Finnur Ingólfsson „skammast“ sín út af blekkingum í einkavæðingu Búnaðarbankans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.

Finnur Ingólfsson „skammast“ sín út af blekkingum í einkavæðingu Búnaðarbankans
Á hesta­bú­garði Ólafs Ólafs­sonar Finnur Ing­ólfs­son sést hér með Ólafi Ólafs­syni, sem snýr baki í mynda­vél­ina, á hesta­bú­garði Ólafs, Pur Cheval í Frakk­landi, í fyrra.

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist „skamm­ast sín“ fyrir að hafa ekki séð í gegnum þær blekk­ingar sem not­aður voru svo S-hóp­ur­inn svo­kall­aði gæti keypt hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum árið 2003.

Finnur var sjálfur einn af þeim aðilum sem mynd­aði S-hóp­inn. Hann var for­stjóri VÍS, sem var einn af þeim aðilum sem mynd­aði S-hóp­inn, og var einn af lyk­il­mönn­unum í kaupum hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum, ásamt meðal ann­ars Ólafi Ólafs­syni í Sam­skipum.

Blekk­ing­arnar sem um ræðir eru aðkoma þýska bank­ans Hauck  & Auf­haüser að kaupum S-hóps­ins. En þýski bank­inn var í reynd aldrei hlut­hafi í bank­anum þó slíkt hafi komið fram opin­ber­lega og að þessi ætl­aða aðkoma bank­ans hafi ráðið úrslitum um að S-hóp­ur­inn fékk að kaupa bank­ann af íslenska rík­inu.

Þessi orð eru höfð eftir Finni Ing­ólfs­syni í ævi­sögu Guðjóns Frið­riks­sonar sagn­fræð­ings um Halldór Ásgríms­son sem kom út hjá For­lag­inu fyrir jólin, Halldór Ásgríms­son: Ævisaga.

Finnur segist ekkert hafa vitað

Í bók­inni er vísað til þeirra orða Finns að hann hafi ekki haft hug­mynd um þann blekk­ing­ar­leik sem settur var af stað til að fólk tryði því að þýski bank­inn væri í reynd hlut­hafi í Bún­að­ar­bank­anum í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Eglu, eitt af þeim félögum sem mynd­aði S-hóp­inn og keypti bank­ann.  Frá þessu er sagt í und­ir­kafla sem ber yfir­skrift­ina „Hókus pókus S-hóps­ins“ þar sem meðal ann­ars er sagt frá þeirri nið­ur­stöðu úr skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um aðkomu þýska bank­ans að Ólafur Ólafsson, Sigurður Ein­ars­son, Hreiðar Már Sig­urðs­son og Bakka­var­ar­bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syni hafi verið þeir sem skipu­lögðu blekk­ing­ar­leik­inn í kringum aðkomu þýska bank­ans að einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Til­gang­ur­inn var í reynd að tryggja Kaup­þingi, sem á þeim var til­tölu­lega lít­ill fjár­fest­ing­ar­banki, eign­ar­hlut í Bún­að­ar­bank­anum - Kaupþing og Bún­að­ar­bank­inn sam­ein­uð­ust svo skömmu eftir einka­væð­ingu síð­ar­nefnd bank­ans og varð á skömmum tíma stærsti banki Íslands. 

Eins og segir um þennan blekk­ing­ar­leik í rann­sókn­ar­skýrsl­unni: „Telja verður að vegna áhrifa bak­samn­ing­anna sem hér er lýst hafi því í reynd farið víðs fjarri að Hauck & Auf­häuser væri fjár­festir í Bún­að­ar­bank­anum í gegnum Eglu hf. með þeim hætti sem gef­inn var til kynna bæði gagn­vart stjórn­völdum og í fjöl­miðlum.“

Orðrétt hefur Guðjón eftir Finni í bók­inni að hann hafi ekk­ert vitað um þessa sýnd­ar­að­komu þýska bank­ans. „Finnur Ingófs­son, sem var orð­inn for­stjóri VÍS, þegar kaupin voru gerð og kom að samn­ing­unum á loka­stigi þeirra, seg­ist skamm­ast síns fyrir að hann skyldi ekki hafa séð í gegnum þá fléttu sem búið var að skapa og hann hefði ekki haft hug­mynd um.“

  „Það er mér algjör­lega ókunn­ugt um“

Myndin af Finni og Ólafi

Miðað við orð Finns Ing­ólfs­sonar var hann sjálfur blekktur eða að minnsta kosti ekki þátt­tak­andi í blekk­ing­unum sem settar voru á svið í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. Orð Finns í bók­inni ríma við orð sem áður hafa verið höfð eftir honum um vit­neskju hans um þennan blekk­ing­ar­leik en árið 2016, í aðdrag­anda þess að ákveðið var að láta skrifa rann­sókn­ar­skýrslu um aðkomu þýska bank­ans að Bún­að­ar­banka­kaup­unum, sagði Finnur að honum hafi ekki verið kunn­ugt um að bank­inn hafi ekki eign­ast hlut í bank­anum.  „Það er mér algjör­lega ókunn­ugt um og veit ekki til að það hafi verið,“ sagði Finnur í við­tali við Vísi.

Finnur Ing­ólfs­son var, þrátt fyrir þetta, eitt helsta and­lit kaup­enda­hóps Bún­að­ar­bank­ans, ásamt Ólafi Ólafs­syni, og er myndin af þeim tveimur, bros­andi og kátum í fram­sæt­inu á bíl eftir að hafa und­ir­ritað kaup­samn­ing­inn um Bún­að­ar­bank­ann, lík­lega ein þekktasta frétta­ljós­mynd Íslands á síð­ustu 20 árum. Í fyrra, árið 2019, birt­ist sömu­leiðis ljós­mynd af Finni og Ólafi saman á hesta­bú­garði þess síð­ar­nefnda í Frakk­landi, Pur Cheval, á Facebook-síðu hesta­bú­garðs­ins. Báðir eru þeir Finnur og Ólafur miklir hesta­menn.

Blekk­ing­ar­leik­ur­inn með Hauck & Auf­hauser virð­ist því ekki hafa leitt til vinslita milli Finns og Ólafs en sá síð­ar­nefndi var einn helsti skipu­leggj­andi Hauck & Auf­hauser-flétt­unnar rétt eins og Al-Thani flétt­unnar rúmum fimm árum síðar. 

Finnur hagnaðist á einkavæðingunni

Hvað sem líður þessum orðum Finns Ing­ólfs­sonar, skömm hans og tjáðri eft­ir­sjá út af blekk­ing­unum í kringum einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans, þá átti hann eftir að hagn­ast á henni per­sónu­lega. Sama ár og Bún­að­ar­bank­inn var einka­væddur stofn­aði Finnur Ing­ólfs­son fjár­fest­ing­ar­fé­lag sitt Fikt ehf. utan um hluta­bréfa­eign sína í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands.

Finnur átti svo eftir að stunda arð­bær hluta­bréfa­við­skipti í Kaup­þingi, með lánum frá bank­anum, í gegnum þetta félag sitt á næstu árum.  Á þessum tíma var Finnur stjórn­ar­maður í bank­anum - hann hætti í stjórn­inni árið 2007. Árið 2008 seldi Finnur hluta­bréf sín í Kaup­þingi og skil­aði félag hans 180 millj­óna króna hagn­aði þetta ár. Segja má að einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans hafi lagt grunn að ferli Finns sem fjár­festis en hann átti meðal ann­ars bif­reiða­skoð­un­ina Frum­herja um ára­bil. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Umboðs­maður telur einka­væð­ingu bank­anna gott sem fullrann­sak­aða

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú til skoð­unar hvort hrinda eigi í fram­kvæmd þings­á­lykt­un­inni frá 2012 um rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Lög­fræð­ingur sem starf­aði með tveimur rann­sókn­ar­nefndum Alþingis telur rann­sókn­ar­spurn­ingar sem fylgdu þings­á­lykt­un­inni van­hugs­aðar og umboðs­maður Alþingis telur ólík­legt að sér­stök rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna leiði fram nýjar mark­verðar upp­lýs­ingar.

13 mín. lestur

FréttirEinkavæðing bankanna

Ólafur Ólafsson lýsir póli­tískri spill­ingu á Íslandi í varn­ar­ræðu sinni

Fjár­festir­inn Ólafur Ólafsson, sem rann­sókn­ar­nefnd um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans segir hafa staðið að mála­mynda­gern­ingi til að blekkja yfir­völd, sakar ráð­herra Fram­sókn­ar­floks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um póli­tísk inn­grip. „Við vorum hafðir að leiksoppum í póli­tísku leik­riti,“ segir Ólafur meðal ann­ars.

Myndband

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár