Stefnir í klofning Samfylkingarinnar í Kópavogi

Kristján Guð­munds­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Kópavogs og áhrifa­maður í Sam­fylk­ing­unni þar, segir að það stefni í klofn­ing flokks­ins vegna umdeilda áforma um að bæj­ar­skrif­stof­urnar flytji í Norð­ur­turn Smára­lindar. Ása Richardsdóttir, bæj­ar­full­trúi flokks­ins, neitar að gefa upp afstöðu sína til máls­ins.

Stefnir í klofning Samfylkingarinnar í Kópavogi
Bæj­ar­full­trúi Ása Richardsóttir neitar að gefa upp afstöðu sína til flutn­ings bæj­ar­skrif­stofna. Mynd: Arnaldur

Það stefnir í að Sam­fylk­ingin í Kópavogi klofni og fjöldi félaga segi sig úr flokknum vegna mjög umdeildrar til­lögu um flutn­ing bæj­ar­skrif­stofu. Þetta kemur fram í máli Krist­jáns Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra Kópavogs og áhrifa­mann í Sam­fylk­ing­unni í Kópavogi. Að hans sögn sauð upp úr á almennum íbúa­fundi sem hald­inn var um hús­næði stjórn­sýslu Kópavogs síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Kristján segir að sam­fylk­ing­ar­fólk ótt­ist að Ása Richardsdóttir, annar tveggja full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, muni styðja áform bæj­ar­stjór­ans um flutn­ing bæj­ar­skrif­stof­unnar. Ása neit­aði að gefa upp afstöðu sína til máls­ins þegar Stundin leit­aði við­bragða hennar.

Fyrrverandi bæjarstjóri
Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Kristján Guð­munds­son segir að fjöldi manns hafi hótað því að segja sig úr Sam­fylk­ing­unni ef bæj­ar­full­trúar flokks­ins kjósi flutn­ing bæj­ar­skrif­stofu.

Stundin hefur áður fjallað um þá ólgu sem er innan bæj­ar­fé­lags­ins vegna áforma um kaup á nýju hús­næði í Norð­ur­turni við Smára­lind. Á meðal eig­enda Norð­ur­turns­ins er félagið Hjúpur, dótt­ur­fyr­ir­tæki Bygg­inga­fé­lags Gunnars Þor­láks­sonar og Gylfa Ómars Héð­ins­sonar (Bygg ehf.) sem var aðal­verk­taki turns­ins. Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, hefur barist hve harð­ast fyrir því að bæj­ar­skrif­stof­urnar verði fluttar í turn­inn. Nokkur tengsl eru á milli hans og Bygg, félagið styrkti hann fjár­hags­lega í próf­kjöri fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og sonur Gylfa, Hörður Már Gylfason, keypti í sumar ein­býl­is­hús bæj­ar­stjór­ans við Mánalind fyrir 75 millj­ónir króna.

Kosið verður um málið í bæj­ar­stjórn næsta þriðju­dag.

Óeining í flokkum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár