Nafnlaus leiðari Morgunblaðsins til stuðnings Davíð

Nafnlaus leið­ari Morg­un­blaðs­ins í dag er skrif­aður til stuðn­ings áherslu­málum Davíðs Odds­sonar, for­seta­fram­bjóð­anda og rit­stjóra blaðs­ins. Gagnrýni á Guðna Th. Jóhann­es­son er end­ur­ómuð í leið­ar­anum.

Nafnlaus leiðari Morgunblaðsins til stuðnings Davíð
Davíð Oddsson Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins er sagður í leyfi en ekki liggur fyrir nákvæm­lega hvenær hann fór í leyfi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Leynd hvílir yfir höf­undi leið­ara Morg­un­blaðs­ins sem birt­ist í dag en þar er gert lítið úr þeim fjöl­miðla­mönnum sem gagn­rýnt hafa meðal ann­ars und­ir­skrifta­söfnun sem átti sér stað á göngum Morg­un­blaðs­ins til stuðn­ings for­seta­fram­boðs Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra blaðs­ins. 

Í leið­ar­anum eru sam­tökin Modern Media Institute (IMMI) gagn­rýnd og sögð eiga höf­uð­stöðvar á heim­ili Birgittu Jóns­dóttur, þing­konu Pírata, og gert að því skóna að skoð­anir fram­kvæmda­stjóra sam­tak­anna, Guðjóns Idir, séu runnar undan rifjum Pírata. Sá sagði blaða­menn Morg­un­blaðs­ins setta í ankanna­lega stöðu þegar aðstoð­ar­menn Davíðs gengu blaða­manna á milli og öfl­uðu und­ir­skrifta fyrir for­seta­fram­boð rit­stjór­ans.

Vafasamur samanburður við stöðu Þóru

Höfundi leið­ar­ans þótti athygl­is­vert að for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, Hjálmar Jónsson, hafi þótt það furðu­legt að rit­stjóri blaðs­ins væri að bjóða sig fram til for­seta.

„Man nokkur eftir því að for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins hafi lýst áhyggjum af því fyrir fjórum árum að Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kast­ljóss­ins, væri í for­seta­fram­boði? Enginn? Það er eðli­legt, enda gerði hann það ekki. Af hverju veldur fram­boð rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins honum þá áhyggjum?“

Þóra Arn­órs­dóttir var hins vegar ekki rit­stjóri Kast­ljóss­ins þegar kom að fram­boði hennar. Þá við­hafði Kasts­ljósið ekki dag­legar umfjall­anir um for­seta­kosn­ing­arnar. Morg­un­blaðið sýndi hins vegar beint frá vígslu kosn­inga­skrif­stofu Davíðs á vef sínum, mbl.is, sem er mest sótti vefur lands­ins.

Gagnrýni á Guðna Th.

Davíð Oddsson hefur á opin­berum vett­vangi meðal ann­ars gagn­rýnt for­seta­fram­bjóð­and­ann Guðna Th. Jóhann­es­son fyrir stuðn­ing sinn við Icesave-samn­ing­ana og er sú gagn­rýni end­ur­ómuð í leið­ar­anum.

Áhersla leið­ara blaðs­ins er sam­hljóma áhersl­unum í for­seta­fram­boði rit­stjór­ans, þar sem vísað er til reynslu hans, vilja hans til að leggja áherslu á inn­an­lands­mál og að tala upp­byggi­lega um afrek þjóð­ar­innar.

Þar segir meðal ann­ars: „Mik­il­vægt er að kjós­endur fái sem fyllstu mynd af þeim sem í fram­boði eru, ekki síst þeim sem útlit er fyrir að hafi nokk­urt fylgi. Hvaða skoð­anir hafa þeir og hvaða afstöðu hafa þeir haft til meiri­háttar þjóð­mála? Hvað skoð­anir varðar er sagan yfir­leitt ólygn­ust. Þá þarf að upp­lýsa hvaða reynslu fram­bjóð­endur hafa sem nýst getur í slíku emb­ætti því að ekk­ert starf er þess eðlis, allra síst æðsta emb­ætti þjóð­ar­innar, að reynslan geti verið und­an­skilin við mat á þeim sem í boði eru ... Í þessu efni, eins og í öðru, hefur meðal ann­ars þýð­ingu hvernig fram­bjóð­endur hafa talað og beitt sér fram til þessa. Hafa þeir beitt sér í þágu íslenskra hags­muna eða hafa þeir með fram­gangi sínum þjónað öðrum hags­munum? Hafa þeir fjallað upp­byggi­lega um sögu lands og þjóðar og þau afrek sem unnin hafa verið til að koma Íslandi í þær álnir sem raun ber vitni, eða hafa þeir gert lítið úr vinnu þeirra sem á undan eru gengnir?“ spyr leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins um kosn­ing­arnar sem rit­stjóri blaðs­ins tekur nú þátt í.

„Hvort þeir telja mik­il­væg­ast að horft sé heim og emb­ættið nýtt til að efla og styrkja þjóð­ina“

Þá er í leið­ar­anum spurt hvort fram­bjóð­endur vilji beita emb­ætt­inu á alþjóða­vett­vangi „eða hvort þeir telja mik­il­væg­ast að horft sé heim og emb­ættið nýtt til að efla og styrkja þjóð­ina“, en Davíð hefur haldið þeim sjón­ar­miðum á lofti að for­set­inn beri að horfa inn á við.

Guðni sagði goðsögn hafa verið búna til

Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhann­es­son For­seta­fram­bjóð­and­inn seg­ist heyja sína kosn­inga­bar­átt­una á sínum for­sendum.

Meðal þess sem rifjað hefur verið upp um Guðna Th. und­an­farið er að hann hafi sagt þorska­stríðið ekki hafa verið eig­in­legt stríð, og hvatti til hóf­semdar í umræðu um sigur Íslend­inga árið 2011. „Þorska­stríðin eru mik­il­vægur þáttur í sam­eig­in­legu minni Íslend­inga. Þau eru sögð lýsandi dæmi um þann dug sem þjóðin geti sýnt þegar að henni er sótt, og sönnun þess að Íslend­ingar geti skipt sköpum á alþjóða­vett­vangi. Sitthvað er til í þessu en þó er sagan flókn­ari þegar vel er að gáð. Sam­staðan er ýkt, lítið gert úr því að semja þurfti til sig­urs og mis­skiln­ingi um frum­kvæði Íslend­inga í haf­rétt­ar­málum hampað. Til verður goð­sögn af ein­huga hetjum og hin raunsanna mynd hverfur í skugg­ann.“

„Til verður goð­sögn af ein­huga hetjum og hin raunsanna mynd hverfur í skugg­ann.“

Davíð gagn­rýndi Guðna fyrir orð hans í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni. „Guðni tal­aði um að þorska­stríðið væri goð­sögn, vit­leysa og hetju­sagnir þegar hann var að vinna að því að fá Icesave sam­þykkt. Þetta finnst mér ekki hægt. Eftir hrunið hefur sálin farið svo­lítið úr skorðum.“

Guðni benti á í umræðu um Icesave að Íslend­ingar hefðu í öllum til­vikum samið við Breta í Þorska­stríð­unum.

Guðni vill ekki tjá sig um nafn­lausan leið­ara blaðs keppi­nautar hans í for­seta­fram­boð­inu. Hann seg­ist vera í fram­boði á sínum eigin for­sendum: „Ég er í for­seta­fram­boði á mínum eigin for­sendum og þær snú­ast um að kynna mín eigin sjón­ar­mið og sýn á þetta emb­ætti.“

Leynd yfir höfundi leiðarans

Stundin hafði sam­band við Morg­un­blaðið til þess að fá úr því skorið hver hafi skrifað umræddan leið­ara. Rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, útgef­anda Morg­un­blaðs­ins, Haraldur Johann­es­sen, var ekki til tals en aðstoð­ar­rit­stjóri blaðs­ins, Karl Blöndal, vildi ekk­ert gefa upp um höf­und leið­ar­ans.

„Það er ekki gefið upp hver skrif­aði leiðar­ann“

„Það er ekki gefið upp hver skrif­aði leiðar­ann og það hefur aldrei verið gert.“

Er Davíð Oddsson kom­inn í leyfi?

„Já hann er kom­inn í leyfi.“

Hvenær var það?

„Ég var að koma í vinnu dag frá útlöndum þannig að ég er bara ekki viss.“

Hver veit hvenær Davíð fór í leyfi?

„Ég er bara ekki viss.“

Í ljós kom þó að einn starfs­maður Árvakurs var með það á hreinu hvenær Davíð fór í leyfi. Sú er starfs­manna­stjóri Árvakurs, Svanhvít Guð­munds­dóttir. Hún sagði í sam­tali við Stundina að Davíð hafi farið í leyfi föstu­dag­inn fyrir opin­berun Davíðs í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni. Það var 8. maí síð­ast­lið­inn.

„Ég geng ekki að neinu gefnu, en ef hins veg­ar ein­hver ann­ar verður fyr­ir val­inu til þess­ara starfa, myndi ég bara mæta til skrifta á sunnu­deg­in­um tutt­ug­asta­og­sjötta“

Það stang­ast hins vegar á við upp­lýs­ingar sem koma fram í við­tali við Davíð Oddsson sem birt­ist í sama miðli og hann rit­stýrir, Morg­un­blað­inu. Í við­tali sem birt­ist sama dag og Davíð Oddsson til­kynnti um for­seta­fram­boð sitt kemur fram að Davíð ætli að taka sér leyfi frá störfum sem rit­stjóri blaðs­ins en þó ekki strax eða eins og það var orðað „...á allra næstu dögum.“ Í grein Morg­un­blaðs­ins segir að Davíð sé ekki far­inn í leyfi: „Davíð tek­ur sér leyfi frá störf­um sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og mbl.is á allra næstu dög­um. Hann seg­ist eft­ir að ganga frá ein­hverj­um hlut­um áður. Spurður að því hvort hann sé al­far­inn nái hann kjöri, seg­ist hann ekki kom­inn svo langt.“

Verður Davíð forseti og ritstjóri Morgunblaðsins?

Davíð sagði frá því að hann hefði ekki enn ákveðið hvort hann yrði áfram rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, yrði hann kjör­inn for­seti. „Ég er ekki bú­inn að hugsa dæmið svo langt því ég tel nú að þetta geti gengið á hvern veg sem er. Þannig að ég er ekk­ert far­inn að gera slík­ar pæl­ing­ar. Ég ákveð það þegar og ef væri,“ sagði Davíð orð­rétt.

„Ég geng ekki að neinu gefnu, en ef hins veg­ar ein­hver ann­ar verður fyr­ir val­inu til þess­ara starfa, myndi ég bara mæta til skrifta á sunnu­deg­in­um tutt­ug­asta­og­sjötta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár