Sökuð um málamyndahjónaband: „Ég hafði ekkert borðað allan daginn út af spennu“

Útlend­inga­stofnun vill lög­reglu­rann­sókn á því hvort þau Van Hao Do og Thi Thuy Nguyen séu í mála­mynda­hjóna­bandi, vegna mynd­bands úr brúð­kaup­inu. Hún var svöng, ólétt en ham­ingju­söm.

Sökuð um málamyndahjónaband: „Ég hafði ekkert borðað allan daginn út af spennu“

„Ég hafði ekk­ert borðað allan dag­inn út af spennu,“ segir víetnömsk kona, sem Útlend­inga­stofnun vill láta und­ir­gang­ast lög­reglu­rann­sókn á þeim grund­velli að hún og eig­in­maður hennar hafi stofnað til mála­mynda­hjóna­bands til að tryggja henni land­vist­ar­leyfi á Íslandi.

Van Hao Do og Thi Thuy Nguyen eru bæði frá Víetnam en hann hefur verið á Íslandi frá barns­aldri og hefur var­an­legt land­vist­ar­leyfi. Hjónin giftu sig í des­em­ber 2013, þegar hún bar barn hans undir belti. Mat Útlend­inga­stofn­unnar byggir meðal ann­ars á mynd­bandi úr brúð­kaup­inu, þar sem starfs­menn stofn­unnar telja sig sjá að henni líði illa sem og upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum. Frétta­blaðið greindi fyrst frá mál­inu í gær. 

 „Ég skil ekki afhverju þeir eru að segja þetta“

Blaða­maður Stund­ar­innar hitti hjónin á heim­ili þeirra í Fells­múla í morgun og heyrði sögu þeirra.

Snemma árs 2013 kom Thuy tíma­bundið til lands­ins, en hún á fjöl­skyldu hér á landi og kynnt­ist Van Hao í gegnum frænda sinn, sem er einn af hans bestu vinum. Hao flutt­ist til lands­ins á svip­uðum tíma og frænd­inn, eða rétt eftir ald­ar­mótin og með þeim tókst fljótt vin­átta. Frændi Thuy bauð henni að koma til Íslands að starfa sem au pair fyrir vina­fólk hans. Nokkrum mán­uðum síðar hafði hún kynnst Hao. Fljót­lega fóru þau að draga sig saman og örfáum mán­uðum síðar gengu þau í hjóna­band. 

Síðar sendi Útlend­inga­stofnun beiðni til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að hefja rann­sókn á því hvort hjóna­bandið væri aðeins til mála­mynda. Dval­ar­leyfi Thuy hefði runnið út í apríl 2014, en þá var hún orðin ólétt og ást­fangin, að eigin sögn. 

Grunur Útlend­inga­stofn­unnar kvikn­aði hins vegar vegna mynd­bands úr brúð­kaup­inu þar sem starfs­menn stofn­un­ar­innar þótt­ust sjá að Thuy liði afar illa í eigin brúð­kaupi. Á þeim myndum sem blaða­maður hefur fengið að sjá úr brúð­kaup­inu er ekki annað að sjá en að hún sé glöð, enda brosir hún á þeim flestum. Hjónin taka það hins vegar fram að hún hafi stundum fundið fyrir lík­am­legri van­líðan, vegna þess að hún var barns­haf­andi, komin mánuð á leið og að berj­ast við heift­ar­lega ógleði og aðra með­göngu­kvilla. Í sam­tali við Stundina segir Thi Thuy einnig frá því að hún hafi verið svo spennt fyrir brúð­kaup­inu að hún hafi ekk­ert getað borðað þennan dag.

„Ég var ólétt og leið frekar illa lík­am­lega“

„Ég var ólétt og leið frekar illa lík­am­lega, ég hafði ekk­ert borðað allan dag­inn út af spennu. Þeir eru að rugla saman lík­am­legri van­líðan við and­lega van­líðan,“ segir Thuy.

Tveimur mán­uðum síðar, eða í febr­úar, voru hjónin boðuð í við­tal hjá Útlend­inga­stofnun þar sem þeirra hagir voru ræddir. Fimm mán­uðum síðar fengu þau bréf þar sem þeim var til­kynnt að hjóna­bandið væri enn talið gervi­hjóna­band. Í bréf­inu er búið að feit­letra texta sem segir að upp­lýs­ingar frá hjón­unum virð­ist vera rangar sem geti varðað sektum eða fang­elsi sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum. Þau benda hins vegar á að mis­ræmi í frá­sögn þeirra skýrist af túlk­un­ar­vanda og menn­ing­ar­mun á milli landa. Í Víetnam sé hefð fyrir því að brúð­gumi greiði fyrir brúð­kaupið og því hafi hún ekki getað svarað spurn­ingum um fjár­mögnun þess. Brúð­kaupið fór hins vegar fram í kirkju þann 28. des­em­ber 2013 og var veg­legt á þeirra mæli­kvarða. 

Hún bendir á að brúð­kaup í Víetnam séu ekki með nákvæm­lega sama sniði og hér á landi. Þar sé til dæmis ekki óal­gengt að brúðir hágráti í eigin brúð­kaupi. Hjónum telja að það sé ein­kenni­leg staða að opin­ber stofnun og blaða­menn rýni í til­finn­ing­legt ástand hennar í brúð­kaup­inu. 

Þá hefur Vísir einnig greint frá því að í bréfi Útlend­inga­stofn­unar til lög­reglu í des­em­ber 2014 sé stað­hæft að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum sé Thuy „mjög ung og barna­leg en mað­ur­inn hennar ófram­fær­inn“.

Samkvæmt 13. gr. útlend­inga­laga ber Útlend­inga­stofnun að kanna hvort um mála­mynda­hjóna­band sé að ræða ef annar ein­stak­lingur í hjú­skap er 24 ára eða yngri. Útlend­inga­stofnun hefur ekki vald til að rann­saka mál á sama hátt og lög­regla og hefur ekki aðgang að sjúkra­skýrslum fólks.

„Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda“

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Skúli Á. Sig­urðs­son, verk­efna­stjóri hæl­is­mála hjá Útlend­inga­stofnun, að þessar upp­lýs­ingar hafi feng­ist þegar Útlend­inga­stofnun hafi fengið upp­hring­ingu frá Land­spít­al­anum. „Þetta kom bara í sím­tali og það liggur fyrir í dag­bók­ar­færslu í okkar innri kerfum,“ segir hann. Hann seg­ist ekki geta svarað fyrir það hvaða heim­ildir aðrir hafa til að veita upp­lýs­ingar en stofn­un­inni bæri skylda til að bregð­ast við.

Ekki er vitað hver hringdi í Útlend­inga­stofnun en lík­lega var það gert þegar konan leit­aði þangað vegna fæð­ingu barns­ins, eða á með­göngu, við fóst­ur­skimun, en dóttir þeirra, Sandra, fædd­ist 3. sept­em­ber 2014. Ljóst er hins vegar að Land­spít­al­anum er óheim­ilt að veita Útlend­inga­stofnun slíkar upp­lýs­ingar um ein­stak­linga sem þangað leita.

„Mér fannst skrýtið að heyra að ég hafi verið barna­leg í fæð­ing­unni. Ég skil ekki afhverju þeir eru að segja þetta,“ segir hún. 

Bæði Thuy og Hao segja að staðan sem þau eru í sé mjög erfið, svo mjög að Thuy brestur í grát þegar hún er spurð um líðan þeirra. Þau hafa bæði orð á því að fjár­hags­legir erf­ið­leikar skerði mikið lífs­gæði þeirra en fjöl­skyldan fram­fleytir sér með launum Hao hjá end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­inu Hringrás. Henni hefur verið boðið starf við ræst­ingar en má ekki taka því, þar sem hún hefur ekki fengið dval­ar­leyfi. 

„Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda,“ svarar Hao spurður um hvað hann myndi gera ef allt færi á versta veg og Thuy yrði send úr landi.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár