Sykurleysi og aðrar matartískudellur

Nanna Rögn­valdar skrifar um nýj­ustu dell­una í matar­æði. „Við erum alltaf að leita að skyndi­lausnum eða töfra­lausnum - ein­hverju ein­földu sem virkar.“

Sykurleysi og aðrar  matartískudellur

Tísku­dellur hafa verið mjög áber­andi í mat­ar­heim­inum síð­ustu árin. Nú ætla ég að taka fram að ég nota orðið della ekki í nei­kvæðri merk­ingu, dellur geta alveg verið jákvæðar og skyn­sam­legar, það vantar ekki. Og ég fæ dellur rétt eins og aðrir.
Sumar dellur – eða trend, ef þið viljið það frekar – hafa snú­ist um hrá­efni sem einn dag­inn er óþekkt, lítið þekkt eða þykir ekki sér­lega fínt en allt í einu getur maður varla opnað blað eða nýja mat­reiðslu­bók eða skoðað blogg svo að þetta blasi ekki við í öðrum hverjum rétti. Sól­þurrk­aðir tómatar, hind­berja­edik, kletta­salat, beikon, blóm­kál, granatepla­fræ ... Stundum eru þetta til­teknir réttir eða teg­undir rétta sem allir eru með sína útgáfu af, flestar þó hver annarri líkar – bolla­kökur, döðlu­gott, kökupinnar, mexíkósk kjúklinga­súpa – og maður situr og hugsar bíddu, þurfum við virki­lega enn eina upp­skrift að rist­uðum grænkáls­flögum, eru þessar 350 sem hægt er að finna á net­inu í fljótu bragði ekki nóg? Og jú, ég er alveg jafn­sek um þetta og aðrir þótt ég hafi reyndar aldrei birt upp­skrift að rist­uðum grænkáls­flögum. Það mun­aði þó litlu einu sinni.

Svo eru það allar holl­ustu­dell­urnar. Við erum alltaf að leita að skyndi­lausnum eða töfra­lausnum – ein­hverju ein­földu sem virkar. Eins og að sleppa til­teknum þáttum úr matar­æð­inu eða tak­marka notkun þeirra – sem getur alveg virkað – eða setja allt traust á ein­hverjar hrá­efn­is­teg­undir sem hafa á sér holl­ustu­stimpil og trúa því að ef við notum þær muni þær bjarga öllu – en það virkar ekki. Fyrir fáeinum árum var eins og það dygði að hafa spelt, aga­vesíróp eða vín­steinslyfti­duft í köku­upp­skrift, þar með mátti kalla kök­una holla, sama hvað annað var í henni. Svo kom í ljós að speltið var lítið eða ekk­ert holl­ara en annað hveiti og aga­vesírópið gat jafn­vel verið verra en hvíti syk­ur­inn. Vín­steinslyfti­duftið átti að vera svo hollt af því að það inni­hélt ekki álsam­bönd en það gerir íslenskt lyfti­duft reyndar ekki heldur. Svo að ein­hvern­veg­inn hefur upp­skriftum sem snú­ast um þessi hrá­efni heldur fækkað að und­an­förnu. Auðvitað hefur annað komið í stað­inn en spurn­ing hvort það á eftir að fara sömu leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár