Ríkið kaupir Geysissvæðið

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra und­ir­rit­aði í dag samn­ing um kaup rík­is­ins á Geys­is­svæð­inu. Landið lætur mjög á sjá eftir sum­arið og er á rauðum lista Umhverf­is­stofn­unar yfir svæði sem eru í veru­legri hættu á að glata vernd­ar­gildi sínu. Kaupverð er enn óljóst en land­eig­endur hafa metið svæðið á þrjá millj­arða króna.

Ríkið kaupir Geysissvæðið

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Hjör­leifur B. Kvaran, lög­maður Land­eig­enda­fé­lags Geysis ehf., und­ir­rit­uðu í dag samn­ing um kaup rík­is­ins á öllum eign­ar­hluta land­eig­enda­fé­lags­ins innan girð­ingar á Geys­is­svæð­inu. Frá þessu er greint á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í dag. Sem kunn­ugt er hafa miklar deilur hafa staðið um Geys­is­svæðið und­an­farin ár eftir að meiri­hluti land­eig­enda, sem mynda Land­eig­enda­fé­lag Geysis, ákvað að hefja þar gjald­töku árið 2014. Ríkið, sem á um þriðj­ungs­hlut í svæð­inu, lét leggja lög­bann á félagið vegna inn­heimt­unnar og fór málið alla leið í Hæsta­rétt, þar sem lög­bannið var stað­fest. Í kjöl­farið gerði félagið íslenska rík­inu til­boð í þess hlut í svæð­inu, en til­boð­inu var hafnað. Samkvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins frá því í apríl síð­ast­liðnum hljóð­aði til­boðið upp á um millj­arð króna. Land­eig­endur mátu því svæðið allt á um þrjá millj­arða króna.

Kaupsamningur undirritaður
Kaup­samn­ingur und­ir­rit­aður Hjör­leifur B. Kvaran, lög­maður Land­eig­enda­fé­lags Geysis ehf, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra und­ir­rita samn­ing­inn.

Tilboði land­eig­enda var hafnað á þeim for­sendum að ríkið væri ekki til við­tals um að selja eign­ar­hlut sinn, heldur vildi ríkið ganga til við­ræðna við Land­eig­enda­fé­lag Geysis um að kaupa hlut land­eig­enda. Þeir vilja hins vegar ekki selja.

Óvíst er hvað ríkið mun greiða land­eig­enda­fé­lag­inu fyrir svæðið en sam­kvæmt samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var í dag verður kaup­verð eign­ar­hlut­ans lagt í mat þriggja dóm­kvaddra mats­manna. 

Svæðið legið undir skemmdum

Fyrir liggur deiliskipu­lag og verð­launa­til­laga um upp­bygg­ingu hvera­svæð­is­ins sem hefur nátt­úru­vernd, fræðslu, öryggi og betri dreif­ingu gesta að leið­ar­ljósi. En á meðan óvissa er uppi um hver beri ábyrgð á svæð­inu í heild sinni hefur reynst erfitt að hrinda af stað mark­vissum fram­kvæmdum. Geysir er á rauðum lista Umhverf­is­stofn­unar yfir svæði sem eru í veru­legri hættu á að glata vernd­ar­gildi sínu. 

Alls hefur 115 millj­ónum verið úthlutað úr Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða vegna Geysis, til Umhverf­is­stofn­unar og Blá­skóga­byggðar. „Samn­ing­ur­inn markar tíma­mót því hann auð­veldar heild­stæða upp­bygg­ingu á svæð­inu í sam­ræmi við nið­ur­stöðu í hug­mynda­sam­keppni um Geys­is­svæðið sem haldin var fyrir nokkrum miss­erum,“ segir í frétt fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Stundin ræddi við Garðar Eiríks­son, sem hefur talað fyrir hönd land­eig­enda, í haust. Hann sagði þá að það þurfi sex til átta hund­ruð millj­ónir króna í upp­bygg­ingu á svæð­inu og að það þurfi að manna svæðið, nán­ast allan sól­ar­hring­inn. Hann sagði stöð­una afar slæma á Geysi eftir sum­arið. „Þetta verður bara rauð­ara og rauð­ara. Álagið verður bara meira og meira og ríkið beitir því ofbeldi sem það hefur beitt aðra land­eig­endur og heldur þessu í gísl­ingu.“ 

Land­eig­endur hafa ekki haft áhuga á að frið­lýsa svæðið, en við frið­lýs­ingu bæri ríkið laga­lega skyldu til að vernda svæðið. „Það er ekki nokkur ástæða til að frið­lýsa hluti sem hægt er að semja um umgjörð á. Við höfum ekki talið neina þörf á því,“ sagði Garðar. „Af hverju á að stofn­ana­væða allt Ísland?“ spurði hann. „Er ekki betra að búa til ein­hverja umgjörð og semja við einka­að­ila sem geta þá hugs­an­lega gert þessa hluti fljótar og með betri hætti en rík­is­batt­er­íið? Ég er ein­fald­lega á móti því að rík­i­s­væða allt. Það verður þá hálf­gert komm­ún­ista­fyr­ir­komu­lag á þessu.“ 

Ekki kemur fram í frétt fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hvort ríkið hygg­ist nú frið­lýsa svæðið, en Umhverf­is­stofnun hefur mælt með að það verði gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár