Svona breytast fjárlögin

Ný þjóð­hags­spá og nýjar útgjalda­til­lögur leggja grunn­inn að breyt­inga­til­lögum sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur fram. Gjöld hækka vel umfram tekjur og 0,5% halli á fjár­lögum er áætl­aður á næsta ári.

Svona breytast fjárlögin
Ragnar Þór Ing­ólfs­son Formaður fjár­laga­nefndar og meiri­hluti hennar skilar áliti þar sem lögð er til útgjalda­aukn­ing upp á 19,6 millj­arða króna á meðan tekjur hækka um 7,5 millj­arða. Mynd: Eyþór Árnason

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, með Ragnar Þór Ing­ólfs­son, þing­mann Flokks fólks­ins og for­mann nefnd­ar­innar, í for­ystu, hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögur á fjár­laga­frum­varp­inu.

Tillögur stjórn­ar­meiri­hlut­ans fela í sér millj­arða útgjöld í verk­efni sem flest varða félags­mál eins og almanna­trygg­ingar og þjón­ustu við fólk með fíkni­vanda og einnig 2 millj­arða króna fram­lag vegna örygg­is­vist­unar.

Breyt­ing­arnar eru að hluta til komnar vegna upp­færðrar þjóð­hags­spár Hag­stof­unnar sem sýnir hæg­ari vöxt í efna­hags­líf­inu. Þegar frum­varpið var lagt fram var gert ráð fyrir 2,2% hag­vexti í ár og 2,6% hag­vexti á næsta ári. Nú hafa horf­urnar hins vegar versnað og gert er ráð fyrir 1,8% hag­vexti á næsta ári. „Í upp­haf­legu hag­spánni var reiknað með að útflutn­ingur myndi aukast um 2,5% á næsta ári en nú er reiknað með að nán­ast eng­inn vöxtur verði í útflutn­ingi á næsta ári,“ segir í áliti meiri­hlut­ans.

„Nú er reiknað með að nán­ast eng­inn vöxtur verði í útflutn­ingi“

…

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár