10 óhugnanlegar staðreyndir um alræðistilburðina í Tyrklandi

Tyrknesk stjórn­völd hafa brotið á mann­rétt­indum fólks og við­haft grófa alræð­istil­burði eftir að gerð var mis­heppnuð valda­ránstil­raun um miðjan júlí­mánuð. Amnesty International hefur tekið saman óhugn­an­lega töl­fræði um ástandið.

Tyrknesk stjórn­völd hafa brotið á mann­rétt­indum fólks og sýnt grófa alræð­istil­burði eftir að mis­heppnuð valda­ránstil­raun var gerð um miðjan júlí­mánuð.

Rann­sak­endur á vegum mann­rétt­inda­sam­tak­anna Amnesty International hafa dvalið í Istanbúl og Ankara und­an­farnar vikur og skrá­sett þau mann­rétt­inda­brot sem framin hafa verið.

Á vef Íslands­deildar Amnesty International er að finna óhugn­an­legar tölu­legar upp­lýs­ingar um ástandið, eina stað­reynd um valdaránið sjálft og 10 tölu­legar stað­reyndir um þær aðgerðir sem stjórn­völd hafa gripið til í kjöl­farið:

131

fjöl­miðli eða útgáfu­fyr­ir­tæki hefur verið lokað. Þar á meðal eru 3 frétta­stofur, 16 sjón­varps­stöðvar, 23 útvarps­stöðvar, 45 dag­blöð, 15 tíma­rit og 29 útgáfu­fyr­ir­tæki.

89

Að minnsta kosti 89 hand­töku­skip­anir hafa verið gefnar út á hendur frétta­mönnum og fleiri en 40 hafa verið færðir í varð­hald.

260

Minnst 260 manns voru drepnir og fleiri en 2 þús­und særð­ust í valda­ránstil­raun­inni í Istanbúl og Ankara um miðjan júlí sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem stjórn­völd hafa gefið.

15.000

Fleiri en 15 þús­und manns hafa sætt varð­haldi í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar.

45.000

Fleiri en 45 þús­und manns hafa verið fjar­lægðir eða leystir tíma­bundið frá störfum, þar á meðal starfs­menn lög­reglu, dóm­arar og sak­sókn­arar.

1.000

Fleiri en 1.000 einka­skólum og mennta­stofn­unum hefur verið lokað og 138 þús­und skóla­börn hafa verið flutt í rík­is­rekna skóla.

48

klukku­stundir er sá tími sem lög­reglan í Ankara og Istanbúl heldur föngum í álags­stöðu (stress position). Föngum hefur verið neitað um mat, vatn og lækn­is­að­stoð, sætt sví­virð­ingum og hót­unum. Sumir hafa þurft að sæta harka­legum bar­smíðum og pynt­ingum, þar á meðal nauðgun.

3

mán­uðir er áætluð lengd neyð­ar­á­stands­ins sem lýst var yfir þann 20. júlí síð­ast­lið­inn. Þannig er for­sæt­is­ráð­herr­anum og rík­is­stjórn hans veitt úrskurð­ar­vald og heim­ild til að sneiða hjá tyrk­neska þing­inu.

30

dagar er sá tími sem tyrk­nesk stjórn­völd geta haft menn í haldi án ákæru. Áður var tak­markið fjórir dagar, en með fyrstu til­skipun rík­is­stjórn­ar­innar eftir að neyð­ar­á­standi hafði verið lýst yfir var tím­inn lengdur.

15

er númer grein­ar­innar í tyrk­nesku stjórn­ar­skránni sem segir til um að stjórn­völd geti ekki fellt Evr­ópu­samn­ing um mann­rétt­indi tíma­bundið úr gildi. Þó að lýst hafi verið yfir neyð­ar­á­standi má aðeins draga úr ákveðnum rétt­indum.

0

er fjöldi þeirra óháðu eft­ir­lits­að­ila með mann­rétt­indum sem hafa aðgang að varð­halds­stöðum í Tyrk­landi eftir að mann­rétt­inda­stofn­unin rík­is­ins var lögð af í apríl 2016.

Mannréttindi í hættu

Amnesty International hvetja alla til að skrifa undir eft­ir­far­andi áskorun til tyrk­neskra stjórn­valda um að virða rétt­ar­ríkið og mann­rétt­indi:

Krefstu þess að Erdogan for­seti tryggi það að þau rétt­indi sem svo hart hefur verið barist fyrir verði ekki afnumin, jafn­vel þó að neyð­ar­á­stand ríki:

Tyrknesk stjórn­völd verða að virða mann­rétt­indi á meðan rann­sóknum stendur, sleppa fólki úr haldi þar sem engar sann­anir benda til þess að glæp­sam­legt athæfi hafi átt sér stað og tryggja sann­gjörn rétt­ar­höld.

Bann við pynd­ingum eða annarri illri með­ferð er afdrátt­ar­laust, það má aldrei gefa eftir eða fresta tíma­bundið. Þar sem ásak­anir um beit­ingu pynd­inga koma upp verður að veita óháðum eft­ir­lits­að­ilum aðgang að föngum, hvar sem þeim er haldið. Öllum föngum skal tryggður reglu­legur aðgangur að lög­fræð­ingum og fjöl­skyldu­með­limum sínum.

„Neyð­ar­á­stand í land­inu má ekki vera
fyr­ir­sláttur til þess að þagga niður í þeim
sem vilja and­mæla frið­sam­lega“

Neyð­ar­á­stand í land­inu má ekki vera fyr­ir­sláttur til þess að þagga niður í þeim sem vilja and­mæla frið­sam­lega eða fyrir víð­tækum hreins­unum í hinu borg­ara­lega sam­fé­lagi, fjöl­miðlum, dóms­kerf­inu, mennta­kerf­inu eða öðrum hlutum sam­fé­lags­ins.

Að beita fjöl­miðla rit­skoðun fyrir það eitt að gagn­rýna stefnu stjórn­valda stríðir gegn lögum, jafn­vel þegar neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir. Rétt­indum verka­manna til að mót­mæla brott­vikn­ingu eða upp­sögn sinni í sann­gjörnum og gagn­sægjum ferlum verður að halda á lofti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdaránið í Tyrklandi

ÚttektValdaránið í Tyrklandi

Afturför Tyrk­lands

Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seti og fylg­is­menn hans eru að umturna Tyrk­landi fyrir opnum tjöldum. Þúsundir dóm­ara og opin­berra starfs­manna hafa verið reknir úr störfum sínum sak­aðir um óljós tengsl við and­stæð­inga for­set­ans. Þá hafa hátt í þús­und blaða­menn verið sóttir til saka fyrir skrif sín. For­set­inn íhugar að taka upp dauða­refs­ingar að nýju. Íbúar Istanbúl reyna að fóta sig í ólíkum heimi nú þegar ár er liðið frá valda­ránstil­raun­inni. Jón Bjarki Magn­ús­son heim­sótti borg­ina í byrjun júní.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár