Ólafur Ólafsson lýsir pólitískri spillingu á Íslandi í varnarræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Ólafur Ólafsson lýsir pólitískri spillingu á Íslandi í varnarræðu sinni
Ólafur Ólafsson Var tal­inn höf­uð­paur í við­skiptafléttu sem sner­ist um að blekkja stjórn­völd og almenn­ing í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Ólafur Ólafsson fjár­festir, sem leiddi blekk­ing­ar­fléttu til að kaupa Bún­að­ar­banka Íslands af rík­inu, hefur birt varn­ar­ræðu sína á vef­svæð­inu solu­ferli.is sem and­svar við nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Ólafur, sem neit­aði að koma fyrir nefnd­ina á meðan hún vann skýrslu um einka­væð­ing­una, leggur hins vegar allt í söl­urnar núna. Hluti af ræðu hans snýst um að benda á póli­tíska spill­ingu við einka­væð­ingu bank­anna. „Pólitísk íhlutun í ferl­inu hafði áhrif á atburð­ar­rás­ina og ákvarð­anir þátt­tak­enda,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Ólafur tók þátt í til­raun til að kaupa Lands­banka Íslands af rík­inu, sem á end­anum var seldur til Samson-hóps­ins undir for­ystu Björg­ólfs Guð­munds­sonar, Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og Magnúsar Þor­steins­sonar, þrátt fyrir að hóp­ur­inn hefði átt lægsta til­boðið.

„Leiksoppar í pólitísku leikriti“

Ólafur upp­lifði póli­tískt leik­rit við einka­væð­ingu Lands­banka Íslands eftir að hann var boð­inn til sölu með aug­lýs­ingu sum­arið 2002. S-hópur Ólafs hafði reynt að kaupa Lands­bank­ann, en hæsta til­boði var ekki tekið.

„Þrátt fyrir að Björg­ólfs­feðgar hafi boðið lægsta verðið; ég end­ur­tek lægsta verðið, þá voru þeir valdir til einka­við­ræðna við ríkið um kaupin á Lands­bank­anum. Þegar for­sendur fyrir mati einka­væð­ing­ar­nefndar á til­boðum í bank­ann voru síðan opin­ber­aðar, kom í ljós að verðið hafði aðeins 20% vægi, ég end­ur­tek, 20% vægi. 80% af væg­inu voru póli­tískar for­sendur sem ég tel að hafi verið sér­sniðnar til að stýra bank­anum í hend­urnar á Björg­ólfs­feðgum,“ segir Ólafur í ræð­unni.

„Ég var veru­lega ósáttur við það hvernig staðið var að söl­unni á Lands­bank­anum. Það rann upp fyrir mér að við sátum aldrei við sama borð og Samson og áttum í raun aldrei kost á að kaupa Lands­bank­ann þrátt fyrir hærra verð. Við höfðum eytt gríð­ar­legum tíma og fjár­munum í und­ir­bún­ing til­boðs­ins, til einskis. Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti.“

Sagði af sér í einkavæðingarnefnd

Ólafur vísar í afsögn Stein­gríms Ara Arasonar úr einka­væð­ing­ar­nefnd máli sínu til stuðn­ings. Stein­grímur Ari útskýrði afsögn sína í bréfi til Davíðs Odds­sonar for­sæt­is­ráð­herra 10. sept­em­ber 2002, eftir að ákvörðun var tekin um að ganga til við­ræðna við Samson-hóp­inn, þrátt fyrir að hann hefði fært fram lægsta til­boð. „Ástæðan eru þau vinnu­brögð sem við­höfð hafa verið í aðdrag­anda þess­arar ákvörð­unar og hafa nú leitt til þess að aðrir áhuga­samir kaup­endur eru snið­gengnir þrátt fyrir hag­stæð­ara til­boð fyrir rík­is­sjóð á alla hefð­bundna mæli­kvarða. Ég hef setið sem full­trúi fjár­mála­ráð­herra í fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu frá árinu 1991 og aldrei kynnst öðrum eins vinnu­brögðum.“

Stein­grímur Ari ræddi einnig um afsögn sína í útvarps­við­tali. 

Pólitískar ráðningar úti um allt

Þeir ráð­herrar sem helst gátu haft áhrif á einka­væð­ingu bank­anna voru Davíð Oddsson for­sæt­is­ráð­herra, Geir H. Haarde fjár­mála­ráð­herra, Halldór Ásgríms­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Val­gerður Sverr­is­dóttir við­skipta­ráð­herra. Saman sátu þessir ráð­herrar í ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu. 

Ólafur Ólafsson bendir á að stjórn­mála­flokk­arnir höfðu komið póli­tískum full­trúum fyrir alls staðar í kerf­inu. „Banka­stjórar rík­is­bank­anna voru ávallt ráðnir póli­tískt. Banka­ráðin voru ætíð skipuð póli­tískt. Þannig var for­maður stjórnar Lands­banka Íslands, Helgi S Guð­munds­son, sem gengdi þýð­ing­ar­miklum emb­ættum innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Vara­for­maður stjórnar Lands­bank­ans var Kjartan Gunn­ars­son, fram­kvæmd­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og nán­asti sam­starfs­maður Davíðs Odds­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Kjartan var áfram vara­for­maður Lands­bank­ans eftir sölu rík­is­ins þar til bank­inn féll, hvernig sem á því stóð. Formaður banka­ráðs Bún­að­ar­bank­ans var Magnús Gunn­ars­son sem til­heyrði Eim­reið­ar­hópnum svo kall­aða og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Vinnu­veit­enda­sam­bands Íslands,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Segir Valgerði hafa reynt pólitískt inngrip

Að sögn Ólafs reyndi Val­gerður Sverr­is­dóttir, þáver­andi við­skipta­ráð­herra, að fá S-hóp­inn til að sam­ein­ast Kaldbaki í til­boð­inu til rík­is­ins um kaup á Bún­að­ar­bank­anum. „Stjórn­ar­for­maður Kaldbaks var Jóhannes Geir Sig­ur­geirs­son, fyrrum þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins,“ segir Ólafur. „Þá ger­ist það að S-hóp­ur­inn var boð­aður til fundar með stjórn­völdum. Þar sem ég var fjar­ver­andi gat ég ekki mætt á þennan fund, en ég fékk upp­hring­ingu af fund­inum. Mér hafði áður verið tjáð að Val­gerður Sverr­is­dóttir þrýsti mjög á, um að sam­eina S-hóp­inn og Kaldbak í einn vænt­an­legan kaup­anda. Ég átt­aði mig á því hvað bjó að baki hjá Valgerði með hlið­sjón af póli­tísku bak­landi hennar fyrir norðan. Það kom á dag­inn að til­gangur fund­ar­ins var nákvæm­lega sá, að reyna að fá okkur til sam­starfs við Kaldbak. Ég þvertók fyrir að taka þátt í póli­tískum hrossa­kaupum og hafn­aði með öllu að fara í þetta sam­starf. Annað hvort keyptum við hluta­bréfin eða þeir. Fyrir mér voru kaupin á hluta­bréfum í Bún­að­ar­bank­anum hrein og klár við­skipti og áttu ein­göngu að vera byggð á eðli­legum við­skipta­legum for­sendum. Það var aldrei minnst á þetta aftur.“

Pólitísk tengsl í S-hópnum

S-hóp­ur­inn var hins vegar póli­tískt tengdur. Einn af lyk­il­mönnum hóps­ins var Finnur Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, og póli­tískt skip­aður seðla­bank­stjóri.

Þá var Þórólfur Gíslason, þekktur, umsvifa­mik­ill fram­sókn­ar­maður úr Skaga­firði, einn af for­sprökkum hóps­ins. Sjálfur seg­ist Ólafur aldrei hafa verið póli­tískt tengdur.

Það hefur hins vegar vakið athygli að Ólafur afsal­aði sér húsi til Fram­sókn­ar­flokks­ins mán­uði fyrir einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. Í hús­inu, sem stendur við Hverf­is­götu, eru starf­ræktar skrif­stofur Fram­sókn­ar­flokks­ins. Flokk­ur­inn fékk húsið á góðu verði, vel undir fast­eigna­mati. Mánuði eftir kaupin var Ólafur einn þeirra sem und­ir­rit­uðu kaup­samn­ing að Bún­að­ar­bank­anum af íslenska rík­inu. 

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis á einka­væð­ingu Bún­að­ar­banks var ein­dregin, að Ólafur hefði blekkt ríkið og almenn­ing til að telja að í kaup­enda­hópi hans væru alþjóð­legar fjár­mála­stofn­anir. Þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser hafi verið leppur í kaup­unum, en lögð hafði verið áhersla á að erlendir aðilar kæmu að kaupum á kjöl­festu­hlut í bank­anum. „Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hefur sann­reynt að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser var aldrei í reynd fjár­festir í Bún­að­ar­bank­anum þegar 45,8% hlutur rík­is­ins í honum var seldur í jan­úar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upp­hafi. Það er afdrátt­ar­laus nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefndar Alþingis að stjórn­völd hafi skipu­lega verið blekkt í aðdrag­anda og kjöl­far söl­unnar,“ sagði í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar.

Ólafur birtir „ávarp“ á sér­stöku vef­svæði sem almanna­tengsla­fyr­ir­tækið Kom heldur úti, þar sem hann heldur fram sak­leysi sínu, bendir á vafa­sama aðkomu ann­arra og gagn­rýnir störf rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki rann­saka nánar einka­væð­ingu Lands­bank­ans. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.

13 mín. lestur

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár