Ólafur Ólafsson fer fram á endurupptöku á Al Thani málinu

Lögmaður hans segir Hæstarétt hafa farið manna­villt. Saksóknari sagði dóminn ekki standa og falla með einu símtali.

Ólafur Ólafsson, sem afplánar fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm fyrir aðkomu sína að Al Thani málinu, hefur óskað eftir því við endur­upptöku­nefnd að málið verið tekið til meðferðar og dóms­uppsögu að nýju hvað hann varðar.

Í yfir­lýsingu frá Þórólfi Jónssyni, lögmanni á Logos, segir að dómur Hæstaréttar hafi byggt á sönnunar­gögnum sem hafi verið ranglega metin. Er þar vísað í símtal tveggja manna, þar sem annar vísar til samtals við Óla um tiltekna þætti viðskiptanna. Telja verjendur Ólafs að þar hafi verið átt við Ólaf Arinbjörn Sigurðarsson lögmann, en Hæstiréttur taldi að vísað væri til Ólafs Ólafs­sonar.

Á þessum grunni óskar Ólafur eftir endur­upptöku málsins. „Verjendur höfðu ekki tækifæri til þess að leiðrétta þessi mistök Hæstaréttar því símtalið var ekki tekið til efnislegrar meðferðar í málflutningnum, fyrir­liggjandi gögn bentu ekki til þess að vafi ríkti um þetta atriði og ekkert gaf til kynna að dómararnir skildu efni símtalsins með öðrum hætti en héraðs­dómur, ákæruvald, verjendur og ákærðu,“ segir í yfir­lýsingunni.

„Ég heiti Óli og ég er lögfræðingur“

Eiginkona Ólafs, Ingibjörg Kristjáns­dóttir, reisti málið með aðsendri grein í Frétta­blaðinu þar sem hún sagði Hæstarétt hafa farið manna­villt. Í kjölfarið sagði lögmaður Ólafs að næsta skref yrði að óska eftir endur­upptöku á málinu, sem nú hefur verið gert. 

Eftir að grein Ingibjargar birtist í Frétta­blaðinu náði dv.is tali af Ólafi Arinbirni og spurði hvort það væri rétt að hann væri þessi Óli sem vísað væri til í símtalinu: „Ég get eiginlega ekkert sagt þér um þetta, bara að ég heiti Óli og ég er lögfræðingur,“ var svar hans. 

Ólafur Arinbjörn, er líkt og Þórólfur lögmaður á Logos. Þriðji lögmaður Logos sem leikur lykil­hlutverk í málinu, Bjarnfreður Ólafsson, steig þá fram í Viðskipta­blaðinu og sagðist hafa verið að ræða um Ólaf Arinbjörn en ekki Ólaf Ólafsson í símtalinu. Í kjölfarið var Ólafur Arinbjörn inntur aftur eftir svörum, og nú í Frétta­blaðinu. Hann sagði þá að hann hefði augljós­lega ekki verið aðili að þessum símtölum: „En ef Bjarnfreður hefur sagt að hann hafi talað við mig þá er það væntanlega rétt.“

Saksóknari segir önnur gögn benda á sekt Ólafs

Saksóknari
Saksóknari Sagði fleiri gögn benda á aðkomu Ólafs Ólafs­sonar í Al Thani málinu þar sem sakborningar voru dæmdir fyrir markaðs­misnotkun.

Í beiðni um endur­upptöku kemur skýrt fram að lögmenn Ólafs líti svo á að dómur Hæstaréttar byggi á þeim upplýsingum sem vísað er til í umræddu símtali. Hafi dómurinn farið manna­villt sé hann fallinn. 

Björn Þorvaldsson hjá sérstökum saksóknara, flutti málið fyrir héraðs­dómi og Hæstarétti. Hann sagði hins vegar í samtali við Stundina að greini­lega væri um misskilning aðræða, í þessu símtali væri klárlega verið að vísa til Ólafs Ólafs­sonar. Jafnvel þótt svo væri ekki þá bentu önnur gögn á aðkomu Ólafs Ólafs­sonar. Dómurinn stæði ekki og félli með því. „Málið byggir ekki á þessu eina símtali, því fer fjarri. Það eru önnur símtöl, tölvu­póstar, fram­burðir, margt sem bendir á hans aðkomu í málinu. Það eru nóg af gögnum sem liggja fyrir til að sakfella Ólaf Ólafsson,“ sagði saksóknari.

Dómur féll í febrúar

Hæstiréttur kvað upp dóm í Al-Thani málinu í febrúar. Þar var refsingin yfir Ólafi Ólafssyni þyngd, frá þremur og hálfu ári í Héraðs­dómi upp í fjögur og hálft ár. Það sama átti við um dóm yfir Magnúsi Guðmunds­syni sem fékk sömu refsingu. Dómur yfir Sigurði Einars­syni var hins vegar mildaður úr fimm árum í fjögur ár og fimm og hálfs árs fangelsis­dómur yfir Hreiðari Má stað­festur.

Hér að neðan má sjá rökstuðning fyrir endur­upptöku­beiðni, en þar segir að Ólafur sé „þess fullviss að endur­skoðun á þessum þætti muni leiða til þess að hann verði alfarið sýknaður af kröfum ákæru­valdsins eða að minnsta kosti að refsing hans verði milduð verulega.“

Skjöl

Frétta­tilkynning
Endur­upptöku­beiðni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár