Glæpamenn í jakkafötum

„Þeir ganga um í jakka­fötum en eru glæpa­menn“. Þetta er lýs­ing danska for­sæt­is­ráð­herr­ans á mönnum sem hafa orðið upp­vísir að ein­hverju stærsta skattsvika­máli sem sögur fara af. Um er að ræða jafn­gildi um það bil tíu þús­und millj­arða íslenskra króna.

Þegar frá því var greint sum­arið 2015 að erlendum „athafna­mönnum“ hefði tek­ist að fá greidda „til baka“ 12,7 millj­arða danskra króna (ca. 290 millj­arða íslenska) blöskr­aði Dönum, og reyndar fleirum. Ekki vegna þess að upp­hæðin væri sér­lega há heldur vegna þess að við­kom­andi borg­uðu aldrei pen­ing­ana sem þeir fengu svo „end­ur­greidda“ frá dönskum yfir­völdum. „Ýmislegt rotið í ríki Dana“ hafa ein­hverjir kannski hugsað. Þetta var þó aðeins upp­hafið á öðru og meira.

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag greindu fjöl­miðlar í Evrópu og víðar frá því að nokkrir af stærstu bönkum heims væru viðriðnir það sem talið er vera eitt stærsta skattsvika­mál sög­unnar. Upphæðin sem um ræðir nemur sem sam­svarar tæp­lega 10 þús­und millj­örðum íslenskra króna. Svimandi há tala og evr­ópskir fjöl­miðlar full­yrða reyndar að tala geti enn átt eftir að hækka.

Grunur vaknar

Niels Fastrup, sér­fræð­ingur hjá danska útvarp­inu, DR, sagði í við­tali að skömmu eftir að „end­ur­greiðslu­málið“ kom upp í Danmörku árið 2015 hefðu sér­fræð­ingar 19 evr­ópskra fjöl­miðla, frá 12 löndum, hist á fundi. Þar hefðu sumir greint frá grun­semdum sínum um að víðar en í Danmörku hefði verið leik­inn sami leik­ur­inn, sem sé að fá „end­ur­greiddan“ skatt, sem aldrei hefði verið greiddur. Í fram­haldi af þessum fundi sér­fræð­inga fjöl­miðl­anna ákváðu þeir að ráð­ast í rann­sókn­ar­vinnu. 37 starfs­menn 19 fjöl­miðla unnu að rann­sókn­inni, sem hófst fyrir einu ári og var mjög umfangs­mikil.

Þýska rann­sókn­ar­frétta­stofn­unin Correctiv stjórn­aði vinn­unni, sem fór fram með mik­illi leynd og allir sem komu nálægt verk­efn­inu, sem nefnd­ist Cumex Files bundnir þagn­areiði. Gögnin sem Correctiv hefur undir höndum eru sam­tals 180 þús­und blað­síður en að sögn Niels Fastrup sér­fræð­ings DR hefur hóp­ur­inn farið yfir að minnsta kosti annað eins magn síðan vinnan hófst. Brota­starf­semin hefur staðið yfir frá árinu 2001, kannski lengur, og fram til árs­ins 2016.

Mörg þekkt nöfn í Cumex Files

Morgan Stanley, Deutsche Bank, J.P. Morgan, Credit Suisse, Bank of America Merrill Lynch, State Street, Banco Sant­ander, Commerzbank, Investec, Barclays, BNP Paribas, Hypo-Ver­eins­bank, Macquarie Bank. Þessi nöfn og mörg önnur koma margoft fyrir í gögnum Correctiv.

Aðferðin

Í grund­vall­ar­at­riðum er aðferðin sem notuð hefur verið í nær öllum til­fellum sú sama. Hún er sú að stofna sér­stakan sjóð í landi þar sem ekki er skylt að borga skatt af arð­greiðslum. Næsta skref er að sjóð­ur­inn fái (oft­ast með aðstoð banka eða fjár­fest­ing­ar­sjóða) lánuð hluta­bréf í fyr­ir­tækjum, í öðru landi, þegar árs­reikn­inga­dagur (arð­greiðslu­dagur) nálg­ast, slíkt þrýstir oft verði hluta­bréf­anna upp.

Þegar arð­ur­inn hefur verið greiddur út, borgar stofn­andi sjóðs­ins þeim sem aðstoð­uðu hann (banki, lög­menn o.s.frv) og heldur sjálfur afgang­inum. Skatta­yf­ir­völd í land­inu þar sem ,,fjár­fest“ var halda ætíð eftir skatti af arð­inum, í Danmörku er hann til dæmis 27 pró­sent. Eigandi sjóðs­ins sendir síðan kröfu um end­ur­greiðslu þessa skatts til skatta­yf­ir­valda í við­kom­andi landi og fær pen­ing­ana útborg­aða.

Svo skilar sjóðs­eig­and­inn hluta­bréf­unum sem hann fékk að láni, en hefur áður fengið stað­fest­ingu þess sem réði yfir bréf­unum að hann, sjóðs­eig­and­inn, hafi átt bréfin þegar skatt­ur­inn var dreg­inn af arð­inum. Ef hinn raun­veru­legi eig­andi hluta­bréf­anna er stað­settur í landi þar sem ekki þarf að borga skatt af arð­inum eru mörg dæmi þess, í mál­unum sem rann­sökuð voru, að bæði hinn raun­veru­legi eig­andi hluta­bréf­anna og sá sem fékk þau lánuð, krefji skatta­yf­ir­völd um end­ur­greiðslu og í Cumex skjöl­unum eru dæmi um að skatta­yf­ir­völd hafi end­ur­greitt sama skatt­inn margoft, allt að tíu sinnum. Þetta er í ein­földu máli aðferðin sem notuð hefur verið.

Bankarnir vissu allt og tóku sjálfir þátt

Í Cumex skjöl­unum kemur fram að bank­arnir sem tóku þátt í skatta­svindlinu vissu nákvæm­lega hvað var á seyði og tóku þátt í að leika á skatta­yf­ir­völd. Sumir bank­anna hafa bein­línis við­ur­kennt þátt­töku sína, til dæmis Barclays og Deutsche Bank en sá síð­ar­nefndi vinnur nú með þýskum skatta­yf­ir­völdum að því að draga allt sem varðar þessi við­skipti fram í dags­ljósið. Sú spurn­ing hlýtur að vakna hvað fékk bank­ana til að taka þátt í þess­ari svika­myllu. Svarið er aug­ljóst: þeir högn­uð­ust sjálfir á svindlinu, ekki bara bank­arnir heldur nutu líka yfir­menn­irnir góðs af. Sumir þeirra áttu hlut í þeim fyr­ir­tækjum sem lánað var til hluta­bréfa­kaupa í og fengu kannski ofan í kaupið sér­stakan bónus frá bank­anum vegna góðrar útkomu bank­ans. Einn hag­fræð­ingur sem þýskt dag­blað ræddi við sagði að græðgin ætti sér engin mörk „heil­brigð skyn­semi og heið­ar­leiki víkur þegar seðla­búntin eru í aug­sýn.“

Frétta­menn danska útvarps­ins heim­sóttu Frank Tibo, hann var um nokk­urra ára skeið yfir­maður skatta­deildar þýska bank­ans Hypo-Ver­eins­bank, en í deild­inni störf­uðu 48 manns. Deild­inni var ætlað að sjá til þess að bank­inn stæði skil á greiðslu skatta í þeim löndum sem bank­inn hafði útibú. Skömmu eftir að Frank Tibo tók við yfir­manns­stöð­unni, árið 2006, fór hann að gruna að ekki væri allt með felldu varð­andi hluta­bréfa­við­skipti og ræddi það við yfir­menn bank­ans. Þeir gáfu lítið fyrir athuga­semd­irnar. Frank Tibo sagði að nokkrir fjár­mála­menn frá London hefðu verið mjög áber­andi og nán­ast ógn­andi í fram­komu. Vildu heldur ekki greina frá við­skipt­unum, nema að mjög tak­mörk­uðu leyti. Í við­tal­inu nefndi Frank Tibo einnig nýsjá­lend­ing­inn Paul Mora, en þýsk skatta­yf­ir­völd vildu hafa hendur í hári hans vegna skatta­mála, en þá hvarf Nýsjá­lend­ing­ur­inn eins og dögg fyrir sólu. Árið 2012 var Frank Tibo rek­inn frá bank­anum, sem nú hefur greitt skatta­sekt og bank­inn vinnur um þessar mundir með þýskum skatta­yf­ir­völdum.

Frétta­menn DR og þýsku sjón­varps­stöðv­ar­innar ARD hittu þýskan lög­mann, sem var aðstoð­ar­maður Hanno Berger, sem áður hafði unnið hjá þýskum skatta­yf­ir­völdum en snéri sér síðar að hluta­bréfa­við­skiptum. Þýski lög­mað­ur­inn sem býr á ónefndum stað í Þýska­landi og gengur undir dul­nefni (var í við­tal­inu með grímu og rödd hans breytt) lýsti í við­tal­inu hug­ar­fari og við­horfum Hanno Berger og hans líkum. Skattur væri kostn­aður og úr þeim kostn­aði á að draga, helst svo mikið að ekki þurfi að borga neitt. Upp­ljóstr­ar­inn sagði að sitt hlut­verk hefði verið að búa svo um hnút­ana að kom­ist yrði hjá skatt­greiðslum. „Maður missti algjör­lega sjónar á raun­veru­leik­anum, það varð ekki nóg að eiga einn Porsche, nauð­syn­legt að eiga tvo, ekki eina villu á Majorka heldur tvær.“

Danir töpuðu hlutfallslega mestu

Tveir nor­rænir fjöl­miðlar tóku þátt í rann­sókn­ar­vinn­unni undir stjórn Correctiv. Danska útvarpið, DR, og dag­blaðið Politi­ken. Eftir að upp­víst varð um margs­konar klúður hjá danska skatt­inum varð­andi end­ur­greiðslu sölu­skatts og fleira, pen­inga­þvætti hjá Danske Bank og ýmis­legt annað hefur danskur almenn­ingur gegnum fjöl­miðl­ana sýnt umfjöllun um pen­inga- og banka­mál mik­inn áhuga. Þegar töl­urnar um pen­ing­ana sem sviknir voru út úr skatt­inum eru skoð­aðar sést að mest eru svikin í Þýska­landi, þar nema þau um það bil 4500 millj­örðum íslenskra króna, í Frakk­landi 2300 millj­örðum, á Ítalíu 616 millj­örðum, í Belgíu 272 millj­örðum og í Danmörku 230 millj­örðum króna. Fleiri lönd koma við sögu en tæm­andi upp­lýs­ingar um þau svik liggja ekki fyrir. Ef litið er til íbúa­fjölda land­anna kemur í ljós að Danir hafa orðið harð­ast úti. Þar er einkum einn banki sem kemur við sögu, sá er ástr­alskur, Macquarie.

Skattsvikin álitin viðskiptatækifæri

Í gögnum Correctiv kemur ástr­alski bank­inn Macquarie mjög við sögu, einkum varð­andi skatt­svik í Danmörku og Þýska­landi. Í papp­írum frá Macquarie er bein­línis talað um skatt­svik sem við­skipta­módel, sem í felist mikil tæki­færi. Macquarie er einn aðal­eig­andi danska fjöl­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins TDC og danski eft­ir­launa­sjóð­ur­inn ATP (sem heldur utan um eft­ir­laun einnar millj­ónar Dana) hefur verið í nánu sam­starfi við Macquarie. Macquarie var um tólf ára skeið stór eig­andi í flug­stöð­inni á Kastrup við Kaup­manna­höfn og seldi sinn hlut, með miklum hagn­aði fyrir þremur árum. Þá hafði komið fram að bank­inn, sem breska dag­blaðið ,,The Sunday Times“ kall­aði í umfjöllun Vampýru­blóðsug­una hafði sent millj­óna­tugi danskra króna úr landi, og komið þeim í svo­nefnt ,,skatta­skjól“. Enn standa yfir mála­ferli vegna söl­unnar á flug­stöð­inni en dönsk skatta­yf­ir­völd krefja bank­ann um 703 millj­ónir danskra króna (um 13 millj­arða íslenska).

Glæpa­menn í jakka­fötum og með háls­tau stela frá almenn­ingi Evr­ópskir stjórn­mála­menn, sem hafa tjáð sig um Cumex skjölin og Correctiv skýrsl­una eru allir á einu máli: svona svika­myllu verður að stöðva. Talsmenn Evr­ópu­sam­bands­ins segja að nú verði stjórn­mála­menn að taka höndum saman, ekki dugi að tala um hlut­ina, nú þurfi mark­vissar aðgerðir til að hindra að fjár­glæfra­menn hrifsi til sín mikla fjár­muni úr vösum almenn­ings. Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana sagði þegar hann var spurður álits á skýrslu Correctiv hóps­ins: ,,Þeir ganga um í jakka­fötum, með háls­tau, en þeir eru glæpa­menn.“

Þess má geta að danska sjón­varpið, DR1, sýnir mánu­dags­kvöldið 22. októ­ber þátt um skattsvika­málið. Þátt­ur­inn er á dag­skrá klukkan 18.30 að íslenskum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár