Sigmundur Davíð riðar til falls - Bjarni talar um „ráðstafanir“

Bæj­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri fara fram á taf­ar­lausa afsögn for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son neitar að lýsa stuðn­ingi við hann, segir stöðu hans „óheppi­lega“ og nefnir mögu­legar „ráð­staf­anir“ svo rík­is­stjórnin geti haldið áfram.

Sigmundur Davíð riðar til falls - Bjarni talar um „ráðstafanir“
For­sæt­is­ráð­herra í þungum þönkum Var þungt hugsi á Alþingi í dag þar sem mót­mæl­endur söfn­uð­ust fyrir framan Alþing­is­húsið á sama tíma og farið var fram á afsögn hans inn­an­húss. Mynd: Kristinn Magnússon

Bæj­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, stærsta byggð­ar­kjarna kjör­dæmis Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fara fram á að hann segi af sér „án frek­ari tafa“. 

Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum fara jafn­framt fram á að skipt verði um for­sæt­is­ráð­herra. „Í ljósi aðstæðna er trú­verð­ug­leiki rík­is­stjórn­ar­innar brost­inn og getur hún því ekki starfað áfram undir for­ystu núver­andi for­sæt­is­ráð­herra,“ segir í yfir­lýs­ingu sjálf­stæð­is­manna á Akureyri.

Bjarni ræðir um „ráðstafanir“

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í sam­tali við sjón­varps­fréttir RÚV að Sig­mundur væri „í þröngri stöðu“: „Það er auð­vitað alltaf óheppi­legt þegar menn þurfa að bæta í skýr­ingar eftir að máli vindur fram,“ sagði Bjarni.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Kemur til lands­ins á morgun frá Flórída.

Hann neit­aði aðspurður að lýsa yfir stuðn­ingi við Sigmund og nefndi sér­stak­lega að hægt væri að grípa til „ráð­staf­ana“.

„... hvort rík­is­stjórnin treystir sér til þess að halda áfram, eftir atvikum eftir ein­hverjar ráð­staf­anir.“

„Svona spurn­ingum ætla ég ekk­ert að svara vegna þess að þannig ger­ast nú ekki hlut­irnir þar sem ég er í sam­starfi, að menn fái stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar eða van­trausts­yf­ir­lýs­ingar í fjöl­miðlum. Við þurfum ein­fald­lega að vinna þetta eins og almenni­legt fólk, setj­ast niður yfir stöð­una og meta það hvort við teljum okkur hafa nægi­legan stuðn­ing til þess að sinna þeim verk­efnum sem okkur voru falin og sett á dag­skrá. Hvað er til bragðs að taka, hvort rík­is­stjórnin treystir sér til þess að halda áfram, eftir atvikum eftir ein­hverjar ráð­staf­anir.“

Ræðir við Sigmund á morgun

Þrátt fyrir orð Bjarna um að hann lýsi ekki yfir stuðn­ingi eða van­trausti í fjöl­miðlum lýsti hann yfir stuðn­ingi við Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í ágúst 2014 þegar kraf­ist var afsagnar hennar vegna leka­máls­ins. 

Bjarni kemur frá Flórída á morgun, en hann missti af flugi. Hann hefur, sam­kvæmt fréttum RÚV, átt sam­töl við sam­flokks­menn sína í dag. Hann er vænt­an­legur til lands­ins á morgun og seg­ist munu ræða við Sigmund í kjöl­farið. 

Rík­is­stjórn­ar­fundur, sem átti að fara fram í fyrra­málið, hefur verið afboð­aður, sem og þing­fundir. 

„Í dag er mér misboðið“

Sig­mundur Davíð, sem býr í Reykja­vík, er þing­maður norð­aust­ur­kjör­dæmis, en hann flutti lög­heim­ili sitt á sveita­bæ­inn Hrafna­björg í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði.

Yfir­lýs­ing fram­sókn­ar­manna á Akureyri er afger­andi og harð­orð þess efnis að Sig­mundur víki strax: „Vegna þess trún­að­ar­brests sem við telj­um að skap­ast hafi milli for­sæt­is­ráð­herra og flokks­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins sem og lands­manna allra, skor­um við á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son að segja sig frá störf­um for­sæt­is­ráð­herra án frek­ari tafa.“

Þá segir fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi flokks­ins í bænum, Jóhannes Gunnar Bjarna­son, frá því að hann ljúki stuðn­ingi sínum við Fram­sókn­ar­flokk­inn nema Sig­mundur segi af sér:

„Ég hef verið félagi í Fram­sókn­ar­flokknum í mörg ár. Marg­sinnis hef ég tekið snerrur við fólk, varið bæði stefnu og for­ystu. Það hef ég ávallt gert með góðri sam­visku og talið mig hafa góðan mál­stað að verja. En í dag er mér mis­boðið. Svo mis­boðið að stuðn­ingi mínum við flokk­inn er lokið ef for­maður flokks­ins segir ekki af sér. Hann hefur unnið þrek­virki á mörgum sviðum en þessi heift­ar­legi dóm­greind­ar­brestur gagn­vart afland­s­pen­ingum gerir hann óhæfan til áfram­hald­andi setu. Það er ekki nokkur sála ómissandi og hvort sem litið er til þjóðar eða flokks þá er nið­ur­staðan aðeins ein. Biðjast afsök­unar og segja af sér. Það á reyndar við um aðra líka.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Kom af fundi með þing­flokki sínum í morgun. Fund­ur­inn var „heið­ar­legur“ en ekki tókst að ljúka honum.

Sigmundur biðst afsökunar

Sig­mundur hefur í dag í fyrsta sinn beðist afsök­unar á fram­göngu sinni í skatta­skjóls­mál­inu, þar sem hann hafði leynt eign­ar­haldi sínu og eig­in­konu sinnar á félagi sem stofnað var í skatta­skjóli og gerði kröfu upp á hálfan millj­arð í slitabú íslensku bank­anna. 

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir á blogg­síðu sinni að ekki sé nóg að biðj­ast afsök­unar.

„Nú hafa þús­undir manna komið saman á Aust­ur­velli til að mót­mæla Sigmundi Davíð. Að láta eins og ekk­ert hafi í skorist og að nóg sé að biðj­ast afsök­unar á mis­heppn­aðri fram­göngu í sjón­varps­þætti er mik­ill mis­skiln­ingur.“

Sig­mundur hefur verið stað­inn að ósam­ræmi og ósann­indum í frá­sögn sinni vegna máls­ins. Hann gekk út úr við­tali við sænskan rann­sókn­ar­blaða­mann og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son frétta­mann eftir að hafa verið stað­inn að ósann­indum og hefur í kjöl­farið gagn­rýnt RÚV harð­lega.

Um 15 þús­und manns komu á mót­mæli gegn Sigmundi á Aust­ur­velli í dag, sem eru þau fjöl­menn­ustu sem lög­regla hefur kynnst. Fyrir mót­mælin hafði Sig­mundur gert lítið úr því að hann tæki mark á fjölda mót­mæl­enda. „Það mætir nú ekki allt fólkið á Aust­ur­völl,“ sagði hann. 

Möguleikar Sigmundar greindir í slúðurdálki

Fjallað er um málið í slúð­ur­dálknum Orðinu á göt­unni á Eyjunni.is. Þar er vitnað til áhrifa­manna í stjórn­málum. Höfundur dálks­ins er ekki birtur, en Björn Ingi Hrafns­son, aðal­eig­andi Eyjunnar og góður vinur Sig­mundar Davíðs, hefur skrifað dálk­inn. Þar eru færð rök fyrir því að Sig­mundur geti ekki farið frá án þess að það felli rík­is­stjórn­ina og fleiri í íslenskum stjórn­málum: 

„Orðið á göt­unni innan beggja stjórn­ar­flokka er að staða for­manns og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé líka undir í mál­inu. Ef Sig­mundur Davíð þarf að segja af sér, munu þau líka þurfa að axla sín skinn. Það gangi ekki gagn­vart almenn­ingi og heims­press­unni að for­sæt­is­ráð­herra segi af sér af því að nafn hans hafi verið í Panama­skjöl­unum og við taki Bjarni Bene­dikts­son sem for­sæt­is­ráð­herra, en nafn hans sé nú reyndar þar líka!“

Jafn­framt segir í slúð­ur­dálknum að Sig­mundur geti sprengt allt í loft upp. „Einn mögu­leik­inn enn hefur verið nefndur. Hann er sá að for­sæt­is­ráð­herra sprengi allt í loft upp, rjúfi hrein­lega þing og boði til kosn­inga. Fari um landið og skýri sitt mál og ræði árangur rík­is­stjórn­ar­innar. Segi sem svo, að vita­skuld sé þetta mál erfitt og hafi valdið sér skaða, en hann vilji leggja öll spilin á borðið, hvetji aðra til að gera slíkt sama og leggi verk sín óhræddur í dóm kjós­enda.“

Sig­mundur neit­aði í dag að hafa íhugað afsögn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár