Stór skjálfti við Kötlu

Jarð­skjálfta­röð hefur orðið í Kötlu und­an­far­inn klukku­tíma. Skjálftar fund­ust vel í nágrenn­inu.

Stór skjálfti við Kötlu
Mýr­dals­jök­ull Síðasta stór­gos varð í Kötlu árið 1918. Mynd: Wikipedia

Jarð­hrær­ingar hafa verið í kringum eld­fjallið Kötlu í Mýr­dalsjökli síð­asta klukku­tím­ann. Skjálfti yfir fjóra á Richter fannst upp úr klukkan þrjú.

„Við erum að vakta þetta,“ segir starfs­maður Veð­ur­stof­unnar.

Fyrri gosHér sést hvar gosið hefur í Kötlu á síð­ustu árhund­ruðum.

Kristín Jóns­dóttir, sér­fræð­ingur Veð­ur­stof­unnar, segir eld­gos ekki vera hafið. Ekki sé grein­an­legur gos­órói.

„Við vitum ekki hvernig næsta gos verður, en ef við mælum gos­óróa þýðir það að kvika er komin nálægt yfir­borð­inu. Þetta er bara stór skjálfti og margir eft­ir­skjálftar og í raun­inni ekk­ert annað sem við sjáum. Það kom skjálfti á stærð­inni 4,3 klukkan 15.14. Svo er þetta eins og ger­ist yfir­leitt í kjöl­far svona skjálfta að það koma eft­ir­skjálftar,“ segir Kristín.

Skjálftar yfir 4 á Richter eru ekki algengir við Kötlu. Þó urðu tveir svo stórir skjálftar í lok ágúst síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár