Viljaverk að fjármagna ekki þriðja geirann

Fyrr­ver­andi þing­maður segir fjár­lög bólgna út því ekki sé gert ráð fyrir fram­lögum til stofn­ana eins og Ljóssins, Alzheimersamtakanna og Reykja­lundar fyrr en eftir aðkomu Alþingis. „Já og það er alveg sama hver er í stjórn,“ svarar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Viljaverk að fjármagna ekki þriðja geirann
Björn Leví Gunn­ars­son Fyrr­ver­andi þing­maður segir það vilja­verk að draga úr fram­lögum til þriðja geirans í fjár­laga­frum­varp­inu. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Ráðu­neyti og stofn­anir geta fengið meira fjár­magn með því að und­an­skilja þriðja geir­ann, óhagn­að­ar­drifin félaga­sam­tök, við gerð fjár­laga að mati fyrr­ver­andi þing­manns.

Samkvæmt áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar munu end­ur­hæf­ing­ar­stofn­an­irnar Ljósið, NLFÍ, Reykja­lundur, Styrkt­ar­fé­lag lamaðra og fatl­aðra, Alzheimersamtökin og Park­in­son­sam­tökin fá 700 milljón króna tíma­bundið við­bóta­fram­lag umfram það sem sagði í fjár­laga­frum­varp­inu. Hafði nið­ur­skurður til þeirra verið gagn­rýndur harð­lega í opin­berri umræðu.

„Að mínu mati er það vilja­verk að fjár­magna ekki þriðja geir­ann af því að fjár­laga­nefnd stekkur alltaf inn í til þess að grípa þessa aðila,“ skrifar Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, í færslu á Facebook. „Þannig geta ráðu­neyti og stofn­anir fengið meiri pen­ing, með því að skipta ekki fjár­magn­inu sem þeim er úthlutað inn í þriðja geir­ann líka.“

Lýsir hann þessu sem „hrylli­lega lélegri fjár­laga­gerð“ sem hann hafi bent á áður. „Fjár­laga­ferlið …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár