Öryrkjar brjálaðir út í Bjarna

Ráðherra fær það óþvegið: „Þú gerir þér ekki grein fyrir því hve kjör margra öryrkja eru slæm“

Öryrkjar brjálaðir út í Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á í vök að verj­ast á Facebook-síðu sinni þar sem fjöldi öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega eys hann skömmum. Tilefnið er stöðu­upp­færsla sem hann birti í gær þar sem fram kemur að gera megi ráð fyrir að bætur almanna­trygg­inga hækki um 8,9 pró­sent fyrir árið 2016. Þykir mörgum þetta skammar­lega lítil hækkun þegar tekið er mið af launa- og verð­lags­þróun. Aðrir þakka Bjarna og hvetja hann til dáða.

„Allt of lítið og allt of seint, hvar eru lög um að bætur fylgi lægstu launum?“ skrifar hneyksl­aður Facebook-not­andi. Annar segir: „Bjarni, þú sýndir okkur í verki hvaða áherslu þú leggur á að styðja betur við þá sem minna mega sín þegar þú settir á mat­ar­skatt­inn og skatt­lagðir mat­inn út af okkar borðum.“ Enn einn veltir fyrir sér hvort ráð­herra sé að gera að gamni sínu: „Nú gekkstu fram af mér, er komin 1 apríl strax eða ertu svona mikil húmoristi? Þetta er fárán­legt og þú veist það sjálfur sama hvað þú reynir að svara þessu þá veistu að þetta er bull og þvæla og við eigum heimt­ingu á hækkun bóta og í raun aftur á bak til 2009.“ Loks spyr mið­aldra kona hvort Bjarni myndi sjálfur sætta sig við hækk­un­ina. „Veistu hvað húsa­leiga er há? Veistu að fólk er orðið aura­laust 10. hvers mán­aðar? Veistu að fólk er að taka líf sitt í hrönnum?“

Þá leggur frændi Bjarna orð í belg: „Ég held frændi að þú gerir þér ekki grein fyrir því hve kjör margra öryrkja eru slæm. Sjálfur er ég ekki í hópi hinna verst settu en ég þekki ungt fólk sem hefur innan við 200 þús­und á mán­uði og þarf að leigja hús­næði, að vísu frekar lága leigu hjá sam­tökum.“

Bjarna finnst leitt að sitja undir ásök­unum um að hann skilji ekki stöðu þeirra sem standa höllum fæti. „Með fullri virð­ingu, hver dæmir um það hvort ég geri mér grein fyrir stöðu öryrkja eða ann­arra sem höllum fæti standa. Ert það þú?“ spyr hann og bætir við: „Vissu­lega er staða margra slæm. Það leys­ist ekki af sjálfu sér eða á einni nóttu og hefur lengi verið þannig að margir hafa haft of lítið milli hand­anna. Við þurfum að stefna að því að gera betur en hvergi á byggðu bóli hefur slíkur vandi verið leystur í eitt skipti fyrir öll.“ 

Strokar stundum út

Bjarni Bene­dikts­son ræddi um sam­skipti á sam­fé­lags­miðlum í föstu­dags­við­tali Frétta­blaðs­ins um helg­ina. „Menn hafa fyrir því að fara inn á Facebook-síð­una hjá manni og taka mjög djúpt í árina,“ sagði Bjarni og bætti því við að hann hefði ekki alltaf tíma til svara þeim athuga­semdum sem settar eru fram.

Þá er eft­ir­far­andi haft eftir ráð­herr­anum: „En ég gef mér stundum tíma, þegar þannig stendur á. Það kemur mér mjög á óvart hvað fólk er til­búið til þess að leggja á sig bara til þess að hreyta ónotum í aðra, það er eig­in­lega alveg ótrú­legt. Það er skugga­hliðin á þess­ari stór­kost­legu bylt­ingu sem netið er. Að gefa hverjum og einum tæki­færi til að tjá sig hvenær sem er. Skugga­hliðin er sú að margir missa sig finnst mér. Það verður bara að horfa fram­hjá því og leyfa því að ger­ast.

Ég hef ekki verið að loka á þann mögu­leika fyrir fólk að tjá sig um það sem ég set inn á Facebook. Þeir sem ganga of langt verða fyrir því að ég kasta þeim út eða ég stroka út. Mér finnst menn ekk­ert eiga opinn, sjálf­sagðan rétt á því að fara inn á mína síðu og segja hvað sem er um mig eða það sem ég er að segja. Ég nenni ekk­ert endi­lega að vera svara því öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár