan hann var odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Árborg um átta ára skeiða á árunum 2006 til 2014.

Strokkur var eig­andi 40 pró­senta hlut­fjár í afl­þynnu­verk­smiðju Becromal í Eyja­firði en seldi þann hlut árið 2013. Félagið hagn­að­ist um nærri 570 millj­ónir króna á því ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár