Ólöf Nordal aftur í krabbameinsmeðferð: „Vissulega vonbrigði“

Hóf lyfja­með­ferð um ára­mótin vegna breyt­inga á kvið­ar­holi sem nauð­syn­legt var að bregð­ast strax við.

Ólöf Nordal aftur í krabbameinsmeðferð: „Vissulega vonbrigði“

Ólöf Nordal þurfti að hefja krabba­meins­með­ferð að nýju um ára­mótin. Ólöf er inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæðs­flokks­ins. Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Þar kemur fram að við reglu­bundið eft­ir­lit í lok síð­asta árs hafi komið í ljós hækkun á æxlis­vísum í blóði sem mæla fram­gang og stöðu krabba­meins. Við nán­ari skoðun hafi komið í ljós smá­vægi­legar breyt­ingar á kvið­ar­holi sem nauð­syn­legt var að bregð­ast strax við. 

Ólöf fór fyrst inn á Alþingi árið 2007, sem þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis. Árið 2009 færði hún sig um set og var þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður frá 2009-2013. Þegar því kjör­tíma­bili lauk lét hún af afskiptum af stjórn­málum, en staf­aði sem for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands.

Sumarið 2014 greindi hún fyrst frá því á opin­berum vett­vangi að hún hefði þurft að láta fjar­lægja ill­kynja æxli úr lík­ama sínum. „Á örskots­stundu skiptu fyrri plön engu máli, hvers­dags­legu verk­efnin víkja núna fyrir þeirri stærstu áskorun sem ég hef staðið frammi fyrir. Óboðinn gestur hafði nefni­lega sest að innra með mér,“ skrif­aði Ólöf þá á heima­síðu sinni.

Ólöf sneri fremur skyndi­lega aftur til stjórn­mála þegar hún tók við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu af Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í byrjun síð­asta árs, í kjöl­far þess að Hanna Birna sagði af sér vegna leka­máls­ins. Ólöf var síðan kjörin vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í haust, en hún hafði áður verið vara­for­maður flokks­ins á árunum 2010-2013. 

Í færsl­unni sem hún birti fyrr í dag segir hún að það hafi vissu­lega verið von­brigði að þurfa að hefja lyfja­með­ferð að nýju en hún sé bjart­sýn og muni eftir sem áður sinna sínum störfum:

„Ég brenn enn fyrir að vinna fyrir almenn­ing og hug­sjónir mínar. Þessi þrösk­uldur sem ég þarf að yfir­stíga á næstu vikum breytir engu þar um. Núna stend ég frammi fyrir þessu verk­efni og þarf að klára það. Það er engin ástæða til ann­ars en að vera bjart­sýn.“

 
 

Kæru vinir.Við reglu­bundið eft­ir­lit í lok síð­asta árs kom í ljós að hækkun hafði orðið á svoköll­uðum æxlis­vísum í blóð...

Posted by Ólöf Nordal on Wednesday, January 13, 2016
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár