Mynd: Skjáskot

Árið 2018: Bræðurnir sem eiga Dekhill Advisors

Ágúst og Lýður Guð­munds­synir voru umtals­vert í fréttum á árinu. Þeir eru nú í 187. sæti yfir rík­ustu menn Bret­lands eftir að hafa kom­ist aftur yfir Bakkavör, lán­uðu sjálfum sér millj­arða til að kaupa eign sem þeir þegar áttu.

Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að end­an­legir eig­endur félags­ins Dekhill Advisors Limited, aflands­fé­lags skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju, séu bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir, oft­ast kenndir við Bakka­vör. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri bók eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, sem kom út í nóv­em­ber. Bókin heitir Kaupt­hink­ing: Bank­inn sem átti sig sjálfur og fjallar um ris, fall og eft­ir­mála af starf­semi Kaup­þings, stærsta banka lands­ins fyrir banka­hrun.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­­sent hlut íslenska rík­is­ins í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í jan­úar 2003, sem birt var í fyrra, kom fram að aflands­fé­lagið Dekhill Advisors Limited, skráð á Tortóla, hafi hagn­ast um 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 2,9 millj­arða króna á þávirði, á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á bank­an­um. Á núvirði er upp­hæðin um 5,8 millj­arðar króna.

Allir blekktir

Nið­ur­stöður rann­­sókn­­ar­innar sýndu að ítar­­leg gögn styðji að Hauck & Auf­häuser, Kaup­­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­­sonar fjár­­­­­festis hafi not­að leyn­i­­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­­legt eign­­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­­að­­­ar­­­bank­­­anum í orði kveðn­u. „Í raun var eig­andi hlut­­ar­ins aflands­­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frú­a­eyj­­um. Með fjölda leyn­i­­legra samn­inga og milli­­­færslum á fjár­­mun­um, m.a. frá Kaup­­þingi hf. inn á banka­­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­­anum tryggt skað­­leysi af við­­skipt­unum með hluti í Bún­­að­­ar­­bank­an­­um.“

Þar sagði enn fremur að „síð­­­ari við­­skipti á grund­velli ofan­­greindra leyn­i­­samn­inga gerðu það að verk­um, að Welling & Partners fékk í sinn hlut rúm­­lega 100 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala sem voru lagðar inn á reikn­ing félags­­ins hjá Hauck & Auf­häuser. Snemma árs 2006, eða um þremur árum eftir við­­skiptin með eign­­ar­hlut rík­­is­ins í Bún­­að­­ar­­bank­an­um, voru 57,5 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala greiddar af banka­­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­­fé­lags­ins Marine Choice Limited sem stofnað var af lög­­fræð­i­­stof­unni Mossack Fonseca í Panama en skráð á Tortóla. Raun­veru­­legur eig­andi Marine Choice Limited var Ólafur Ólafs­­son. Um svipað leyti voru 46,5 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala greiddar af banka­­reikn­ingi Welling & Partners til aflands­­fé­lags­ins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggj­andi upp­­lýs­ingar um raun­veru­­lega eig­endur Dekhill eða hverjir nutu hags­­bóta af þeim fjár­­munum sem greiddir voru til félags­­ins.“

Rann­sókn­ar­nefndin spurði m.a. Ágúst og Lýð um félagið skrif­lega. Í svari þeirra sögðu þeir að þá „reki ekki minni til atriða sem því tengj­ast“. Síðla árs var hægt að greina frá því að bræð­urnir Ágúst og Lýður eru taldir vera eig­endur Dekhill Advisors.

Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru nú á meðal ríkustu manna Bretlands.
Lýður og Ágúst Guð­munds­synir eru nú á meðal rík­ustu manna Bret­lands.

Í lok nóv­em­ber röt­uðu bræð­urnir aftur í fréttir þegar Stundin greindi frá því að þeir hefðu selt hluta­bréf í Bakka­vör Group sem voru í eigu íslensks félags þeirra, Korks Invest, til aflands­fé­lags­ins Alloa Finance Ltd., skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og einnig í þeirra eigu, árið 2015. Kaupin voru fjár­mögnuð með selj­enda­láni upp á 11 millj­arða króna.

Bræð­urnir lán­uðu því sjálfur sér til að kaupa eign sem þeir þegar áttu, og gátu í kjöl­farið bæði bók­fært margra millj­arða króna sölu­hagnað og fært hluta­bréfin frá íslensku félagi og inn í aflands­fé­lag.

Umrætt félag Alloa Finance hafði áður lánað Korki Invest fimm millj­arða króna til að kaupa hluta­bréfin á árinu 2012. Korkur Invest hefur ekk­ert greitt af því láni og gjald­fallnar afborg­anir eru nú um 1,2 millj­arðar króna.

Unnu baráttuna um Bakkavör

Um er að ræða fléttu sem á sér rætur í því að bræð­urnir vildu, og náðu, aftur yfir­ráðum yfir Bakka­vör, fyr­ir­tækis sem þeir stofn­uðu á níunda ára­tug síð­ustu ald­ar. Þeir misstu yfir­ráð yfir því eftir banka­hrunið yfir til helstu kröfu­hafa. Það gerð­ist fyrst með nauða­samn­ingi sem gerður var í upp­hafi árs 2010. Í honum fólst að kröfu­haf­ar, að mestu leyti Arion banki og skulda­bréfa­eig­endur á borð við íslenska líf­eyr­is­sjóði, tóku yfir Bakka­vör en bræðr­unum var gefið tæki­færi til að greiða kröfu­höf­unum til baka fyrir mitt ár 2014. Gengi það eftir myndu bræð­urnir fá 25 pró­senta eign­ar­hlut í Bakka­vör.

Í upp­hafi árs 2012 var orðið aug­ljóst að for­sendur nauða­samn­ing­anna myndu ekki halda og á aðal­fundi Bakka­varar Group í maí sama ár var sam­þykkt að breyta kröfum kröfu­hafa Bakka­varar Group í hlutafé í breska rekstr­ar­fé­lagi sam­stæð­unn­ar, íslenska Bakka­vör Group yrði slitið og bræð­urnir myndu fá að kaupa fjórð­ungs­hlut í breska félag­inu og hlut­hafa­sam­komu­lag sem tryggði þeim meiri­hluta stjórn­ar­manna í Bakka­vör, sem gert hafði verið í aðdrag­anda nauða­samn­inga árið 2010, yrði fellt úr gildi.

Fjórð­ungs­hlut­inn fengu bræð­urnir að kaupa á fjóra millj­arða króna.

Í kjöl­far aðal­fund­ar­ins fóru bræð­urnir á fullt í að kaupa hlutafé ann­arra hlut­hafa. Þeir virt­ust vera með mikið fé á milli hand­anna og fyrir lá að ekki var um að ræða lánsfé frá fjár­mála­stofn­un­um. Flestir töldu að þarna væru um að ræða það fé sem hol­lenskt félag þeirra, Bakka­bra­edur Holdings B.V., sem hélt á eign­ar­hlutum þeirra í Existu og Bakka­vör fyrir hrun, hafði greitt þeim í arð­greiðslur á upp­gangs­ár­un­um. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kom fram að það félag hefði verið á meðal þeirra aðila sem þáðu hæstar arð­greiðslur allra félaga í eigu Íslend­inga á þessum tíma. Alls fékk félagið tæpa níu millj­arða króna í arð­greiðslur á árunum 2005 til 2007.

Ágúst og Lýður nýttu sér leið sem Seðla­banki Íslands hafði sett upp til að koma þessu fé aftur til Íslands. Leiðin kall­að­ist fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans og virk­aði þannig að þeir sem áttu fjár­muni utan íslenskrar efna­hags­lög­sögu var boðið að koma með þá pen­inga hingað til lands og skipta þeim í íslenskar krónur með allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu. Þeir sem áttu krón­urn­ar, óþol­in­móðir aflandskrónu­eig­end­ur, þurftu að bera tapið af þessum við­skiptum en Seðla­banki Íslands var í hlut­verki milli­göngu­að­ila. Með þessu gátu t.d. Íslend­ingar sem höfðu komið fjár­munum undan fyrir hrun leyst út allt að 50 pró­sent geng­is­hagn­að, fengið áður­nefnda virð­is­aukn­ingu í boði Seðla­banka Íslands og nýtt fjár­mun­ina í að kaupa eignir á Íslandi á bruna­út­sölu.

Kjartan Bjarni Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson skipuðu rannsóknarnefndina sem opinberaði blekkingarnar við einkavæðingu Búnaðarbankans.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son og Finnur Vil­hjálms­son skip­uðu rann­sókn­ar­nefnd­ina sem opin­ber­aði blekk­ing­arnar við einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Auk þess gátu þeir fengið heil­brigð­is­vott­orð á fjár­muni sem mögu­lega hafði verið komið undan skatti eða haldið frá rétt­mætum kröfu­höf­um, en Kjarn­inn hefur greint frá því að nær ekk­ert eft­ir­lit var til staðar með því hvort að þeir sem færðu fjár­muni til lands­ins með þessum hætti væru að stunda pen­inga­þvætti.

Á meðal rík­ustu manna Bret­lands

Bakka­var­ar­bræður not­uðu tvö félög í þessum til­gangi, ann­ars vegar aflands­fé­lagið Alloa Finance og hins vegar íslenska félagið Kork Invest. Fyr­ir­komu­lagið var þannig að Alloa Finance átti Kork Invest og lán­aði því síð­ar­nefnd fimm millj­arða króna. Korkur hefur aldrei greitt af því láni en not­aði það til að kaupa hluti í Bakka­vör Group af íslenskum aðil­um.

Á árinu 2015 lán­aði Korkur Invest síðan móð­ur­fé­lagi sínu, Alloa Finance, alls 11 millj­arða króna til þess að kaupa hluta­bréfin af sér. Í Stund­inni er vitnað í árs­reikn­ing Korks Invest fyrir árið 2015 þar sem segir að „Þann 30. nóv­em­ber 2015 seldi félagið alla hluti sína í Bakka­vör Group Ltd fyrir 11 millj­arða kr. Tekju­færður sölu­hagn­aður af við­skipt­unum er færður í rekstr­ar­reikn­ing félags­ins að fjár­hæð 7,3 millj­arða kr., kaup­andi var Alloa Finance Ltd., móð­ur­fé­lag Korks Invest ehf. Sölu­verð nam GBP 55.424.594 og var sölu­and­virði greitt með láni frá selj­anda. Lánið ber 5% vexti sem eru reikn­aðir skv. 30/360 daga reikni­reglu, gjald­dagi láns­ins er 1. des­em­ber 2020 en lán­taka er heim­ilt að greiða lánið fyrir gjald­daga.“

Ágúst og Lýður náðu á end­anum fullum yfir­ráðum yfir Bakka­vör Group að nýju. Síðan þá hefur virði fyr­ir­tæk­is­ins marg­fald­ast og eignir þeirra voru metnar á 700 millj­ónir punda, um 111 millj­arða króna, um síð­ustu ára­mót. Það skil­aði þeim í 197. sæti yfir rík­ustu íbúa Bret­lands, sam­kvæmt árlegum lista Sunday Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár