Össur veltir fyrir sér hvort Eygló verði formaður Framsóknar og sveigi til vinstri

„Eygló sakar Bjarna bein­línis um að ganga erinda rík­asta fólks­ins á kostnað allra hinna,“ skrifar Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Össur veltir fyrir sér hvort Eygló verði formaður Framsóknar og sveigi til vinstri

Með harðri gagn­rýni sinni á áherslur sam­starfs­flokk­ins í rík­is­stjórn er Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, að senda almennum flokks­mönnum þau skila­boð í aðdrag­anda flokks­þings að hún sé óhrædd við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og reiðu­búin að taka við for­ystu­hlut­verki í Fram­sókn­ar­flokknum með sjón­ar­mið félags­hyggj­unnar að leið­ar­ljósi. 

Þetta er til­gáta Össurar Skarp­héð­ins­sonar, þings­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem á það til að birta stuttar stjórn­mála­grein­ingar á Facebook í húmi nætur. Segir Össur að Eygló gæti „opnað flokknum leiðir sem eng­inn annar gæti“. Af athuga­semdum að dæma finnst ein­hverjum sem Össur ýji þarna að þeim mögu­leika að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn styðji eða taki þátt í stjórn­ar­sam­starfi með vinstri­flokkum á næsta kjör­tíma­bili. 

Þor­steini Sæmunds­syni, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, finnst ekki mikið til skrifa Össurar koma og bendir á að síð­asta rík­is­stjórn var hálf­gerð minni­hluta­stjórn síð­ustu mán­uði starfs­tím­ans. „En menn héngu á stól­unum. Nú er lík­legt að kosn­ingar verði í haust þó ýmsir Sam­fylk­ing­ar­menn séu ekki hrifnir af því. Það er því engin frétt að stjórnin ,,lafi" ekki nema til kosn­inga,“ skrifar hann. 

Eygló Harð­ar­dóttir full­yrti nýlega að hún hefði þurft að slást við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um fram­lög til vel­ferð­ar­mála enda leggi sam­starfs­flokk­ur­inn meiri áherslu á að lækka skatta, meðal ann­ars á þá efna­mestu. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þau Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, hafa gagn­rýnt ummæli Eyglóar, sagt þau bil­leg og til marks um kosn­inga­skjálfta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár