Óvíst hvort íbúðin hafi verið mannlaus

Sér­sveitin sat um mann­lausa íbúð í sex tíma í gær. Ekki er hægt að úti­loka að skotið hafi verið úr íbúð­inni, þótt íbúðin hafi verið mann­laus þegar lög­reglu bar að garði og úti­lokað sé að eig­and­inn hafi verið að verki. Íbúar í Hlíð­ar­hjalla sváfu vel í nótt, þrátt fyrir umsát­urs­á­stand í gær. Búið er að fjar­lægja hagla­byssu af heim­ili í blokk­inni.

Óvíst hvort íbúðin hafi verið mannlaus

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og stöðv­ar­stjóri Kópa­vogs­lög­reglu­stöðvar, segir ekki komið á hreint hvort íbúðin hafi verið mann­laust í gær. „Við höfum ekki fengið full­nægj­andi skýr­ingar á hvell­unum. Við erum enn þá að átta okkur á þessu mál. Til­kynn­ingum um hvell­inn hefur fjölgað fremur en fækkað frá því í gær. Við fengum tvær til­kynn­ingar strax og aðra fljót­lega. Við fáum fleiri til­kynn­ingar eftir því að leið á dag­inn og meira segja í morgun, fólk var að hringja og stað­festa að það hafði heyrt hvelli,“ segir Ásgeir. Hann segir það alveg ljóst að eig­andi íbúð­ar­innar hafi ekki verið í íbúð­inni. Hann hafi ekki verið færður í gæslu­varð­hald. „Það er alveg ljóst að mað­ur­inn sem á þessa íbúð, það er alveg á hreinu að hann var ekki á neinum tíma­punkti í þarna í gær,“ segir Ásgeir.

Íbúðin til rannsóknar

Ásgeir segir að umrædd íbúð hafi verið til rann­sóknar vegna skot­hvella þaðan fyrir nokkru.„Í gær fengum við heim­ild eig­and­ans, þó að hann væri fjar­ver­andi, til að fara inn og kanna íbúð­ina. Þar leggjum við hald á skot­vopn og skot­færi. Við vorum með til rann­sóknar mál þar sem við teljum að frá þess­ari íbúð hafi verið skotið fyrir ein­hverju síðan og það eru ummerki á vett­vangi að skot­vopni hafi verið beitt fyrir utan, það er alveg klárt,“ segir hann.

Skoða málið með opnum hug

Ásgeir segir raunar óvíst hvort skotið hafi verið að byssu í gær. „Þó að það hafi verið til­kynnt um hvell, þá heyra lög­reglu­menn á vett­vangi raun­veru­lega aldrei hvell. Þannig að við verðum líka að gera ráð fyrir því að það geti verið eitt­hvað annað. Það er ekk­ert úti­lokað, við erum að skoða þetta mál með veru­lega opnum huga hver ástæðan er fyrir þessum hvell. Miðað við allar þessar til­kynn­ingar, allt þetta fólk sem upp­lifir þetta hljóð og telur sig hafa heyrt skot­hvell. Við erum að reyna að finna út úr því hvað mögu­lega gæti hafa átt sér stað þarna. Við erum ekki komnir á enda­punkt þar, langt í frá,“ segir Ásgeir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár