Modi og Pútín ræða varnarmál, viðskipti og Úkraínu

„Vinátta Indlands og Rúss­lands er gam­al­reynd og hefur gagn­ast þjóðum okkar mjög,“ skrif­aði Ind­verski for­sæt­is­ráð­herr­ann á sam­fé­lags­miðla eftir að hafa faðmað Rúss­lands­for­seta og boðið honum að ganga rauðan dregil við kom­una til lands­ins.

Modi og Pútín ræða varnarmál, viðskipti og Úkraínu
Hlýjar mót­t­tökur Pútín fékk hlýjar mót­t­tökur við kom­una til Indlands, þangað sem Rússar selja nú tölu­vert magn af olíu. Mynd: ZAVRAZHIN / POOL / AFP

Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, tók á móti Vladímír Pútín, for­seta Rúss­lands, í nótt. Varnar- og við­skipta­tengsl verða í brennid­epli á leið­toga­fundi þeirra tveggja en ind­versk stjórn­völd sæta miklum þrýst­ingi frá Banda­ríkj­unum um að hætta olíu­kaupum frá Rúss­landi.

Pútín var boðið upp á rauðan dregil með heið­ursverði og 21 fall­byssu­skoti í for­seta­höll­inni í Nýju Delí áður en form­legur leið­toga­fundur með Modi hófst.

Stórir varn­ar­mála­samn­ingar og sam­fram­leiðslu­verk­efni, orku­kaup og aukið efna­hags­legt sam­starf eru á dag­skrá í fyrstu heim­sókn Pútíns til Indlands frá því stríðið í Úkraínu hófst.

Pútín, sem sat við hlið Modi í upp­hafi við­ræðna, sagð­ist búast við „árang­urs­ríkum“ degi þar sem tekið yrði á „fjölda skjala“, meðal ann­ars á sviði varn­ar­mála, tækni, flug­véla og geim­könn­unar.

Leið­tog­arnir munu báðir ræða land­fræði­lega stöðu í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu og trufl­anir á alþjóða­við­skiptum sem urðu vegna tolla sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, lagði á.

Modi …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár