Sigmundur Davíð: „Það mætir nú ekki allt fólkið á Austurvöll“

„Ég hef hvorki íhugað það að hætta út frá þessu máli né ætla ég að hætta út frá þessu máli,“ segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son um mögu­lega afsögn eftir við­tal þar sem hann var stað­inn að ósann­indum, gekk út úr við­tali og reyndi að stöðva birt­ingu þess.

Sigmundur Davíð: „Það mætir nú ekki allt fólkið á Austurvöll“
Sig­mundur kemur af fundi Sig­mundur Davíð sést hér koma af fundi með þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fund­ur­inn var „heið­ar­legur“ en ekki tókst að klára hann. Mynd: Kristinn Magnússon

„Það mætir nú ekki allt fólkið á Aust­ur­völl,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Stöð 2 í hádeg­inu. 

„Það hafa alloft áður verið mót­mæli gegn rík­is­stjórn­inni af ýmsu til­efni. Það er ekk­ert nýtt að menn finni sér til­efni til að mót­mæla þess­ari rík­is­stjórn,“ bætti hann við þegar hann var spurður hvort hann myndi hlusta á mót­mæl­endur, ef þeir yrðu fjöl­mennir.

Hefur ekki íhugað afsögn

Sig­mundur var spurður að því í við­tal­inu við  hvort hann hefði íhugað afsögn. 

„Ég hef hvorki íhugað það að hætta út frá þessu máli né ætla ég að hætta út frá þessu máli,“ sagði hann.

Hann útskýrði að hags­munum þjóð­ar­innar væri best borgið með núver­andi rík­is­stjórn. „Rík­is­stjórnin er búin að ná mjög miklum árangri í alveg gríð­ar­lega mik­il­vægum málum og hún er að vinna áfram að mjög mik­il­vægum málum og það skiptir öllu máli að hún nái að klára það,“ sagði Sig­mundur og ítrek­aði að rík­is­stjórnin sæti áfram. „Með því er hags­munum þjóð­ar­innar best borgið. Fram­far­irnar á und­an­förnum árum hafa verið óvenju­stór­stígar og miklar og við erum á góðri leið með að bæta þar enn í.“

Hann kvaðst síðan vilja „láta kjós­endur dæma verk rík­is­stjórn­ar­innar“: 

„Svo verð ég að sjálf­sögðu, eins og aðrir stjórna­mála­menn, dæmdur í kosn­ingum af verkum mínum. Það er enda­laust hægt að leika þann leik að kalla eftir rann­sóknum til þess að ýta mönnum til hliðar.“

Sigmundur Davíð
Sig­mundur Davíð Gengur af fundi.

Horfði á viðtalið „með öðru auganu“

Sig­mundur Davíð sagði ekki hafa verið ný tíð­indi í gær, þegar birt var við­tal við hann, sem hann gekk út úr með orð­unum: „Þetta er fyrir neðan allar hellur“. Þar hafði hann verið stað­inn að ósann­indum um aðkomu sína að félagi sem skráð er á Tortóla. „Ég stóð mig ömur­lega í sjón­varps­þætti sem var sýnt í þessum þætti, enda kom alger­lega flatt upp á mig hvað menn­irnir voru að fara þegar þeir byrj­uðu að spyrja mig um allt annað en þeir höfðu boðað,“ sagði Sig­mundur. „Það kom á mig vegna þess að ég vissi ekki hvað þeir voru að fara. Byrjuðu að tala um skatta­skjól og slíkt og svo farið að gefa í skyn að ég hafi verið í slíku. Mjög mik­il­vægt að hafa í huga að þetta félag hefur aldrei verið í skatta­skjóli og er í raun heldur ekki aflands­fé­lag í þeim skiln­ingi að það hefur alltaf verið skattað hér á Íslandi.“

Aðspurður kvaðst Sig­mundur hafa horft á við­talið, sem hann gekk út úr, með öðru aug­anu. „Mér finnst aldrei gaman að horfa á sjálfan mig í við­tölum. Ég svona fylgd­ist með þessum þætti með öðru aug­anu, ef svo má segja. Og fannst auð­vitað svo­lítið sér­kenni­legt að sjá að menn skyldu ekki vitna í það sem þó er búið að koma fram. Manni líður alltaf illa að sjá sjálfan sig. Mér líður alltaf illa að sjá sjálfan mig í við­tölum, hvort sem það eru góð mál eða önnur. Hverjum líður ekki illa að sjá sjálfan sig í þess­ari aðstöðu?“

„Þrátt fyrir að ég hafi upp­lifað mig blekktan og verið svekktur yfir því, þá samt á maður ekki að láta það slá sig út af lag­inu.“

Hann biðst afsök­unar á „frammi­stöðu sinni“ í við­tal­inu. „Ég held að það sé alveg til­efni til þess að ég biðj­ist afsök­unar á frammi­stöðu minni í þessu við­tali, því að þrátt fyrir að ég hafi upp­lifað mig blekktan og verið svekktur yfir því, þá samt á maður ekki að láta það slá sig út af lag­inu.“

Hann seg­ist hafa „reynt að gera grein fyrir stað­reyndum öllum“. „Auðvitað hefði ég viljað að konan mín hefði ekki átt svona erlent félag.“ Fram hefur hins vegar komið að Sig­mundur átti helm­ing í félag­inu. „Bankinn skráði okkur bæði fyrir því. Eign­irnar voru alltaf kon­unnar minnar.“ Hins vegar eru eignir félags um leið eignir eig­enda félags.

Félag á Tortóla „aldrei í skattaskjóli“

Hann neit­aði því að hafa farið með ósann­indi í við­tal­inu við sænska blaða­mann­inn. 

„Nei , það er nú ekki rétt. Það var komið inn á þessar spurn­ingar út frá umræðu um skatta­skjól og skatt­svik, en eins og ég nefndi hefur þetta félag aldrei verið í skatta­skjóli.“ Sig­mundur hefur haldið því fram í málsvörn sinni að félagið hans á Tortóla hafi ekki verið í skatta­skjóli, þar sem greiddir hefðu verið skattar af því. Ekki er hins vegar hægt að fá end­an­lega stað­fest hvort svo hafi verið þar sem félagið er skráð á Tortóla.

„Þessu fyr­ir­tæki hefur aldrei verið leynt.“

„Þegar þeir hins vegar útskýra hvað þeir eru að meina, tek ég strax fram og ítreka það sem er auð­vitað aðal­at­riði máls­ins, að þessu fyr­ir­tæki hefur aldrei verið leynt. Það hafa alltaf verið greiddar skattar og skyldur af því,“ sagði hann.

Hins vegar hefur komið á dag­inn að Sig­mundur greindi ekki frá félag­inu í hags­muna­skrán­ingu alþing­is­manna, eins og honum bar. Hann var eig­andi félags­ins þar til hann seldi eig­in­konu sinni sinn hlut á einn banda­ríkja­dal dag­inn áður en breytt lög um aflands­fé­lög tóku gildi. Hann var því kröfu­hafi í íslensku bank­ana á sama tíma og hann starf­aði innan Indefence-hóps­ins, án vit­undar sam­herja sinna eða almenn­ings.

Forsætisráðherra og eiginkona hans
For­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans Að sögn hjón­anna stofn­aði „bank­inn“ félag á nafni þeirra beggja fyrir mis­tök.

Fólk sjái ekki hvað snúi upp og niður

Sig­mundur við­ur­kennir að það líti ekki vel út að stjórn­mála­maður teng­ist slíku félagi. „Hvað varðar hins vegar það almennt að ein­hver tengdur stjórn­mála­manni eigi svona félag, skráð í útlöndum, auð­vitað lítur það ekk­ert vel út. En það, engu að síður, verður að muna, að þetta er eitt­hvað sem var nán­ast almennt stundað fyrir fólk sem átti pen­inga.“

„Þetta er eitt­hvað sem var nán­ast almennt stundað fyrir fólk sem átti pen­inga.“

Fram hefur komið í fréttum Stund­ar­innar að faðir for­sæt­is­ráð­herra, Gunn­laugur Sig­munds­son, hefur einnig rík tengsl við skatta­skjól, en meðal ann­ars var félag hans í Lúx­em­borg fjár­magnað með 250 millj­óna króna láni frá Tortóla-félagi.

Sig­mundur kvaðst skilja reiði fólks, þar sem það ætti erfitt með að átta sig á því hvað sneri upp og hvað niður.

„Ég skil mjög vel í ljósi þess hvernig umræðan hefur verið að menn séu sumir hverjr reiðir. En margir held ég að séu fyrst og fremst að velta fyrir sér hvað snúi upp eða niður í mál­inu,“ segir Sig­mundur Davíð. „Þess vegna er mik­il­vægt að stað­reyndir máls­ins kom­ist til skila og því sýni ég mjög mik­inn skiln­ing.“

Hlakkaði til vantrauststillögu

For­sæt­is­ráð­herra mun svara fyrir sig í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi klukkan 15 í dag. Stjórn­ar­and­staðan hefur boðað að hún muni leggja fram van­traust á Sigmund og rík­is­stjórn hans, og einnig til­lögu um þing­rof og kosn­ingar.

Sig­mundur svar­aði van­traust­til­lög­unni í útvarps­þætt­inum Sprengisandi fyrir rúmri viku með því að hann hlakk­aði til hennar: „Ja, ég vona að þau guggni ekki á að koma með þetta van­traust. Nú eru pásk­arnir komnir og ég er far­inn að hlakka til næsta áfanga, sem er van­traust­til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár