Ísrael áfram með í Eurovision

Ekki voru greidd atkvæði um að vísa Ísrael úr Eurovision og verður full­trúa ísra­elska rík­is­út­varps­ins því meðal kepp­enda á næsta ári. Óljóst er hvað verður um þátt­töku Íslands en stjórn RÚV vildi vísa Ísrael úr keppn­inni.

Ísrael áfram með í Eurovision
Mótmælt Þátttöku Ísraels í Eurovision hefur verið mót­mælt kröft­ug­lega und­an­farin ár. Mynd: AFP

Ekkert varð af atkvæða­greiðslu um að vísa Ísrael úr Eurovision á fundi aðild­ar­fyr­ir­tækja EBU í dag. Það þýðir að ísra­elska rík­is­sjón­varp­inu verður áfram leyft að senda full­trúa til þátt­töku í keppn­inni. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu EBU. 

Á vef RÚV kemur fram að stjórn íslenska rík­is­út­varps­ins muni funda um þátt­töku Íslands í keppn­inni á mið­viku­dag. Stjórnin hafði áður lýst þeirri afstöðu sinni að vilja meina Ísrael þátt­töku í keppn­inni á næsta ári. Er það vegna fram­göngu ísra­el­skra stjórn­valda gagn­vart íbúum á Gaza. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Í minni villtustu fantasíu skil ég ekki hvað þessi morðóða þjóð er að gera þar nema ef vera skyldi til að slá ryki í augu okkar vegna útrýmingar þeirra á heilli þjóð. Fáránlegt...
    0
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Fáránlegt...!
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár