Tyrkir halla sér að Rússum

Sam­skipti milli Rúss­lands og Tyrk­lands hafa verið stirð síðan rúss­nesk flug­vél var skotin niður yfir Tyrk­landi í fyrra. Leið­togar ríkj­anna vinna hins vegar í því að bæta sam­skiptin á milli land­anna og er fyrsti fundur þeirra síðan atvikið átti sér stað liður í því.

Leiðtogarnir
Leið­tog­arnir Frá fundi Vladimir Pútín og Recep Tayyip Erdoğan í Tyrk­landi árið 2012.

Erdogan, for­seti Tyrk­lands, mun fara til Rúss­lands á fund Vladimir Pútín, en fund­ur­inn er þeirra fyrsti síðan rúss­nesk þota var skotin niður yfir Tyrk­landi á síð­asta ári.

„Sendi­herr­ann hefur til­kynnt okkur að vor kæri for­seti (Erdogan) hafi stað­fest að hann muni verða í Pét­urs­borg þann 9. ágúst,“ höfðu rúss­neskar frétta­stofur eftir Mihmet Simsek, full­trúa Erdogans. Stjórn­völd í Tyrk­landi segja að Erdogan og Pútín hafi ákveðið að hitt­ast áður en G20 ráð­stefnan verður haldin í Kína í sept­em­ber, þar sem leið­togar 20 stærstu iðn­ríki heims munu hitt­ast. Simsek fór sjálfur til Moskvu til þess að hitta rúss­neskan starfs­bróður sinn, Arkady Dvorkovich, í til­raun til þess að „leiða ástandið til lykta og bæta sam­skipti þjóð­anna eins fljótt og auðið er og á meiri hraða.“

Eftir að flug­vélin var skotin niður and­aði köldu á milli ríkj­anna tveggja og lét rúss­neskur emb­ætt­is­maður hafa eftir sér að atvikið væri eins og „hnífur í bakið“. Yfirvöld í Moskvu hins vegar til­kynntu í síð­asta mán­uði að Erdoğan hefði beðið Pútín afsök­unar á atvik­inu. Í kjöl­farið aflétti Rússland ýmsum efna­hags­þving­unum, banni við inn­flutn­ingi á tyrk­neskum vörum og far­þega­flugum til lands­ins.

„Það eru engar líkur á því að Tyrkland muni ganga í Evr­ópu­sam­bandið á næstu ára­tugum.“

Refsi­að­gerð­irnar höfðu komið hart niður á tyrk­neska ferða­manna­iðn­að­inum, sem bygg­ist að miklu leyti á ferða­löngum frá Rúss­landi. Pútín á svo að hafa hringt í Erdoğan eftir mis­heppnað valda­rán í Tyrk­landi fyrr í mán­uð­inum og lýst yfir stuðn­ingi við hann.

Aðild­ar­við­ræður Tyrk­lands að Evr­ópu­sam­band­inu eru í upp­námi, eftir umfangs­miklar hreins­anir og hand­tökur í land­inu í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar. David Cameron, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, var einn helsti tals­maður þess að Tyrkir gengu í sam­bandið. Honum hefur hins vegar snú­ist hugur. „Það eru engar líkur á því að Tyrkland muni ganga í Evr­ópu­sam­bandið á næstu ára­tugum,“ sagði hann í vik­unni. „Þú getur ekki fundið neinn sér­fræð­ing í þessum málum sem heldur því fram að það muni ger­ast, því það mun ekki ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdaránið í Tyrklandi

ÚttektValdaránið í Tyrklandi

Afturför Tyrk­lands

Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seti og fylg­is­menn hans eru að umturna Tyrk­landi fyrir opnum tjöldum. Þúsundir dóm­ara og opin­berra starfs­manna hafa verið reknir úr störfum sínum sak­aðir um óljós tengsl við and­stæð­inga for­set­ans. Þá hafa hátt í þús­und blaða­menn verið sóttir til saka fyrir skrif sín. For­set­inn íhugar að taka upp dauða­refs­ingar að nýju. Íbúar Istanbúl reyna að fóta sig í ólíkum heimi nú þegar ár er liðið frá valda­ránstil­raun­inni. Jón Bjarki Magn­ús­son heim­sótti borg­ina í byrjun júní.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár