Samkvæmt fordómum í kvikmyndum er betra að deyja en vera fatlaður

„Flest fatlað fólk er ham­ingju­samt,“ segir Fem­iníska fötl­un­ar­hreyf­ingin Tabú, sem for­dæmir Sambíóin fyrir að lýsa kvik­mynd­inni Me Before You sem „feel-good“ kvik­mynd. Segja fötl­un­ar­hat­rið ná nýjum hæðum.

Samkvæmt fordómum í kvikmyndum er betra að deyja en vera fatlaður

Fem­iníska fötl­un­ar­hreyf­ingin Tabú hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem skila­boðum banda­rísku kvik­mynd­ar­innar Me Before You um fatlað fólk er mót­mælt. Jafn­framt mót­mælir hreyf­ingin því að Sambíóin skuli skil­greina kvik­mynd­ina sem „feel-good“ mynd.

„Við virðum frelsi fólks til þess að sækja þær kvik­myndir á mark­aðnum sem því sýn­ist en teljum það skyldu okkar að deila áhyggjum okkar, sorg og reiði yfir ýmsum atriðum sem varða kvik­mynd­ina og eru meið­andi fyrir okkur sem búum við þann félags­lega veru­leika að vera fötluð,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu Tabú, en sam­bæri­legar hreyf­ingar í Bret­landi, Banda­ríkj­unum, Ástralíu og víðar hafa sömu­leiðis for­dæmt mynd­ina.

Áður en lengra er haldið er ástæða til að vara áhuga­sama kvik­myndaunn­endur við því að yfir­lýs­ing Tabú greinir meðal ann­ars frá veiga­miklum atriðum úr sögu­þræði mynd­ar­innar. Tabú telur hins vegar mik­il­vægt að sam­borg­arar sínir taki upp­lýsta ákvörðun um hvort þeir vilji fjár­magna kvik­mynd sem nið­ur­lægir og smánar fatlað fólk með því að sækja hana í kvik­mynda­hús.

Fötlun ekki andstæða við heilbrigði og hamingju

Yfir­lýs­ing Tabú, sem fimmtán konur innan hreyf­ing­ar­innar und­ir­rita, er í nokkrum liðum.

Í fyrsta lagi gagn­rýnir hreyf­ingin þá sögu sem kvik­myndir segja, að það sé betra að deyja en að vera fatl­aður, en aðal­per­sóna mynd­ar­innar fatl­ast á lífs­leið­inni og vill enda líf sitt. „Kvik­myndin birtir þá sögu, enn eina ferð­ina, að það sé betra að deyja en að vera fatl­aður ... Þessi síend­ur­tekna mýta um fatlað fólk er skað­leg. Flest fatlað fólk er ham­ingju­samt og lífs­glatt fólk sem ýmist þekkir ekki neitt annað en að lifa í sínum fatl­aða lík­ama eða lærir inn á líf í fötl­uðum lík­ama. Fötlun er ekki and­stæðan við heil­brigði og ham­ingju þó hún geti verið flókin og kerf­is­bundið stað­sett neð­ar­lega í valdapýramída flestra sam­fé­laga heims­ins – enda er lífið ekki ein tví­hyggja. Fötlun er marg­breyti­leiki og á þátt í að skapa fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Því ber að fagna,“ segir í yfir­lýs­ingu Tabú. 

„Þessi síend­ur­tekna mýta um fatlað fólk er skað­leg.“

Í öðru lagi segja þær sög­una ekki taka á mik­il­vægi þess að fatlað fólk fái sál­rænan stuðn­ing og að fatlað fólk hitti annað fatlað fólk til þess að spegla sig í. „Fatlað fólk upp­lifir mikið mis­rétti, ofbeldi og býr við mik­inn skort á tæki­færum sem ófatlað fólk hefur. Jafn­framt eru hug­myndir um fatlað fólk mjög nei­kvæðar og staðalí­myndir eins­leitar, smætt­andi og rót­grónar. Það er erfitt fyrir fólk sem hefur verið fatlað frá fæð­ingu sem og fólk sem fatl­ast seinna á ævinni. Það krefst mik­illar vinnu og úrvinnslu áreitis sem getur stuðlað að kvíða, þung­lyndi, áfallastreitu, síþreytu, áhyggjum o.fl. líkt og hjá öðrum jað­ar­settum hópum. Í fæstum til­vikum leiðir þetta af sér sjálfs­víg en getur gert það enda er mis­rétti lífs­hættu­legt á marga vegu. Sagan ‘Me before you’ fjallar ekk­ert um þetta og tekur þessa líðan fatl­aðrar mann­eskju úr sam­fé­lags­legu og sögu­legu sam­hengi. Hún end­ur­speglar þó þann veru­leika fatl­aðs fólks, sem birt­ist gagn­rýn­is­laust í sög­unni, að það er auð­veld­ara að fá aðstoð til þess að deyja en að fá aðstoð til þess að lifa. Það eitt og sér er glæpur því við erum verð­mætar mann­eskjur fyrir okkur sjálfum, ást­vinum okkar og sam­fé­lagi.“

Me before you
Me before you Kvik­myndin segir ást­ar­sögu fatl­aðs manns.
 

Hættuleg mýta og dæmin mýmörg

Tabú gagn­rýnir einnig leik­ara­val mynd­ar­innar, en aðal­per­sónan er leikin af ófötl­uðum leik­ara. „Það er fyrir löngu hætt að láta hvítt fólk leika svart fólk í kvik­myndum enda nið­ur­lægj­andi og óvið­eig­andi í alla staði. Það sama gildir um ófatl­aða leik­ara í hlut­verki fatl­aðrar mann­eskju,“ segja þær meðal ann­ars. 

Me Before You er ást­ar­saga, en aðal­per­sóna mynd­ar­innar verður ást­fangin af ófatl­aðri aðstoð­ar­konu sinni. Í mynd­inni eru sýnd kyn­lífs­at­riði, en þó ekki með fatl­aðri aðal­per­són­un­inni. „Hér birt­ist enn önnur gömul tugga um kyn­leysi fatl­aðs fólks,“ segja for­svars­konur Tabú og benda á að allt fatlað fólk geti stundað inni­halds­ríkt og gott kyn­líf.

„Það er fyrir löngu hætt að láta hvítt fólk leika svart fólk í kvik­myndum enda nið­ur­lægj­andi og óvið­eig­andi í alla staði. Það sama gildir um ófatl­aða leik­ara í hlut­verki fatl­aðrar mann­eskju.“

„Margir eru reiðir við fatlað fólk fyrir að gagn­rýna sög­una ‘Me before you’ og spyrja hvernig ein kvik­mynd/bók/saga geti skipt nokkru máli. Málið er að það er ekki bara þessi eina saga. Þetta er hvorki í fyrsta eða síð­asta sinn sem valda­mikil öfl eins og bók­mennta- og kvik­mynda­heim­ur­inn birtir fatlað fólk sem betur dáið en fatlað. Hver man ekki eftir box­ar­anum í ‘Million dollar baby’ sem fatl­að­ist og bað þjálf­ar­ann að drepa sig í kjöl­farið? Sú kvik­mynd er sögð byggja á sann­sögu­legum atburðum en raunin er sú að box­ar­inn vildi ekki deyja heldur er hún starf­andi fötluð lista­kona í Banda­ríkj­unum í dag. Dæmin eru mýmörg og því oftar sem saga er sögð verður hún raun­veru­legri, er eins og olía á for­dóma­elda og hefur áhrif á við­horf sam­fé­lags­ins með þeim hætti að það getur stofnað lífi fatl­aðs fólks í hættu,“ segir að lokum í yfir­lýs­ingu Tabú.

Hér má lesa yfir­lýs­ingu Tabú í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár