Segir skrifstofu flokksins hafa skoðað mál Össurar vandlega

Össur Skarp­héð­ins­son not­aði ráð­herra­net­fang sitt þegar hann bað nýbúa um að kjósa sig í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2012. Skýr­ingar hans á mál­inu eru ásætt­an­legar að mati Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur, for­manns flokks­ins. Ásakanir um óeðli­lega smölun voru skoð­aðar „vand­lega“ en ekki haft sam­band við aðila sem sögð­ust hafa upp­lýs­ingar um málið.

Segir skrifstofu flokksins hafa skoðað mál Össurar vandlega

Oddný G. Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að skrif­stofa flokks­ins hafi kannað vand­lega hvort ásak­anir um óeðli­lega smölun nýbúa og lof­orð um rík­is­borg­ara­rétt í próf­kjörum Sam­fylk­ing­ar­innar ættu við rök að styðj­ast. Við þessa yfir­ferð hafi ekk­ert óeðli­legt komið í ljós. Þá hafi ekki verið talin þörf á að kalla saman svo­kall­aða sátta­nefnd flokks­ins vegna máls­ins. 

For­mað­ur­inn svarar ekki spurn­ingum Stund­ar­innar um fram­kvæmd athug­un­ar­innar, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum blaðs­ins var ekki haft sam­band við þá aðila sem greindu frá smöl­un­inni eða sögð­ust búa yfir upp­lýs­ingum um að nýbúar hefðu verið blekktir í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir fjórum árum. 

Bað nýbúa um atkvæði
Bað nýbúa um atkvæði Össur Skarp­héð­ins­son not­aði ráð­herra­net­fangið sitt þegar hann bað nýbúa um að kjósa sig í próf­kjöri árið 2012.

Eins og Stundin og Kvenna­blaðið greindu frá í byrjun sept­em­ber hafði Össur Skarp­héð­ins­son sam­band við nýbúa í gegnum ráð­herra­net­fang sitt árið 2012 og bað þá um að kjósa sig í próf­kjör­inu í Reykja­vík. Haft hefur verið eftir Össuri að ráð­herra­net­fangið hafi verið það eina sem hann hafði aðgang að á þessum tíma, en ekki hefur komið fram hvers vegna hann hafði ekki aðgang að alþing­is­net­fangi sínu eða var ófær um að stofna nýtt tölvu­póst­fang. Oddný Harð­ar­dóttir seg­ist þó taka skýr­ingar Össurar gildar.

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið segir hún: „Um notkun fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra á tölvu­póst­fangi fyrir fjórum árum, hefur hann gefið þær skýr­ingar að hann hafi ekki haft yfir öðru net­fangi að ráða á þeim tíma. Um leið og þær skýr­ingar eru teknar gildar, verður brýnt fyrir þeim sem taka að sér trún­að­ar­störf á vegum Sam­fylk­ing­ar­innar að gæta þess að skilja á milli einka­notk­unar á tölvu­pósti og opin­berrar notk­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár