Þingforseti og formenn stjórnarflokkanna ekki með í áskorun til pólska þingsins

Syst­ur­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í íhalds­sam­tök­unum AECR stendur fyrir laga­setn­ingu um algjört bann við fóst­ur­eyð­ingum í Póllandi. Fjöldi þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur ekki skrifað undir opið bréf til Pólverja þar sem laga­breyt­ing­unum er mót­mælt.

Þingforseti og formenn stjórnarflokkanna ekki með í áskorun til pólska þingsins

Meira en helm­ingur Alþing­is­manna hafði sam­þykkt að leggja nafn sitt við mót­mæla­bréf til pólska þings­ins vegna fyr­ir­hug­aðrar laga­setn­ingar um skil­yrð­is­laust bann við fóst­ur­eyð­ingum þar í landi þegar Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­kona Pírata, afhenti sendi­herra Póllands yfir­lýs­ing­una um hádeg­is­leytið í dag. 

Aðspurð hvernig standi á því að aðeins 34 þing­menn séu á list­anum segir Ásta Guðrún að öllum þing­mönnum hafi verið boðið að vera með. Hins vegar hafi ekki borist svör frá öllum. 

Í bréfi þing­mann­anna er pólska þingið hvatt til þess að standa vörð um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna auk þess sem lýst er þungum áhyggjum af fyr­ir­hug­aðri laga­setn­ingu gegn fóst­ur­eyð­ingum í Póllandi. 

Formenn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi nema Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa skrifað undir yfir­lýs­ing­una en Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, er eini ráð­herr­ann sem lagt hefur nafn sitt við bréfið. Forseti Alþingis hefur ekki skrifað undir. 

Sá stjórn­mála­flokkur í Póllandi sem stendur fyrir hinni umdeildu laga­setn­ingu um afnám allra und­an­þága frá banni við fóst­ur­eyð­ingum er íhalds­flokk­ur­inn Lög og rétt­læti. Um er að ræða syst­ur­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins í svoköll­uðum Evr­ópu­sam­tökum íhalds­manna og umbóta­sinna (AECR). 

Á meðal þeirra sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur lag sitt við í sam­tök­unum eru stjórn­mála­flokkar og stjórn­mála­menn sem þekktir eru fyrir þjóð­ern­is­of­stæki og and­stöðu við fóst­ur­eyð­ingar og lifn­að­ar­hætti hinseg­in­fólks. Þá er Rétt­lætis- og fram­fara­flokk­ur­inn frá Tyrk­landi aðili að sam­tök­unum, flokkur Erdogans sem orðið hefur upp­vís að grófum alræð­istil­burðum und­an­farin ár, ekki síst eftir að gerð var mis­heppnuð valda­ránstil­raun þar í landi. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini hægri­flokk­ur­inn á Norð­ur­löndum sem til­heyrir sam­tök­unum að fær­eyska Fólka­flokknum und­an­skildum. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var kjör­inn vara­for­maður stjórnar AECR í fyrra og situr þar meðal ann­ars ásamt full­trúa Laga og rétt­lætis, Önnu Fotyga. Aðeins þrír óbreyttir þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokknum hafa skrifað undir áskor­un­ina til pólska þings­ins, en 11 þing­menn flokks­ins höfðu ekki til­kynnt um þátt­töku sína þegar bréfið var afhent. Í þeim hópi er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son.

Samtökin AECR urðu til eftir að Breski íhalds­flokk­ur­inn klauf sig úr EPP, sam­tökum hóf­samra og borg­ara­legra hægri­flokka vegna ágrein­ings um Evr­ópu­mál en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gekk í AECR árið 2011. Núver­andi for­seti sam­tak­anna er Jan Zahradil, tékk­neskur stjórn­mála­maður sem til að mynda hefur barist gegn aðgerðum til að stemma stigu við útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þing­flokkur AECR á Evr­ópu­þing­inu nefn­ist Evr­ópskir íhalds- og umbóta­sinnar (ECR). Í kjöl­far síð­ustu kosn­inga til Evr­ópu­þings­ins gengu fjórir þing­menn Danska þjóð­ar­flokks­ins og tveir þing­menn Finnska flokks­ins, sem áður hét Sannir Finnar, til liðs við þing­flokk­inn, en báðir flokk­arnir eru þekktir fyrir þjóð­ern­is­of­stæki og útlend­inga­hatur. 

Fram kom í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokknum í fyrra að stefna AECR félli vel að grunn­stefnu flokks­ins. „Þar vegur auð­vitað þungt áhersla sam­tak­anna á frelsi ein­stak­lings­ins sem og gagn­rýni þeirra á aukna mið­stýr­ingu innan Evr­ópu­sam­bands­ins og þróun þess í átt að sam­bands­ríki.“ 

Þeir sitj­andi þing­menn sem ekki hafa skrifað undir áskor­un­ina til pólska þings­ins koma nær allir úr Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum: 

Ásmundur Frið­riks­son
Brynjar Níelsson
Einar K. Guð­finns­son
Eygló Harð­ar­dóttir
Frosti Sig­ur­jóns­son
Bjarni Bene­dikts­son
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son
Sigurður Ingi Jóhanns­son
Illugi Gunn­ars­son 
Hanna Birna Krist­jáns­dóttir
Willum Þór Þórsson
Vil­hjálmur Bjarna­son
Vigdís Hauks­dóttir
Val­gerður Gunn­ars­dóttir
Sigrún Magn­ús­dóttir
Sigríður Á. Andersen
Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir
Jón Gunn­ars­son
Hösk­uldur Þór­halls­son
Haraldur Ein­ars­son
Haraldur Bene­dikts­son
Gunnar Bragi Sveins­son
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son
Kristján Þór Júl­í­us­son
Þórunn Egils­dóttir
Þor­steinn Sæmunds­son

 

Uppfært kl. 21:20

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, skrifar í athuga­semd fyrir neðan frétt­ina:

„Ég var of sein að skrifa undir þessa áskorun þar sem ég var veð­ur­teppt fyrir vestan en að sjálf­sögðu styð ég mann­rétt­indi pól­skra kvenna og mót­mæli harð­lega ofbeldi stjórn­valda gegn sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þeirra!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár