Sigraðu kommentakerfið

Kommenta­kerfið verður afhent í húsa­kynnum Stund­ar­innar kl. 15 í dag. Sá sem á besta kommentið við þessa frétt fær spilið að gjöf.

Sigraðu kommentakerfið

Í dag afhendir Óli Gneisti Sól­eyj­ar­son, leikja­fræð­ingur, nýtt spil í húsa­kynnum Stund­ar­innar. Spilið nefn­ist #Kommenta­kerfið og byggir á raun­veru­legum athuga­semdum frá íslenskum net­verjum. Fjár­mögnun fyrir spilið fór fram á fjár­öfl­un­ar­síð­unni Karolina Fund og gekk vonum framar. Þar sem #Kommenta­kerfið byggir á raun­veru­legum athuga­semdum af frétta­miðlum fannst eig­endum Stund­ar­innar við hæfi að spilið yrði afhent á raun­veru­legum fjöl­miðli, sem einnig var stofn­aður með til­stuðlan hóp­fjár­mögn­unar á Karolina Fund. Spilið verður afhent kl. 15 á skrif­stofu Stund­ar­innar að Aust­ur­stræti 17. 

„Mig lang­aði fyrst bara að prufa hvort hægt væri að þýða Cards Against Humanity en mistókst. Síðan datt mér í hug að yfir­færa hug­mynd­ina á Útvarp Sögu, þar sem menn skipt­ust á að vera útvarps­maður og inn­hringj­andi. Sú hug­mynd hvarf mjög fljótt og í stað­inn kom Kommenta­kerfið.

Ég hafði nokkrum sinnum tekið þátt í svona fjár­mögn­unum. Þar á meðal þegar Stundin fór af stað. Það heill­aði mig mjög að þurfa ekki að skipta við banka. Með því að setja hug­mynd­ina á Karolina Fund gat ég bæði fjár­magnað spilið og kom­ist að því hvort hug­myndin næði til fólks. Það gekk rosa­lega vel að safna. Ég end­aði í næstum 150% af mark­inu og með því að leggja fram eigið sparifé líka gat ég prentað ágætt upp­lag,“ segir Óli Gneisti. „Þessa dag­anna er heim­ili mitt und­ir­lagt spilum og vinir og ætt­ingjar mínir eru að hjálpa mér að raða í kassa.“

Viltu vinna spil?

Einn hepp­inn net­verji á kost á að vinna ein­tak af spil­inu. Sá sem fær flest „like“ við athuga­semd sína í kommenta­kerf­inu við þessa frétt fær #Kommenta­kerfið að launum. Tilkynnt verður um sig­ur­veg­ara á Facebook-síðu Stund­ar­innar kl. 17 í dag. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár