Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lögðust gegn tillögu um framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu

Skúli Magn­ús­son, dós­ent við laga­deild HÍ, segir stjórn­ar­skrár­nefnd­inni hafa mis­tek­ist að „standa und­ir þeirri ábyrgð að við­halda ís­lenskri stjórn­skip­un og leysa úr þeim göll­um sem á henni eru“. Aðeins einn þing­maður mætti á fund háskól­ans um stjórn­ar­skrár­mál.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lögðust gegn tillögu um framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu

Stjórn­ar­skrár­nefndin sem skipuð var eftir síð­ustu þing­kosn­ingar hætti við að leggja fram til­lögu um fram­sal vald­heim­ilda í þágu alþjóða­sam­vinnu. Um er að ræða eitt af þeim fjórum mál­efnum sem ákveðið var að setja í for­gang í upp­hafi nefnd­ar­starfs­ins árið 2013. Að lokum lögð­ust hins vegar full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í nefnd­inni gegn því að til­laga að slíku ákvæði yrði lögð fram. 

Skúli Magn­ús­son, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, fór hörðum orðum um vinnu­brögð stjórn­ar­skrár­nefndar á fundi sem Laga­stofnun hélt í hátíð­ar­sal skól­ans í gær. Fullyrti hann að skortur á stjórn­ar­skrár­á­kvæði um fram­sal vald­heim­ilda gerði Íslandi erfitt fyrir í alþjóða­sam­starfi, sér­stak­lega í tengslum við EES-samn­ing­inn. Með því að falla frá til­lögu um slíkt fram­sal hefði stjórn­ar­skrár­nefnd­inni mis­tek­ist að „standa und­ir þeirri ábyrgð að við­halda ís­lenskri stjórn­skip­un og leysa úr þeim göll­um sem á henni eru“ og að þessu leyti fengi „vinna nefnd­ar­inn­ar fall­ein­kunn“.

„Vafamál um nákvæmar heimildir“

Fjallað er sér­stak­lega um fram­sal vald­heim­ilda í áfanga­skýrslu sem stjórn­ar­skrár­nefnd skil­aði af sér í júní 2014. Bent er á að erlendis hafi þró­unin verið með þeim hætti, í takt við aukið alþjóð­legt sam­starf eftir síð­ari heims­styrj­öld, að ríki hafi sett í stjórn­ar­skrár sínar ákvæði um fram­sal rík­is­valds til alþjóða­stofn­ana.

„Þótt slík heim­ild hafi talist vera fyrir hendi að vissu marki sam­kvæmt ólög­festum reglum íslenskrar stjórn­skip­unar, hefur aukin þjóð­rétt­ar­leg sam­vinna, einkum sam­vinna á sviði EES-samn­ings­ins á síð­ustu árum, skapað vafa­mál um nákvæmar heim­ildir og í sumum til­vikum orðið til­efni deilu­mála. Þetta mælir með því að reglur stjórn­skip­un­ar­innar um þetta efni séu afmark­aðar og skýrðar,“ segir í skýrsl­unni auk þess sem fram kemur að Alþingi hafi fjallað um að minnsta kosti sjö mál þar sem vafi hefur verið uppi um heim­ildir til fram­sals rík­is­valds á grund­velli EES-samn­ings­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár