Studdi „skattatillögur í nafni lýðheilsu“ í gær – kallar slíkt „pyntingastefnu“ í dag

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Pírata og Vinstri græn fyrir „skatta­til­lögur í nafni lýð­heilsu“. Í gær stóð hann að nefnd­ar­á­liti þar sem lagt er til að tóbaks­gjald hækki umtals­vert, m.a. í nafni lýð­heilsu­sjón­ar­miða.

Studdi „skattatillögur í nafni lýðheilsu“ í gær – kallar slíkt „pyntingastefnu“ í dag

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lýsir yfir ein­dreg­inni and­stöðu við neyslu­stýr­ingu og skatta­hækk­anir á for­sendum lýð­heilsu­sjón­ar­miða í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Facebook í dag. Gagn­rýnir hann þar þing­menn Pírata og Vinstri grænna fyrir „skatta­til­lögur í nafni lýð­heilsu“. 

Í gær lagði Brynjar hins vegar sjálfur til, sem fram­sögu­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, að tóbaks­gjald yrði hækkað, meðal ann­ars á for­sendum lýð­heilsu­sjón­ar­miða. Í nefnd­ar­á­liti sem hann stendur að auk sex ann­arra þing­manna, er lögð til umtals­verð hækkun á tóbaks­gjaldi og sér­stak­lega tekið fram að stjórn­völd hafi um langa hríð „unnið að því mark­miði að draga úr heilsutjóni og dauðs­föll­um af völdum tóbaks með því m.a. að hvetja til minni tóbaksneyslu almenn­ings“ auk þess sem meðal ann­ars „lýð­heilsu“-rök standi til þess „að mis­ræmi gjalds miðað við hvert gramm tóbaks verði leið­rétt“. 

Í dag kallar Brynjar neyslu­stýr­ingu sem þessa „pynt­inga­stefnu“. Í stöðu­upp­færslu á Facebook seg­ist Brynjar ekki vilja gera lítið úr fíkni­vanda og bætir við: „Sumir glíma við mat­ar­fíkn og/eða syk­ur­fíkn, aðrir áfengis og jafn­vel spilafíkn og svo fram­vegis. Einu hug­myndir stjórn­mála­manna í glímunni við fíkn ein­stakra manna er að banna öllum neyslan eða hátt­sem­ina eða að skatt­leggja alla til dauðs. Þótt sumir borði of mikið af sykri og öðru óhollu, spili rass­inn úr bux­unum í fjár­hættu­spilum eða staupi meira en góðu hófi gegnir, er kannski óþarfi að banna hóf­semd­ar­mönnum í þessum efnum alla gleði eða okra á þeim til að draga úr henni.“ Þá skrifar hann: „Gæti kannski verið til bóta að menn bæru almennt meiri ábyrgð á sjálfum sér í stað þess að stjórn­mála­menn kvelji alla aðra. Ég get heldur ekki séð að þessi pynt­inga­stefna beri nokkurn árangur. Mér datt þetta svona í hug þegar ég sá skatta­til­lögur vinstri manna í dag í nafni lýð­heilsu. Hið frjáls­lynda umbótafl Pírata gaf Vg lítið eftir í ofát­inu af hlað­borði nýrra tekju­stofna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár