Ríkt fólk líklegra til að vera siðlaust

Sjö rann­sóknir vís­inda­manna benda til þess að meiri líkur séu á að ein­stak­lingar í efri stéttum sam­fé­lags­ins sýni sið­lausa hegðun en þeir sem eru lægra settir. Eru tekju­háir lík­legri til að brjóta umferð­ar­lög, stela sæl­gæti af börnum, svindla í spilum og ljúga.

Ríkt fólk líklegra til að vera siðlaust
Ekki sama Jón og séra Jón. Hefur auður áhrif á hug­ar­far?

Í rann­sókn sem birt­ist í vís­inda­tíma­rit­inu PNAS [e. Proceedings of the National Academy of Sciences] kemur fram að tekju­háir ein­stak­lingar eru mun lík­legri til að sýna sið­lausa hegðun en tekju­lágir. Er nið­ur­staðan jafn­framt sú að tekju­háir séu lík­legri til að brjóta umferð­ar­lög, stela sæl­gæti af börnum, svindla í spilum og ljúga.

Dýrir bílar brjóta lög

Rann­sóknin fór bæði fram inni á rann­sókn­ar­stofum og úti í sam­fé­lag­inu. Í fyrstu tveimur til­raun­unum var fylgst með því hvort menn fylgdu umferð­ar­lögum og sýndu almenna kurt­eisi í akstri. Var þeim skipt í fimm flokka eftir verði bíl­anna sem þeir óku á, allt frá not­aðri Toyotu Corollu upp í glæ­nýjan Mercedes Bens. Í fyrstu til­raun­inni var athugað hvort öku­menn hlýddu stöðv­un­ar­skyldu á gatna­mótum með STOP-skilti. Af þeim 250 bílum sem fylgst var með brutu 8% öku­manna í ódýrasta flokknum lögin, en 30% í þeim dýrasta.

Nið­ur­staðan var svipuð þegar fylgst var með því hvort bílar stopp­uðu fyrir gang­andi veg­far­anda á gang­braut. Af þeim 150 bílum sem fylgst var með stopp­uðu allir bíl­arnir í ódýrasta flokknum, en þeim sem ekki stopp­uðu fjölg­aði hratt eftir því sem bíl­arnir voru fínni, og í dýrasta flokknum stopp­uðu aðeins 54% öku­manna.

Vel stæðir stela

Önnur könnun sem vís­inda­menn­irnir gerðu var inni á rann­sókn­ar­stofu, þar sem 105 ein­stak­lingar voru spurðir spurn­inga varð­andi sið­ferði þeirra. Dæmi um spurn­ingar voru hvort þátt­tak­endur myndu stela, til dæmis mat af veit­inga­stað sem þeir innu á, pappír af skrif­stof­unni og svo fram­vegis. Voru tekju­hærri ein­stak­lingar mun lík­legri til þess að stunda þjófnað og stað­festu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar þá kenn­ingu vís­inda­manna að „hærri tekjur og stétt­ar­staðar eykur mjög lík­urnar á sið­leysi í ákvarð­ana­töku.“

Í annarri könnun af svip­uðum toga voru tekju­háir þátt­tak­endur mun lík­legri til að svindla í ten­inga­spili, þar sem pen­ingar voru í vinn­ing, en tekju­lægri. Einnig kom fram að tekju­háir voru lík­legri til að taka nammi úr skál sem þeim var sagt að væri handa börnum í annarri til­raun, en þeir sem voru tekju­lægri.

Í grein­inni, sem vís­inda­menn­irnir birtu árið 2012, skrif­uðu þeir meðal ann­ars að græðgi væri vissu­lega til staðar í öllum stéttum, en að græðgi, sem helsti hvat­inn í lífi fólks, virt­ist ekki vera jafnt skipt eftir þjóð­fé­lags­stöðu og tekjum.

Heimild:
“Higher Social Class Predicts Increased Unethical Behavior,” Paul K. Piff, Daniel M. Stancata, Stéphane Côté, Rodolfo Mendoza-Denton, and Dacher Keltner, Proceedings of the National Academy of Sciences (2012)

(Umfjöllun PBS um málið.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umferðarmenning

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár