Sjálfstæðismenn segja aðra vilja hækka skatta

Sitjandi rík­is­stjórn hefur hækkað virð­is­auka­skatt á nauð­synja­vöru og reynt að leggja ný og íþyngj­andi gjöld á skatt­greið­endur, t.d. með inn­leið­ingu nátt­úrupassa og legu­gjalds á sjúk­linga. Nú vara sjálf­stæð­is­menn við því að aðrir flokkar muni hækka skatta. „Vinstri­menn virð­ast trúa því að það verði til verð­mæti við það eitt að hækka skatta,“ segir Bjarni Bene­dikts­son í nýrri kosn­inga­aug­lýs­ingu.

Sjálfstæðismenn segja aðra vilja hækka skatta

„Vinstri­menn virð­ast trúa því að það verði til verð­mæti við það eitt að hækka skatta,“ segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í kosn­inga­aug­lýs­ingu sem birt­ist á vef Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá hefur Samband ungra sjálf­stæð­is­manna dreift mynd af for­ystu­fólki Sam­fylk­ing­ar­innar, Vinstri grænna og Pírata á Facebook undir yfir­skrift­inni „Þau vilja hækka skatt­ana þína“. 

Eins og Stundin greindi frá í síð­ustu viku hefur bein skatt­byrði lág­tekju- og milli­tekju­fólks auk­ist á tíma­bil­inu 2012 til 2015 en ein­ungis minnkað hjá tekju­hæstu 20 pró­sentum lands­manna. Stafar þetta af þróun verð­lags og launa en jafn­framt af brott­falli auð­legð­ar­skatts og auknu vægi fjár­magnstekna sem skatt­lagðar eru minna en launa­tekjur. 

Bjarni hefur lagt áherslu á að skatt­byrðin auk­ist hjá lág­tekju- og milli­tekju­fólki vegna launa­hækk­ana sem tekju­hóp­arnir hafa fengið. Hins vegar hefur hann ekki gert athuga­semd við að skatt­byrði þeirra tekju­hæstu minnki á sama tíma jafn­vel þótt tekjur þess hóps hafi hækkað mest. 

Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, benti á það í pistli í gær að hjá um 80 pró­sentum sam­skatt­aðra hefðu álagðir beinir skattar hækkað hlut­falls­lega meira en tekjur á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili og það leitt til hækk­unar á skatt­byrði. „Hækkun skatt­byrði hjá 80% sam­skatt­aðra svarar til þess að þeir greiði 7 millj­örðum króna meira í skatt en verið hefði að óbreyttri skatt­byrði,“ skrif­aði Indriði. 

Virðisaukaskattur hækkaður

Um leið og skatt­byrði beinna skatta hjá miklum meiri­hluta skatt­greið­enda hefur auk­ist í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur virð­is­auka­skattur á nauð­synja­vöru á borð við mat verið hækk­aður.

Úr aug­lýs­inga­mynd Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013.

Þegar virð­is­auka­skattur á mat hækk­aði úr 7 pró­sentum upp í 11 pró­sent í árs­byrjun 2015 skil­aði hækk­unin sér nær umsvifa­laust út í verð­lagið. Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ komst að þeirri nið­ur­stöðu strax í júní 2015 að mat­væla­verð hefði hækkað meira en nam skatta­hækk­un­inni.

Tekju­aukn­ingin vegna hækk­unar neðsta þreps virð­is­auka­skatts­ins var meiri en nam tekju­tapi rík­is­sjóðs­ins vegna lækk­unar á efra þrepi skatts­ins sem leggst til dæmis á heim­il­is­tæki og bif­reiðar. Í heild­ina hafa því breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar á virð­is­auka­skatt­kerf­inu falið í sér skatta­hækkun. 

Bankaskattur hækkaður

Eins og bent er á í nýlegri grein­ingu Capacent á íslenskum banka­mark­aði hafa sér­stakir skattar á fjár­mála­fyr­ir­tæki hækkað gríð­ar­lega und­an­farin ár, en þar vegur þungt sú breyt­ing og hækkun á banka­skatt­inum sem sitj­andi rík­is­stjórn lög­festi í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins. Þar var skatt­lagn­ing­ar­vald­inu beitt til að afla rík­is­sjóði tekna upp á um það bil 90 millj­arða á tíma­bil­inu 2014 til 2016, en meg­in­til­gangur þess var að geta staðið undir höf­uð­stólslækk­unum hjá skuld­settum heim­ilum.

Sér­stakir skattar á fjár­mála­fyr­ir­tæki nema nú um 20 pró­sentum af rekstr­ar­kostn­aði bank­anna. Í grein­ingu Capacent er bent á að gjöldin hljóti að valda því að vextir hækki. „Reikna má með að vextir séu að ein­hverju leyti hærri vegna þess­ara gjalda. Þetta er sér­stak­lega áhuga­vert í ljósi umræðu um vanda ungs fólks að koma sér upp hús­næði. Hár vaxta­kostn­aður bitnar fyrst og fremst á ungu fólki og barna­fjöl­skyldum eða þeim þjóð­fé­lags­hópum sem skulda mest,“ segir þar. 

Mynd sem Samband ungra sjálf­stæð­is­manna dreifir á Facebook.

Stjórnarandstöðuflokkarnir vilja hækka tiltekna skatta

Á mynd Ungra sjálf­stæð­is­manna eru Sam­fylk­ingin, Píratar og Vinstri græn sögð vilja hækka skatta. Sam­fylk­ingin hefur talað sér­stak­lega fyrir því að virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu og veiði­gjöld hækki, tekju­skatts­lækk­anir verði aft­ur­kall­aðar, tek­inn verði upp hátekju­skattur og að raf­orku­skattur og auð­legð­ar­skattur verði end­ur­vak­inn.

Píratar hafa meðal ann­ars talað fyrir hækkun fjár­magnstekju­skatts, reglum um þunna eig­in­fjár­mögnun stór­fyr­ir­tækja og umhverf­is­sköttum.

Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð hefur einnig talað fyrir grænum sköttum og því að unnið sé gegn því að stór­fyr­ir­tæki komi óskött­uðum hagn­aði úr landi, en jafn­framt hvatt til hækk­unar gistin­átta­gjalds, lækk­unar trygg­inga­gjalds, grænum skatta­hvötum og skatt­lagn­ingu gjald­miðla­brasks.

Allir  þrír flokk­arnir hafa því vissu­lega talað fyrir til­teknum skatta­hækk­unum. Jafn­framt hafa þeir lagst gegn sköttum og skatta­til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar, t.d. legu­gjaldið á spít­ölum sem rík­is­stjórnin vildi leggja á sjúk­linga sam­kvæmt fyrsta fjár­laga­frum­varpi sínu haustið 2013 og nátt­úrupass­ann sem Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra kynnti til sög­unnar árið 2014 og fólst í að fólk yrði látið greiða gjald á hverju ári fyrir að fá að berja nátt­úruperlur augum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár