Þögla einkavæðingin í heilbrigðiskerfinu: „Sjá menn ekki hvert stefnir?“

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra stendur nú fyrir grund­vall­ar­breyt­ingu á heisu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem til­tölu­lega lítið hefur verið fjallað um. Með heilsu­gæslu­vali má ætla að sam­keppni innan heilsu­gæsl­unnar auk­ist til muna og að fleiri einka­reknar stöðvar verði stofn­aðar. Einn af ráð­gjöf­unum á bak við breyt­ing­arnar er hlynntur því að læknar sjái um rekst­ur­inn en ekki fjár­festar. „Sjá menn ekki hvert stefnir?“ spyr Ögmundur Jónasson þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra.

Þögla einkavæðingin í heilbrigðiskerfinu: „Sjá menn ekki hvert stefnir?“
Breytt greiðslu­fyr­ir­komu­lag og þrjár nýjar heilsu­gæslu­stöðvar Með breyt­ing­unum sem Kristján Þór inn­leiðir er stefnt að því að ein­falda greiðslu­fyr­ir­komu­lagið í heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með því að fjár­magn frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands fylgi hverjum skjól­stæð­ingi sem er sjúkra­tryggður. Mynd: Pressphotos

„Það er alvar­legt að for­gangs­röð­unin innan heilsu­gæsl­unnar í dag byggi í meira mæli á eft­ir­spurn sjúk­ling­anna og ekki eftir því hver það er sem mest þarf á lækn­is­að­stoð að halda. Þetta er ekki í sam­ræmi við þær sið­ferði­legu meg­in­reglur sem eiga að stýra heilsu­gæsl­unni,“ sagði rík­is­end­ur­skoð­andi Sví­þjóðar, Jan Landahl, um skýrslu sem fjall­aði um hvernig einka­rekstr­ar­væð­ing á heilsu­gæsl­unni í land­inu hefði tek­ist. Skýrslan var gefin út í fyrra og bar yfir­skrift­ina „Primär­vår­dens styrn­ing – efter behov eller efter­frågan?“ eða „Stjórnun heilsu­gæsl­unnar – eftir þörfum eða eft­ir­spurn?“

Á sænsku er þessi einka­rekstr­ar­væð­ing, sem hófst árið 2009, kölluð „vår­dval“ en á íslensku mætti tala um heilsu­gæslu­val sem felst þá í því að hverjum sjúk­lingi, sem er sjúkra­tryggður innan almanna­trygg­inga­kerf­is­ins, fylgir ákveðið fjár­magn innan kerf­is­ins sama hvaða heilsu­gæslu­stöðvar hann ákveður að leita til. Rekstur heilsu­gæslu­stöðva fær því ekki háar upp­hæðir á fjár­lögum hvers árs, líkt og hér á Íslandi, heldur ræðst fjár­streymi til þeirra af sjúk­linga­fjölda. Ef sjúk­ling­ur­inn leitar til rík­is­rek­innar heilsu­gæslu­stöðvar þá fær við­kom­andi stöð greitt fyrir heim­sókn­ina frá sænskum sjúkra­trygg­ingum en ef sjúk­ling­ur­inn leitar til einka­rek­innar heilsu­gæslu­stöðvar fær sú stöð greitt fyrir heim­sókn hans. Breyt­ingin var gerð í Svíþjóð á dögum hægri stjórnar Fredrich Rein­feldts, for­sæt­is­ráð­herra og for­manns flokks­ins Moder­atarna, og byggði rann­sókn sænsku rík­is­end­ur­skoð­un­ar­innar því á fimm ára reynslu Svía af heilsu­gæslu­val­inu.

Tekið skal fram að þó að breyt­ing­arnar á sænsku heilsu­gæsl­unni hafi verið inn­leiddar í tíð hægri stjórnar í Svíþjóð þá hefur núver­andi vinstri-græna minni­hluta­stjórn Sós­í­alde­mókrata og Umverf­iss­flokks­ins ekki kynnt hug­myndir um að til standi að breyta þessu kerfi í því landi. Þverpóli­tísk sátt virð­ist hafa skap­ast um þetta kerfi í Svíþjóð.

Grundvallarbreyting á heilsugæslunni

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur nú tekið ákvarð­anir um opnun þriggja nýrra einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem eiga að keppa um við­skipta­vini við aðrar stöðvar. Í kjöl­farið verða fimmtán rík­is­reknar og fimm einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Kristján hefur talað fyrir þeim mögu­leika að taka upp svipað kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og gert hefur verið í Svíþjóð með heilsu­gæslu­val­inu og verða þessar breyt­ingar inn­leiddar á næsta ári. 

Athuga­semd rit­stjórnar: Í prent­aðri útgáfu Stund­ar­innar voru gerð mis­tök við vinnslu grein­ar­innar sem leiddu til þess að svör frá vel­ferð­ar­ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar birt­ust ekki með grein­inni í blað­inu líkt og til stóð. Þá var myndum og nöfnum álits­gjafa ruglað saman þannig að myndir af álit­gjöf­unum voru ekki á réttum stað með réttum textum. Þessi mis­tök eru ekki í grein­inni hér á vefnum. Hluta­að­eig­andi, vel­ferð­ar­ráðu­neytið og álits­gjaf­arnir sem um ræðir, sem og auð­vitað les­endur eru beðnir vel­virð­ingar á þessu. 

Rit­stjórn Stund­ar­innar

 

sdfdsf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár