Skiptar skoðanir um aukna þjónustu á Hjalla

Í þessum mán­uði geta for­eldrar barna í leik­skólum Hjalla­stefn­unnar skilað þvott­inum sínum í leik­skól­ann og sótt hann þangað nokkrum dögum síðar. Stutt er síðan þeim fór líka að bjóð­ast að sækja þangað kvöld­mat­inn í lok dags. Skiptar skoð­anir eru um það hvort þjón­usta af þessu tagi eigi að vera í boði hjá mennta­stofn­unum.  

Leikskólabörn
Leik­skóla­börn Skiptar skoð­anir eru um ágæti þess að for­eldrar geti látið þvo af sér þvott­inn og sótt sér mat í leik­skóla barna sinna. Mynd: Kristinn Magnússon

Vill halda markaðsstarfsemi utan menntastofnana

„Ég er hugsi yfir þessu. Stóri vand­inn er auð­vitað sá að við for­eldr­arnir erum að vinna of langan vinnu­dag. Það er vandi sem við ættum að vera að ein­beita okkur að því að leysa,“ segir Harpa Rut Hilm­ars­dóttir, móðir og verk­efna­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg. Hún er kenn­ari að mennt og vann sem slíkur í tólf ár. „Þá var ég orðin mjög hugsi yfir því hvað skól­inn er far­inn að taka mörg hlut­verk af heim­il­inu, löngu áður en við vorum farin að tala um þvotta og að elda kvöld­mat­inn. Í skól­anum fer fram sál­gæsla, þar læra börn kurt­eis­is­regl­urnar og mat­ar­sið­ina. Það er svo margt sem skól­inn sér nú orðið um, sem var hlut­verk fjöl­skyld­unnar fyrir ekki svo löngu síðan. Ef við erum búin að fá verk­taka í stóran hluta hlut­verka heim­il­is­ins, eldum ekki mat og þvoum ekki þvott og ölum börnin ein­ungis að litlu leyti upp, hvað erum við þá?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár