Segir Ríkisútvarpið gefa sér forsendur í fréttaflutningi af skattamálum Alcoa

Alcoa á Íslandi hefur aldrei greitt fyr­ir­tækja­skatt á Íslandi en vaxta­greiðslur þess til móð­ur­fé­lags­ins í Lúx­em­borg hlaupa á tugum millj­arða. Fjár­mála­ráð­herra segir ekki liggja fyrir að þarna sé „verið að sjúga út vexti sem eru langt umfram mark­aðsvexti“ til að fyr­ir­tækið þurfi ekki að greiða skatta.

Segir Ríkisútvarpið gefa sér forsendur í fréttaflutningi af skattamálum Alcoa

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, telur að menn gefi sér for­sendur í umræð­unni um stór­iðju­fyr­ir­tæki og skatt­greiðslur þeirra á Íslandi. 

„Mér finnst menn gefa sér um of í umræð­unni að þegar kemur að stór­iðju­fyr­ir­tækjum liggi það með ein­hverjum hætti fyrir að þar sé verið að sjúga út vexti sem eru langt umfram mark­aðsvexti. Ég hef bara ekki séð þessi gögn,“ sagði Bjarni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag þegar Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurðu ráð­herra um setn­ingu reglna um þunna eig­in­fjár­mögnun.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Alcoa fyrir árið 2015 greiddi það ekki tekju­skatt á Íslandi í fyrra þrátt fyrir að velta rúm­lega 90 millj­örðum króna. Er þetta vegna þess að skuldir fyr­ir­tæk­is­ins eru metnar hærri en eignir þess hér á landi. Raunar hefur fyr­ir­tækið aldrei greitt fyr­ir­tækja­skatt á Íslandi enda ekki skilað hagn­aði hér.

Eins og Stundin greindi frá í fyrra hefur Alcoa á Íslandi greitt móð­ur­fé­lagi sínu í Lúx­em­borg tæp­lega 57 millj­arða króna í vexti frá bygg­ingu álvers­ins á Reyð­ar­firði. Á sama tíma hefur bók­fært tap numið rúm­lega 52 millj­örðum króna. Rúmlega 4,5 millj­arða króna munur er á greiðslum Alcoa á Íslandi til móður­félags síns í Lúx­em­borg og tap­rekstri fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2013. Skýr­ing­una á bók­færðu tapi má því rekja að öllu leyti, og rúm­lega það, til greiðsln­anna til móð­ur­fé­lags­ins í Lúx­em­borg. Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri hefur sagt tapið vera til­búið til að kom­ast hjá skatt­greiðslum en tals­menn Alcoa hafa full­yrt að það megi rekja til mik­illar fjár­fest­ingar á Íslandi. 

„Ég tek eftir því að Rík­is­út­varpið virð­ist nán­ast gefa sér að það séu óeðli­lega háir vextir þegar þeir eru 60 millj­arðar yfir tíu ára tíma­bil, en mér finnst ekki sjálf­gefið að í því liggi ein­hver stað­fest­ing á því í þeirri fjár­hæð einni og sér að vaxta­pró­sentan sé umfram það sem hægt hefur verið að sækja á hinum almenna mark­aði,“ sagði Bjarni í umræð­unum í dag. „En um það snýst þetta. Um það að menn kom­ist ekki upp með að lána dótt­ur­fyr­ir­tækjum sínum á kjörum sem eru langt umfram það sem sama fyr­ir­tæki gæti fengið úti á mark­aðnum, notað þessi háu kjör til að lág­marka hagn­að­inn á Íslandi og koma sér undan tekju­skatts­greiðslum. Ég vil berj­ast gegn því að menn geti gert þetta. Þess vegna hef ég lagt fram þessar til­lögur. Þær eru almennar, þær eru í sam­ræmi við það sem ann­ars staðar hefur verið gert.“ 

Þorstein Víglunds­son, fram­bjóð­andi hjá Viðreisn og fyrrum fram­kvæmda­stjóra Samáls, full­yrti í Viku­lok­unum á dög­unum að alþjóð­leg fyr­ir­tæki spil­uðu þennan leik á hverjum degi, þ.e. þá aðferð að koma rekstr­ar­hagn­aði úr landi án þess að þurfa að greiða til­hlýði­lega skatta af honum sem kall­ast á ensku „trans­fer mispricing“.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, skrifar á Facebook í dag að frum­varp frá henni um að settar verði reglur um þunna eig­in­fjár­mögnun hafi legið frammi á Alþingi frá 2013. „Því var vísað til rík­is­stjórnar á sínum tíma en aldrei kom neitt þar til í vor - þá lagði ég frum­varpið að nýju fram end­ur­skoðað. Nú haustið 2016 hefur efna­hags­nefnd loks­ins fengið til­lögur frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu um þetta efni. Jákvætt skref eftir langan tíma,“ skrifar hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár