Óþarfi að skammast sín fyrir að sofa

Erla Björns­dóttir sál­fræð­ingur hvetur fólk til að birta myndir af sér sof­andi og nota myllu­merkið #sof­um­vel til að vekja athygli á svefn­heil­brigði.

Óþarfi að skammast sín fyrir að sofa
Erla Björns­dóttir hvetur fólk til þess að huga að eigin svefn­heil­brigði. Mynd: Úr einkasafni

Alþjóð­legur dagur svefns er í dag, föstu­dag­inn 17. mars, en í til­efni af honum stendur Hið íslenska svefn­fé­lag að átaki um svefn­heil­brigði. Átakið fer fram á sam­fé­lags­miðlum undir for­merkj­unum #sofðu­vel og er fólk hvatt til að nota myllu­merkið og birta myndir af sér, eða öðrum, sof­andi og deila þannig boð­skapnum um hversu mik­il­vægt það er að sofa vel. 

„Við erum að reyna að sporna gegn þeirri orð­ræðu að fólk eigi að stæra sig af því að sofa lítið og að það sé tengt dugn­aði eða atorku að kom­ast upp með að sofa ein­ungis örfáar klukku­stundir á sól­ar­hring,“ segir Erla Björns­dóttir, sál­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í svefni, í sam­tali við Stundina. „Við þurfum öll að sofa og það er allt í lagi að sofa vel. Við eigum að ýta undir það, en ekki skamm­ast okkar fyrir það. Ekki að ræskja okkur upp þegar við erum vakin snemma á laug­ar­dags­morgni og þykj­ast …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár