Mynd: 123rf.com

Eftirlit Íslendinga með peningaþvætti fær falleinkunn

Árum saman starf­aði einn maður á pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu Íslands. Alþjóð­legur fram­kvæmda­hópur hefur gert marg­hátt­aðar athuga­semdir við eft­ir­lit með pen­inga­þvætti hér­lendis og kraf­ist úrbóta.

Þann 20. júní 2007 var birt við­tal við Helga Magnús Gunn­ars­son, þá sak­sókn­ara efna­hags­brota hjá rík­is­lög­reglu­stjóra. Deildin hans stýrði þá öllum rann­sóknum á efna­hags­brotum sem falið gátu í sér sak­næmt athæfi, þar með talið rann­sóknum á pen­inga­þvætti.

Í við­tal­inu sagði Helgi Magnús: „Í alþjóða­væð­ingu við­skipta­lífs­ins og útrás fyr­ir­tækja felst að þau brot sem við erum að rann­saka eru að teygja sig mikið víðar um heim­inn. Það er fjöldi ríkja sem lifir á því að hjálpa mönnum að fela pen­ing­ana sína og við þurfum að fara þangað eftir upp­lýs­ingum[...]Ann­að­hvort rann­sökum við brotin og höfum þau úrræði sem til þarf eða afbrota­menn geta ákveðið að fara með fjár­svikin sín yfir nokkur landa­mæri til að koma í veg fyrir að rann­sóknin nái til­gangi sínum. Mér þykir það ekki ásætt­an­legt."

Ári síðar, 21. júní 2008, var birt annað við­tal við Helga Magnús í sama fjöl­miðli, sem hafði þá skipt um nafn og hét 24 stundir.

Þar sagði hann: „Efna­hags­brot hafa mörg hver alþjóð­legt eðli og teygja sig yfir fjölda landa. Við þurfum sér­hæft fólk sem hefur menntað sig í við­skipta­fræðum og góða lög­reglu­menn. En það kostar. Frá síð­asta sumri höfum við tapað fjórum full­mennt­uðum við­skipta­fræð­ingum, eða öllum slíkum sem við höfðum, til einka­geirans.“

Tæpum fjórum mán­uðum síðar hrundi íslenskt banka­kerfi á innan við viku. Alls er búið að dæma 40 manns í um einnar aldar fang­elsi fyrir glæpi sem framdir voru í aðdrag­anda banka­hruns­ins. Og fjöl­mörg önnur mál sem rann­sak­endur töldu að fælu í sér sak­næmt athæfi hafa verið felld niður vegna þess að sak­born­ing­arnir voru þegar búnir að fylla refsiramma lag­anna eða það voru ekki til fjár­munir til að ljúka rann­sókn­unum.

Mánuði síðar, í nóv­em­ber 2008, voru fjár­magns­höft reist utan um Ísland sem gerðu það að verkum að Seðla­banki Íslands réð því, með reglu­setn­ingu og eft­ir­liti, hvaða fjár­magn kæm­ist inn í landið og hvað færi út.

Þrátt fyrir þessa stöðu, og varn­að­ar­orð Helga Magnúsar fyrir rúmum ára­tug, hafa rann­sóknir á mögu­legu pen­inga­þvætti verið í lama­sessi hér­lendis.

Inn og út úr íslensku efnahagskerfi

Á árunum fyrir banka­hrunið færðu íslenskir fjár­magns­eig­endur mikið magn fjár­muna út úr íslensku efna­hags­kerfi og komu fyrir á banka­reikn­ingum með heim­il­is­festi í löndum þar sem skattar voru litlir eða engir og upp­lýs­inga­gjöf stjórn­valda um þá sem stund­uðu banka­starf­semi í lönd­unum lítil eða engin. Þetta eru lönd á borð við Bresku Jóm­frú­ar­eyj­arnar, Caymaneyjar og Panama en oft­ast voru reikn­ingar og félög í þeim löndum sett upp fyrir Íslend­inga í gegnum dótt­ur­banka íslensku bank­anna þriggja í Lúx­em­borg.

Hluti þess­ara Íslend­inga hefur fært þessa pen­inga heim til Íslands eftir hrunið, oftar en ekki í gegnum leiðir sem Seðla­banki Íslands hefur boðið upp á. Þar ber helst að nefna fjár­fest­inga­leið bank­ans, sem í fólst að hægt var að fá allt að 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu á pen­inga sem skipt var á við óþol­in­móða krónu­eig­endur með milli­göngu Seðla­banka Íslands. Til við­bótar gátu þeir sem þetta gerðu inn­leyst tug­pró­senta geng­is­hagnað með þessum hætti og pen­ing­arnir þeirra fengu auk þess „heil­brigð­is­vott­orð“, enda færðir inn í landið í gegnum seðla­bank­ann. Þessa pen­inga var svo hægt að nota til að kaupa eignir á Íslandi á bruna­út­sölu­verði á fyrstu árum eft­ir­hrunsár­anna.

Grunsamlegar fjármagnstilfærslur

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, skrif­aði um þetta í grein sem hann birti í Vís­bend­ingu í sept­em­ber 2018. Þar sagði Gylfi: „„Sú spurn­ing kom fram hvað hefði orðið um þá þús­undir millj­arða sem teknir voru að láni af íslensku bönk­un­um. Í ljós kom að ekki hefur verið gerð til­raun til þess að finna þessa pen­inga. Það sem liggur fyrir er að eig­endur bank­anna lán­uðu sjálfum sér og eigin eign­ar­halds­fé­lögum óspart en ekki liggur fyrir hversu mikið af láns­fénu tap­að­ist í erlendum fjár­fest­ingum og hversu miklu var komið undan í skatta­skjól.“

Fleiri hafa velt þessu fyrir sér.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­ar 2017, var fjallað um fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­banka Íslands og því meðal ann­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­magn­inu frá aflands­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

Orð­rétt sagði í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­lýs­inga um fjár­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­taka í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­bank­ans er ekki til stað­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­bank­ans þegar um grun­­sam­­legar fjár­­­magnstil­­færslur er að ræða. Æski­­legt má telja að sam­­starf væri um miðlun upp­­lýs­inga á milli þess­­ara stofn­ana.“

Einn maður

Í pen­inga­þvætti felst að koma ólög­mætum fjár­munum í umferð með lög­legum. Ýmsir þurfa að stunda slíka hátt­semi, t.d. skipu­lagðir glæpa­hópar sem meðal ann­ars selja fíkni­efni eða stunda man­sal á svörtum mark­aði. Þeir þurfa að þvætta rekstr­ar­hagnað sinn til þess að hægt sé að nota hann í raun­heimum.

Skattsvik­arar, þeir sem hafa framið auðg­un­ar­brot og fólk sem hefur komið fjár­munum undan rétt­mætum kröfu­höfum sínum er í sömu stöðu. Það þarf að gera pen­ing­anna sína sem eru illa fengnir, eða í raun eign ann­arra, „hreina“ þannig að þeir geti notað þá aftur til að kaupa sér eignir.

Lengi vel var pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan hér­lendis rekin hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Um var að ræða eins manns ein­ingu sem átti fullt í fangi með að standa skil á ein­föld­ustu atriðum. Skrif­stofan treysti fyrst og síð­ast á banka og aðra til­kynn­ing­ar­skylda aðila og að þeir myndu til­kynna um hvort við­skipta­vinir þeirra væru að stunda pen­inga­þvætti.

Árang­ur­inn af starf­sem­inni var því ekki mik­ill. Ef litið er á áður­nefnda fjár­fest­ing­ar­leið, sem var opin frá 2012 til 2015, þá bár­ust engar til­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unnar um að fjár­festar sem nýttu sér leið­ina hefðu mögu­lega verið að koma illa fengnu fé inn í landið.

Eftirlitið fær falleinkunn

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan var færð yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara um mitt ár 2015. Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari var spurður að því í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 3. októ­ber síð­ast­lið­inn hvort aðgerðir Íslend­inga til að koma í veg fyrir að pen­inga­þvætti hefðu verið við­un­andi á und­an­förnum árum. „Þessu eru auðsvarað,“ sagði Ólafur, „nei það er það ekki.“

Hann sagði það vera stað­fest í skýrslu sem Financial Action Task Force (FATF), alþjóð­legs fram­kvæmda­hóps sem hefur það hlut­verk að móta aðgerðir til að hindra að fjár­mála­kerfið sé mis­notað í þeim til­gangi að koma illa fengnu fé aftur í umferð. FATF skil­aði skýrslu um Ísland í apríl síð­ast­liðnum. Þar fær pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit Íslend­inga fall­ein­kunn.

Á meðal þess sem þar kemur fram er að íslensk stjórn­völd líti ekki á rann­sóknir á pen­inga­þvætti sem for­gangs­mál. Þeir litlu fjár­munir sem settir eru í að koma upp um, rann­saka og sak­sækja pen­inga­þvætti eru þar lyk­il­at­riði. Afleið­ingin er meðal ann­ars sú að tak­mark­aðar skrán­ingar hafa verið á grun­sam­legum til­færslum á fé utan þess sem stóru við­skipta­bank­arnir og hand­fylli ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja fram­kvæma. Þá skorti einnig á að að upp­lýs­ingum um hreyf­ingar á fé og eignum sé deilt með við­eig­andi stofn­unum í öðrum löndum.

Öll athyglin á hruninu og annað sat á hakanum

Í skýrslu FATF er tekið fram að aðal áherslan á Íslandi á árunum 2008 til 2015 hafi verið á að rann­saka og sak­sækja mál tengd banka­hrun­inu. Á þeim tíma hafi rann­sak­endur og ákærendur sýnt af sér mikla getu til að starfa með öðrum og ná árangri í sak­sókn þeirra mála sem ráð­ist var í. Þrátt fyrir mikla vel­gengni þess­ara mála, að mati FATF, þá gerði það mikla fjár­austur sem fór í sak­sókn hrun­mál­anna það að verkum að önnur mál sátu á hak­anum.

Á meðal þess sem sat á þeim haka var inn­leið­ing á aðgerðum til að koma í veg fyrir pen­inga­þvætti og varnir til að berj­ast gegn fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka.

Sér­stak­lega er fjallað um fjár­magns­höftin sem voru við lýði á Íslandi frá nóv­em­ber 2008 og fram í mars 2017. Í skýrslu FATF segir: „Þessum höftum var lyft í mars 2017 og yfir­völd hafa ekki tekið til­lit til þeirra áhrifa sem það geti haft á áhættu vegna pen­inga­þvættis/fjár­mögnun hryðju­verka­sam­taka í land­inu.“

Þá kemur einnig fram að íslensk stjórn­völd átti sig á því að skipu­lögð glæp­a­starf­semi, meðal ann­ars í kringum fíkni­efna­við­skipti eða man­sal, sé starf­rækt í land­inu og að vöxtur sé í þeirri starf­semi á síð­ustu árum. Mat stjórn­valda sé að hund­ruð millj­óna króna fari um hendur þess­ara aðila á ári hverju.

Þrátt fyrir það eru flestar til­kynn­ingar Íslend­inga vegna grun­sam­legra fjár­magns­flutn­inga tengdar meintum skattsvikum og er dregin sú ályktun að því hljóti stjórn­völd á Íslandi að met sem svo að mesta arð­semin af glæp­a­starf­semi hér­lendis teng­ist skattsvikum. FATF gerir athuga­semd við þessa for­gangs­röðun.

Verið að bæta í

Ólafur Þór sagði í áður­nefndu við­tali að þegar emb­ætti hans tók við pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unni um mitt ár 2015 hafi FATF verið búið að setja Íslandi hálf­gerða úrslita­kosti. Síðan þá hafi aðstæður hér­lendis til að takast á við pen­inga­þvætti batnað. „Það er búið að styrkja pen­inga­þvættið núna og þetta er ekki bara rekstur pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu heldur líka eft­ir­lits­þátt­ur­inn og starf­semin innan bank­anna og eins hvernig tekið er á málum sem koma upp og til­kynnt eru. Það er í raun og veru allt kerfið undir þegar við erum að tala um þessa úttekt.“

Nú starfa þrír á pen­inga­þvætt­is­skrif­stof­unni og í byrjun októ­ber var aug­lýst eftir tveimur til við­bótar. Á fjár­lögum árs­ins 2019 er 41 milljón króna veitt til hér­að­sak­sókn­ara til að standa undir kostn­aði vegna nýju mann­anna tveggja og 21 milljón króna til að kaupa upp­lýs­inga­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti.

Að sögn Ólafs þurfa íslensk stjórn­völd að standa skil á eft­ir­fylgn­is­skýrslu til FATF sem verður að vera til­búin í síð­asta lagi í júní 2019. „Það er ekki bara hér inn­an­lands sem er þrýst­ingur á að úr verði bætt. Hann kemur líka erlendis frá og það er ásetn­ingur manna að kerfið muni stand­ast þá skoðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár