Sjálfstæðismenn ritskoða Facebook-þráð

Píratar gagn­rýndu sér­eigna­sparnað í athuga­semdum en ummæli þeirra voru fjar­lægð.

Sjálfstæðismenn ritskoða Facebook-þráð

Í Facebook-hópnum Pírata­spjallið fyrr í dag sýndi Snæbjörn Brynjars­son hvernig óþægi­leg ummæli á Facebook-síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru fjar­lægð. Rit­skoð­uðu ummælin voru við færslu þar kynnt var hvernig ungt fólk geti nýtt sér sér­eign­ar­sparnað til fast­eigna­kaupa. „Núna máttu nýta sér­eign­ar­sparnað þinn til fast­eigna­kaupa og það skatt­frjálst. Þetta hentar jafnt ungu fólki sem er að safna fyrir fyrstu íbúð­inni og þeim sem vilja létta byrð­arnar með því borga íbúða­lánið sitt hraðar upp. Fjár­festu í fram­tíð­inni, þinni fram­tíð,“ segir í færslu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Raunar eru einu athuga­semd­irnar sem eftir sitja spurn­ingar um hvers vegna færslur hafi verið fjar­lægðar.

„Þætti gaman að vita hversu mikið þessi 3 ára aðgerð hentar ungu fólki? Hversu margir yngri en 32 ára eiga meira en ein­hverja þús­und­kalla í sér­eign­inni? Hús­næð­is­mark­að­ur­inn (leigu og kaup) er í rugli og að reyna að telja ungu fólki að þetta sé ein­hvers­konar lausn á því er frá­leitt! Takið á vanda­mál­inu,“ skrif­aði Snæbjörn fyrr í dag.

Um einni mín­útu síðar var þessi færsla fjar­lægð. Af skjá­skotum að dæma var Snæbjörn ekki sá eini sem hafði verið rit­skoð­aður. Borg­ar­full­trúi Pírata, Halldór Auðar Svansson, gagn­rýndi þessa rit­skoðun á Pírata­þráðnum. „Mjög lélegt að standa í því að eyða mál­efna­legum ummælum. Ekki frels­issinnuð nálgun,“ skrif­aði Halldór.

Fyrir
Fyrir

Eftir
Eftir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár