„Salsa er okkar einkatungumál“

Ást­hildur og Juan döns­uðu fyrst saman salsa í Kólumbíu fyrir ell­efu árum. Þau hafa ekki stoppað síðan og bjóða hvort öðru upp í dans á hverjum degi. Salsa er þeirra lausn við hvers­dags­leiða, lyk­ill­inn að því að halda í leik­gleð­ina í líf­inu og ást­ina sjálfa.

„Salsa er okkar einkatungumál“
Grípa mómentið „Hann er dug­legri en ég að finna mómentið. Ég er stundum föst inni í höfð­inu á mér. Hans leið til að kippa mér út úr því og láta mig brosa aftur er að dansa,“ segir Ást­hildur Val­týs­dóttir um mann­inn sinn, Juan Camilo Román Estrada. Þau dansa helst á hverjum degi. Mynd: Kristinn Magnússon

Í landi stirð­busa og hliðar-saman-hliðar brenna senni­lega fáir fyrir salsa á sama hátt og þau Ást­hildur Val­týs­dóttir og Juan Camilo Román Estrada gera. Þau dansa salsa því sem næst á hverjum degi. Stundum taka þau stuttan snún­ing eftir morg­un­mat­inn, áður en þau halda út í dag­inn. Þau dansa á meðan þau elda, til að hvetja sig áfram í heim­il­is­stör­f­unum og halda sín einka-salsa-partí um helgar sem engum er boðið til nema þeim tveimur. „Mér finnst að hjóna­band eigi að vera þannig að maður gifti sig á hverjum degi. Sér­stak­lega þegar fólk er búið að vera lengi saman, eins og við. Maður þarf að skapa aðstæð­urnar til að kveikja aftur þessar sterku ást­ar­til­finn­ingar sem maður finnur í upp­hafi sam­bands. Allir geta fundið eitt­hvað sjar­mer­andi í hvers­deg­inum. Hjá okkur er það dans­inn,“ segir Juan.

Þau kynnt­ust fyrir tíu árum í Medellin, höf­uð­borg Kólumbíu. Þar bjuggu þau saman í eitt og hálft ár, þar giftu þau sig og áttu margar eft­ir­minni­legar stundir. Oftar en ekki kom salsa við sögu, enda órjúf­an­legur hluti af menn­ingu svæð­is­ins. Þau fluttu til Íslands einu og hálfu ári eftir að þau giftu sig. Hér tengja fáir við ást þeirra á salsa. „Salsa er okkar einka­tungu­mál á ein­hvern hátt og það eru okkar for­rétt­indi að skilja það bæði,“ segir Juan. „Það að eiga salsa saman er eitt af því sem færir okkur nær hvort öðru og gerir einka­líf okkar skemmti­legt. Gefur okkur krydd í lífið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár